Morgunblaðið - 29.07.2015, Síða 12

Morgunblaðið - 29.07.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 Öflug tæki og tól fyrir pallasmíðina, viðhaldsverkin og sumarbústaðinn. Sumartilboð Iðnvéla - nú er loksins byrjað að hlýna fyrir alvöru! Kynntu þér úrvalið á idnvelar.is Rafstöð 69.826 kr. Fjölnotasög 34.900 kr. Hjólsög og sleðasög með fínstillingu 46.600 kr. Borðsög með bútsleða og ristilandi 115.988 kr. Geirungssög 38.991 kr. Borvél á borði 48.201 kr. IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is VIÐTAL Ísak Rúnarsson isak@mbl.is „Þetta er svo klikkað, ég er ekki al- veg farin að trúa þessu ennþá. Nú ætla ég bara að slappa af, komast í gegnum öll skilaboðin og svara þeim, það er samt svo stressandi að vera svona mikið í símanum,“ segir Katr- ín Tanja Davíðsdóttir, hraustasta kona heims, og hlær. Katrín Tanja sigraði á heims- leikum í crossfit á sunnudaginn. Hún segir það ekki hafa verið markmiðið að vinna heldur miklu frekar að gera sitt besta í hverri einustu keppnis- grein en þær voru þrettán á fjórum keppnisdögum. „Ég fór ekki inn í þessa helgi með það fyrir augum að ég ætlaði að sigra, en ég var búinn að vinna hart að þessu í heilt ár, sér- staklega eftir að hafa ekki komist á leikana í fyrra, gaf allt sem ég gat á hverjum einasta degi í heilt ár. Markmiðið fyrir þessa helgi var að gefa allt í hverja einustu keppnis- grein, koma út af vellinum og vita það að óháð því í hvaða sæti ég hefði lent, þá gæti ég vitað að það var mitt besta sæti, að ég hefði ekki getað gert neitt betur í þeirri keppn- isgrein. Það gekk bara alla helgina og það skilaði þessum árangri. Fyrir síðustu keppnisgreinina hugsaði ég í fyrsta skipti að núna ætti ég mögu- leika á að verða hraustasta kona í heimi,“ segir Katrín Tanja og það gerði hún heldur betur. Það var tilfinningaþrungin stund þegar Katrín Tanja hafði unnið síð- ustu keppnisgreinina en hún segir að vegna þess að hún hafi ekki sett sér það markmið að vinna keppnina frá upphafi eða hugsað sérstaklega út í að sigra fyrr en rétt undir lokin hafi tilfinningarnar hellst yfir sig þegar hún stóð uppi sem sigurvegari. Erfitt að hugsa ekki um töfluna „Það er erfitt að hugsa ekki um stigatöfluna. Það er ekki nóg að vera í fantagóðu formi, þú þarft að hafa hausinn í lagi, þarft að hafa einbeit- inguna í lagi og andlega hliðin skiptir svo ótrúlega miklu máli. Það sem skilaði mér á toppinn, það var haus- inn,“ segi Katrín Tanja. En hvað fer í gegnum höfuðið meðan á keppninni stendur? Katrín segir hugarfarið vera mjög ólíkt eftir keppnisgreinum. „Ein úthalds- greinin snerist eingöngu um hlaup. Sex umferðir þar sem hlaupið lengd- ist alltaf á milli, var frá 400 og upp í 600 m. Á milli bárum við drumb á bakinu en við vorum allar jafn lengi að því. Þjálfarinn minn sagði við mig að þessi keppnisgrein snerist því bara um það hver gæti pínt sig mest í hlaupunum. Ég hef ekki endilega verið þekkt fyrir hlaupa- eða út- haldsgreinar og var sekúndubroti frá fjórða sætinu í þeirri grein og tók það fimmta. Ég er hvað stoltust af sjálfri mér fyrir árangurinn í þeirri grein. Ég hef mikið verið að vinna í hlaupinu og það eina sem var í hausnum á mér var: ég er búin að vera að hlaupa á fjöll, ég er búin að vera að hlaupa mikið og meira en þær, ég get gert þetta.“ „Svo var það kaðlaklifrið án fóta, greinin sem hélt mér frá heimsleik- unum í fyrra, í henni fann ég fyrir stressi í eina skiptið á leikunum. Þá sagði þjálfarinn: allt í lagi Katrín, ég er með þér í þessu. Þetta verður bara ég og þú og við erum í æf- ingasalnum og gerum þetta eins og á hverjum einasta degi. Þú ætlar að gera þetta eins og ég sé með þér á staðnum. Komdu svo niður og hvíldu þig og hugsaðu svo um það hvað ég myndi segja þér að gera á æfingu. Þannig að hugarfarið var á þá leið að ég hefði þjálfarann með mér á vell- inum og það hjálpaði mér mjög mik- ið.