Morgunblaðið - 29.07.2015, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 9. J Ú L Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 176. tölublað 103. árgangur
EINS OG ÉG VÆRI
JÓLASVEINN
Á PÁSKUM
HOLLT OG GEFANDI
FYRIR BÖRNIN
SIGRAÐI ÞRÁTT
FYRIR AÐ HÚN
ÆTLAÐI ÞAÐ EKKI
REIÐSKÓLI Í VÍÐIDALNUM 6 HRAUSTASTA KONA HEIMS 12JÓN ÓLAFSSON 30
Ljósmynd/Þjóðgarðurinn Þingvöllum
Náttúruspjöll Þessa mynd af umgengn-
inni birtu starfsmenn þjóðgarðsins.
Þrír erlendir ferðamenn sem
gistu í Vatnskoti á Þingvöllum um
helgina unnu miklar skemmdir á
viðkvæmum gróðri og mosa þegar
þeir rifu upp mikið magn af honum
í þeim tilgangi að einangra tjöld sín
betur. Á ljósmyndum sem starfs-
menn þjóðgarðsins birtu á Face-
book-síðu Þingvalla í gær má sjá
hvernig ferðamennirnir hafa raðað
viðkvæmum gróðrinum þétt upp
við tjöld sín. Fyrir vikið skildu þeir
eftir mörg djúp og ljót sár í náttúru
landsins. Landverðir tóku þá tali og
lásu yfir þeim að því er segir á
sömu vefsíðu. Náttúruspjöllin hafa
verið tilkynnt til lögreglu.
Stöðugur straumur ferðafólks er
til Þingvalla og hefur aðsóknin
aldrei verið meiri. »4
Ferðamenn unnu
spjöll á viðkvæmum
gróðri á Þingvöllum
Straumur til landsins
» Á fyrri hluta ársins fluttu
1.140 fleiri erlendir ríkisborg-
arar til landsins en frá því.
» Frá 1. janúar 2012 til 30. júní
sl. fluttu 5.264 fleiri erlendir
ríkisb. til landsins en frá því.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Eftirspurnin er margfalt meiri en
framboðið. Ef húsnæði er auglýst til
leigu á sanngjörnu verði er eftir-
spurnin þrjátíu- til hundraðfalt meiri
en framboð,“ segir Svanur Guð-
mundsson, leigumiðlari hjá húsa-
leiga.is, um leigumarkaðinn á höfuð-
borgarsvæðinu.
„Fólk hefur gefist upp á að fá hús-
næði leigt. Leiguverðið er yfirleitt
það hátt að fólk ræður ekki við það.
Leigumiðlun er að leggjast af.
Leigusalar finna leigjendur á Face-
book og leigja þeim milliliðalaust.
Leigusalar stjórna markaðnum.
Margir þeirra virða hvorki uppsagn-
arfrest né húsaleigulög.“
Svanur gagnrýnir að húsaleiga
skerði ellilífeyrisgreiðslur. Því fái
eldra fólk lítið sem ekkert fyrir að
leigja út ónotað húsnæði.
Jóhann Már Sigurbjörnsson, for-
maður Samtaka leigjenda á Íslandi,
er nýbúinn að taka íbúð á leigu.
Hann upplifði það þrisvar að keppa
við 50 aðra umsækjendur.
Örn Stefán Jónsson, umsjónar-
maður fasteigna á Ásbrú, segir laus-
ar íbúðir þar leigðar út jafnóðum.
Straumur erlendra ríkisborgara
til landsins eykur eftirspurnina.
Slegist um íbúðir til leigu
Leigumiðlari segir dæmi um að eftirspurn sé 30 til 100 sinnum meiri en framboð
Talsmaður leigjenda keppti þrisvar við 50 umsækjendur um að fá íbúð til leigu
MÞúsundir flytja »15
Morgunblaðið/Þórður
Höfuðhögg Þorvaldur Árnason var
fluttur á sjúkrahús í hálfleik.
