Morgunblaðið - 29.07.2015, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.07.2015, Blaðsíða 15
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Á fyrri hluta ársins fluttu 1.140 fleiri erlendir ríkisborgarar til landsins en frá landinu. Með þeirri viðbót hafa alls 5.264 fleiri erlendir ríkis- borgarar flutt til landsins en frá landinu frá ársbyrjun 2012. Þróunin er þveröfug hjá íslensk- um ríkisborgurum. Á fyrri hluta ársins voru brottfluttir íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta alls 490 og samtals 2.222 frá ársbyrjun 2012. Þetta má lesa út úr nýjum mann- fjöldatölum Hagstofu Íslands en tekið skal fram að tölur fyrir þetta ár eru bráðabirgðatölur. Þróun aðfluttra og brottfluttra ríkisborgara, innlendra og erlendra, frá aldamótum er sýnd hér til hliðar. Neikvæður flutningsjöfnuður Úr töflunni má meðal annars lesa að tæplega 7.700 fleiri íslenskir ríkisborgarar hafa flutt frá landinu síðan í ársbyrjun 2009 en fluttu þá til landsins. Önnur mynd kemur fram hjá erlendum ríkisborgurum. Þar eru aðfluttir umfram brottflutta samtals tæplega 2.400 á tímabilinu. Sé horft lengra aftur, til alda- mótaársins 2000, kemur í ljós að flutningsjöfnuður íslenskra ríkis- borgara er neikvæður um tæplega 11 þúsund manns. Hann er hins veg- ar jákvæður hjá erlendum ríkis- borgurum um 24 þúsund manns. Til að setja þá tölu í samhengi fjölgaði íbúum landsins um rétt rúmlega 50 þúsund á tímabilinu frá 1. janúar 2000 til 30. júní á þessu ári. Þar af fjölgaði íbúum í sex sveitar- félögum á höfuðborgarsvæðinu um rúmlega 39.400. Sé gengið út frá því að hlutfall aðfluttra erlendra ríkis- borgara sé svipað á höfuðborgar- svæðinu og á landsbyggðinni má álykta að aðflutningur erlendra ríkisborgara eigi stóran þátt í íbúa- fjölgun á höfuðborgarsvæðinu. Hlutur landsbyggðar minnkar Það sem af er öldinni hefur hlut- fall landsbyggðarinnar í íbúafjölda landsins farið minnkandi. Árið 2000 var hlutfallið 38,5% en það var komið niður í 35,9% í byrjun þessa árs. Fyrir vikið styttist í að tveir af hverjum þremur lands- mönnum búi á höfuðborgarsvæðinu. Landsmönnum fjölgaði um 3.429 milli ára 2014 og 2015, þar af um 2.535 á höfuðborgarsvæðinu. Hlutur höfuðborgarsvæðisins af íbúafjölg- uninni í fyrra var því um 74%. Fram hefur komið að aukin um- svif í ferðaþjónustu kalli á erlent vinnuafl. Ekkert lát er á vexti í þeirri grein og er útlit fyrir að áfram verði jákvæður flutningsjöfnuður hjá erlendum ríkisborgurum. Það lítur hins vegar út fyrir að ár- ið 2015 verði fjórtánda árið af sextán á þessari öld, sé aldamótaárið talið með, þar sem flutningsjöfnuður ís- lenskra ríkisborgara er neikvæður. Þúsundir flytja til og frá landinu  Frá ársbyrjun 2012 hafa alls 5.264 fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til landsins en frá landinu  Á sama tímabili hafa 2.222 fleiri íslenskir ríkisborgarar flutt frá landinu en fluttu þá til landsins Aðfluttir umfram brottflutta 1.1.2000 til 30.6.2015 Íslenskir og erlendir ríkisborgarar *Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær. 2000 62 1.652 171.650 279.049 61,5% 2001 -472 1.440 175.276 283.361 61,9% 2002 -1.020 745 178.161 286.575 62,2% 2003 -613 480 179.846 288.471 62,3% 2004 -438 968 181.777 290.570 62,6% 2005 118 3.742 184.101 293.577 62,7% 2006 -280 5.535 187.263 299.891 62,4% 2007 -167 5.299 191.737 307.672 62,3% 2008 -477 1.621 197.754 315.459 62,7% Alls frá 2000 -3.287 21.482 2009 -2.466 -2.369 201.055 319.368 63,0% 2010 -1.703 -431 200.710 317.630 63,2% 2011 -1.311 -93 202.131 318.452 63,5% 2012 -936 617 203.374 319.575 63,6% 2013 -36 1.634 205.470 321.857 63,8% 2014 -760 1.873 208.531 325.671 64,0% 2015 211.066 329.100 64,1% 2015-1. ársfj. -370 660 2015-2. ársfj. -120 480 Alls frá 2009 -7.702 2.371 Breyting yfir allt tímabilið -10.989 23.853 39.416 50.051 Íslenskir ríkisborgarar Erlendir ríkisborgarar Íbúafjöldi á höfuðborgar- svæðinu* Íbúafjöldi á landinu Hlutfall íbúa sem býr á höfuðborgar- svæðinu Morgunblaðið/Ómar Úr Hallgrímskirkjuturni Margir hafa flutt frá landinu síðan 2009. FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 Gott úrval aukahluta fyrir dýrin þín Þú færð allt fyrir ferðalagið hjá okkur Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.