“ Bíður eftir því að geta æft Katrín Tanja segir að líkaminn sé í merkilega góðu ástandi. „Ég er furðu góð. Hitinn á föstudeginum var samt mjög þungur. Þjálfarinn lætur mig taka viku þar sem ég má ekki gera neitt, en um miðjan ágúst byrj- um við æfingar aftur á fullu. Þetta er mjög strangt en það skemmtilegasta sem ég geri. Ég er í rauninni bara að bíða eftir því að geta farið að æfa aft- ur. Ég sit hérna í æfingagallanum, við getum orðað þetta þannig,“ segir Katrín Tanja í léttum tón. Katrín Tanja segir að erfiðasta greinin hafi verið svokallað Murph. „Erfiðast var klárlega þegar við þurftum að taka Murph, stelpur í sjö kílóa vestum og strákar í tíu kílóa vestum. Við þurftum að hlaupa mílu, taka hundrað upphífingar í röð, tvö hundruð armbeygjur í röð, þrjú hundruð hnébeygjur og hlaupa svo aftur mílu. Að taka hundrað upphíf- ingar í röð, þá er maður búinn að klára allt togið í einu, svo á maður eftir armbeygjurnar og þetta eru svo litlir vöðvahópar sem eru að vinna yfir svo langan tíma. Það var langt, erfitt fyrir hausinn, það var rosalega heitt og mann svimaði dálítið í hné- beygjunum áður en maður fór aftur af stað í míluna. Katrín Tanja segir að stuðnings- netið skipti öllu máli og að þó að þetta sé einstaklingskeppni þá fari þetta enginn einn. Miklu máli skipti að hafa gott teymi á bakvið sig. Hún segist vera gífurlega heppin með þjálfarann sinn og fjölskylduna en einnig Annie Mist en þær stöllur æfa mikið saman og sárt hafi verið að sjá á eftir henni úr keppninni. En hvers vegna eru Íslendingar og þá sérstaklega íslenskar konur svo öflugar í crossfit? „Þrjú af sex einstaklingssætunum á palli á heims- meistaramóti fóru til Íslands. Að mínu mati var Annie Mist brautryðj- andi þegar hún vann 2011. Að sjá ís- lenska stelpu vinna heimsmeist- aramót, þetta er svo nálægt manni og ég horfði á þetta og hugsaði: mig langar að gera þetta. Trúin eykst og ég held að við íslensku stelpurnar trúum því að allt sé mögulegt. Það eflir okkur líka að við séum svona margar á þessu getustigi. Ég held að þetta sé einnig kynjajafnréttið á Ís- landi, það er svo mikið á Íslandi og við erum stoltar af því að vera sterk- ar. Það er litið upp til þess að vera sterkur og í góðu formi á Íslandi, sem er náttúrlega svo ótrúlega mik- ilvægt. Það er líka svo mikilvægt að geta verið góð fyrirmynd og að það séu stelpur sem líta upp til þess að lifa í hraustum líkama,“ segir Katrín Tanja. Sigraði þrátt fyrir að ætla það ekki  Hraustasta kona heims bíður í æfingagallanum eftir því að geta farið að æfa aftur  Kynjajafn- rétti eflir íslenskar crossfit-konur  Sárt að sjá Annie Mist Þórisdóttur þurfa að hætta keppni Ljósmynd/Crossfit Games Heimsmeistari Það var tilfinningaþrungin stund þegar ljóst var að Katrín Tanja hafði unnið leikana og stóð uppi sem hraustasta kona heims. Hún segir að kynjajafnrétti á Íslandi spili inn í árangur íslenskra kvenna í íþróttinni. Enn er óvíst hvaðan kafbáturinn er sem fannst nýverið í sænska skerja- garðinum, segir Kristján Eldjárn Jóhannesson, verkfræðingur og einn eigenda Ixplorer, sem kom að leit- inni sem staðið hefur yfir í um tvö ár. Kristján segir að Ixplorer starfi víða um heim og taki að sér alls kon- ar botnverkefni, meðal annars leit að skipsflökum líkt og í þessu verkefni í Svíþjóð. Að sögn Kristjáns hafa fjölmiðlar farið offari í málinu og gert meira úr fundinum en ástæða sé til. Síminn hjá honum hefur ekki stoppað frá því í gær en getgátur eru um að kafbát- urinn sé rússneskur. Það segir Kristján alls óvíst og búið sé að blása málið út án nokkurrar ástæðu. Ekki liggi fyrir hvaðan kafbáturinn sé né heldur nákvæmur aldur hans. „Eins og þetta hefur alltaf snúið að okkur þá er þetta yfir 100 ára gamalt flak sem hefur fyrst og fremst söfn- unargildi eða sem safngripur. Við lít- um á það sem slíkt en þegar búið er að blanda sænska hernum og ýmsum í þetta og blása fréttina út getum við í rauninni ekki sagt neitt um fundinn nema að Ixplorer hafi staðið við alla sína samninga,“ sagði Kristján í sam- tali við mbl.is.í gær. Það sem sé merkilegt sé að bát- urinn hafi sokkið fyrir 100 árum og hann sé fyrst og fremst merkilegur fyrir þær sakir að það hafi verið bún- ir til svo fullkomnir kafbátar fyrir meira en hundrað árum. „Það er það sem okkur finnst merkilegast við þetta,“ segir Kristján og bætir við að rannsóknin haldi áfram. Ixplorer hefur unnið að þessu verkefni í samstarfi við Ocean X Team í tvö ár en fyrirtækin tvö hafa oft unnið saman að sambærilegum verkefnum. Rannsóknarskipið er í eigu Ixplorer en fyrirtækið starfar víða um heim og nóg verkefni í gangi, segir Kristján. Hann vonast til þess að hægt verði að flytja fyr- irtækið alfarið til Íslands en hann er eini Íslendingurinn sem er á launa- skrá hjá Ixplorer. guna@mbl.is Líklega rússneskur bátur úr fyrra stríði  Kafbátur fannst við strönd Svíþjóðar Ixplorer Fyrirtækið gerir út rann- sóknarskip með öflugum búnaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.