Morgunblaðið - 29.07.2015, Page 13

Morgunblaðið - 29.07.2015, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 Miklu meira en bara ódýrt frá 795 Hjólkoppar 12/13/14/15/16” Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn Ennþá meira úrval af listavörum Þökkum frábærar viðtökur á Van Gogh olíulitunum og Amsterdam akryllitunum, sem seldust nánast upp. Ný sending með fullt af nýjungum komin í sölu. Kolibri trönur í miklu úrvali, gæðaværa á góðu verði Ný sending af Kolibri penslum Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði frá 7.995Ljósabretti ákerru Þekjulitir/ Föndurlitir frá 845 Strigar, ótal stærðir frá 295 Hleðslutæki 12V 12V Loftdælur 30-35L 8.995 Vatnsbrúsi m/án krana 10L/20L Kerru/Fellihýsalás Bensínbrúsi 20L Strekkibönd og farangursteygjur, frábært úrval frá 395 frá 4.995 Hjólafestingar 2Hj, 3Hj Þakbogar frá 14.995 Starttöskur 12V frá 9.999 12V Fjöltengi 12V Framlenging 12V->230V Straumbreytir frá 5.995 Iphone hleðslu- snúrur frá 495 Tjaldstæðatengill 1.995 Framlengingarsnúrur og kefli 3M, 5M, 10M, 15M, 20M, 25M, 40M Vasaljós & luktir 30+ gerðir frá 395 Jack snúrur frá 595 frá 2.895 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is „Ég var í friðlandinu austur í Flóa í síðustu viku, við hljóðupptökur, þegar ég rakst á illa þefjandi hausa af nautgripum í skurði norður af fuglaskoðunarhúsinu,“ sagði Magn- ús Bergsson, fuglaáhugamaður, í samtali við Morgunblaðið í gær. Magnús kveðst telja líklegt að einhver umhverfissóði hafi hent tveimur nautgripahausum í skurð- inn, sem hann telur vera óðs manns æði, vegna þess að á svona stöðum séu vatnaskipti mjög hæg. „Ég átti til að byrja með erfitt með að sjá hvað þetta var þarna í skurðinum, en ýldulyktin var mjög stæk. Mér finnst þetta ótrúleg um- gengni við þetta friðaða svæði. Þarna koma margir til að skoða fugla. Þetta var kannski ekki beint á gönguleið þeirra, en þetta var samt á því svæði,“ sagði Magnús. Hlýtur að vera óvenjulegt Hann kvaðst telja að aðkoma sem þessi í friðlandi hlyti að vera óvenjuleg. Hann vonaði það alla vega. „Hvað voru menn að drösla þessum stóru hausum þangað og kasta út í skurð?“ spyr Magnús. Hann bætir við að hafi menn komið með hræin að vetrarlagi, hugsan- lega til þess að fóðra hrafna, þá væri samt sem áður mjög ein- kennilegt að kasta þeim ofan í skurð. Hafi verið um heimaslátrun að ræða, væri einfaldast að grafa holu í jörð, setja hausana þar og moka svo yfir. Ótrúleg umgengni í Flóa Ljósmynd/Magnús Bergsson Friðlandið Tveir hausar af nautgripum mara í hálfu kafi í friðlandinu í Flóa.  Rakst á hausa af nautgripum í friðlandinu austur í Flóa Karl Friðriksson og Grétar Gúst- avsson, félagar í Vinum Ferguson, færðu í gær Barnaheill 50 þúsund krónur. Þeir söfnuðu fénu til styrktar verk- efni félagsins, Vináttu, sem er ætlað að vinna gegn einelti í leikskólum. Karl og Grétar fóru í sumar hring- veginn á tveimur forláta Massey Ferguson-traktorum til þess að vekja athygli á málefninu. Framkvæmdastjóri Barnaheilla, Erna Reynisdóttir, þakkaði þeim fyrir rausnarlegan stuðning þeirra. Vinir Fergu- son styrkja Vináttu Vinir Fóru hring- inn á traktorum. Menn eru ýmsu vanir á fjöl- skylduhátíðinni Fiskideginum mikla í Dalvíkurbyggð. Fiskurinn á mynd- inni hefur þó ekki sést áður, en um er að ræða svokallaðan kragaháf sem jafnvel hefur verið talinn út- dauður. Hann hefur veiðst nokkrum sinnum, víðsvegar um heiminn, en nú hefur einn skilað sér til Skarp- héðins Ásbjörnssonar. Skarphéðinn hefur gegnt hlut- verki fiskisýningarstjóra á Fiskideg- inum mikla en honum áskotnaðist háfurinn góði óvænt eftir að hann kom upp með aflanum á óþekktum togara. Sá sem afhenti Skarphéðni háfinn benti á annan mann en sá kannaðist ekki við neinn háf svo að uppruni hans er sveipaður ráðgátu enn um sinn. Skarphéðinn hefur þó lýst eftir hverjum þeim sem kannast við að hafa dregið háfinn á land. Kragaháfurinn verður til sýnis á Fiskideginum mikla, helgina eftir verslunarmannahelgi. „Eftir sýn- inguna verður hann settur í upp- stoppun og geri ég ráð fyrir því að geyma hann sjálfur. Ætli hann verði ekki svo bara alltaf til sýnis á Fiski- deginum,“ segir Skarphéðinn og bætir við að háfurinn gæti endað sem eins konar lukkudýr hátíð- arinnar. Kragaháfar hafa synt um undir- djúpin að því er talið er í um 90 millj- ónir ára. Ljósmynd/Fiskidagurinn mikli Forn Kragaháfur er afar sjaldséður. Sýnir kragaháf  Ekki áður hér

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.