„Hann var á sjúkrahúsi yfir nótt en
er allur að koma til. Hann er nokkuð
vel áttaður þótt hann muni lítið eftir
leiknum sjálfum,“ segir Magnús Már
Jónsson, starfsmaður dómaranefnd-
ar KSÍ, við Morgunblaðið. Þorvaldur
Árnason dæmdi leik KR og Breiða-
bliks í Pepsi-deild karla á mánudags-
kvöldið, en þurfti frá að hverfa í hálf-
leik eftir höfuðhögg.
Fyrir leik meiddist Smári Stefáns-
son í upphitun, en hann átti að vera
línuvörður í leiknum. Fjórði dómari
leiksins, Erlendur Eiríksson, hljóp í
skarðið á línunni fyrir hlé og tók svo
við flautunni í seinni hálfleik þegar
búið var að kalla út annan línuvörð,
Jóhann Gunnar Guðmundsson. Þór-
oddur Hjaltalín var áhorfandi á
leiknum en hann brá sér í hlutverk
fjórða dómara. Sex menn fylltu því
stöðurnar fjórar á sama leiknum.
„Þetta var alveg sérstakt tilfelli.
Það hefur komið fyrir að dómarar
hafa meiðst, en því hefur einhvern
veginn alltaf verið reddað,“ segir
Gylfi Þór Orrason, formaður dóm-
aranefndar, en enginn dómari er á
bakvakt ef eitthvað kemur upp á.
» Íþróttir
Man ekki eftir leiknum
Tveir úr dómaratríóinu heltust úr lestinni í Frostaskjólinu
Danska drottningarsnekkjan Dannebrog liggur
um þessar mundir í Reykjavíkurhöfn. Kom þetta
fallega skip til hafnar á sunnudaginn. Snekkjan
var smíðuð á fjórða áratugnum, er 78 metra löng
og tekur 55 í áhöfn fullmönnuð. Hún hefur á
langri starfsævi komið víða við en áætlað er að
hún eigi um 400.000 sjómílur að baki. Ásamt
snekkjunni er í höfn eftirlitsskipið Thetis sem
brátt siglir til Grænlands.
Dannebrog undir vökulu auga Landhelgisgæslunnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Snekkja dönsku konungsfjölskyldunnar liggur við festar í Reykjavíkurhöfn
Örtröðin í
Leifsstöð á
Keflavíkur-
flugvelli hefur
ekki skaðað
markaðsstarf
Icelandair sem
auglýsir Ísland
sem ákjósan-
legan stað til
millilendingar á
leið frá Evrópu
til Ameríku. Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi félagsins, segir
að þar hafi menn ekki orðið varir
við að farþegar hætti við millilend-
ingu vegna frétta af örtröðinni. »4
Örtröðin hefur ekki
skaðað Icelandair
Icelandair Ekki
skaði af örtröðinni.
„Það er nóga vinnu að hafa fyrir menn
með meirapróf. Það er orðin blúss-
andi atvinna í þessum geira allt árið,“
sagði Óskar Jens Stefánsson, formað-
ur Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis.
Félagsmenn eru aðallega hópferða-
bílstjórar. Óskar sagði að atvinnubíl-
stjórar væru í mörgum stéttarfélög-
um en talið væri að 700-800 bílstjórar
ynnu við að aka hópferðabifreiðum
hér á landi.
Óskar sagði að nýliðun í stétt at-
vinnubílstjóra hefði ekki haft undan
eftirspurninni. Skortur væri á hóp-
ferðabílstjórum. Eitthvað væri um að
útlendir bílstjórar væru ráðnir hér til
starfa, að því er Óskar hafði heyrt.
Hann sagði að hópferðabílarnir hefðu
batnað mikið og væru orðnir sann-
kallaðir lúxusbílar og sambærilegir
við það besta sem gerðist í Evrópu.
„Menn eru ekkert að hrópa húrra
yfir laununum í þessu og ekkert að
stökkva á þessi störf þegar önnur
gefa betur af sér,“ sagði Óskar. „En
þetta er orðið meira heilsársstarf en
það var. Áður var þetta aðallega sum-
arstarf. Þeir sem fara í þetta á annað
borð hætta ekki ef þeir eru sáttir við
starfið.“ »2
Rútubílstjórar í blúss-
andi vinnu allt árið