Morgunblaðið - 29.07.2015, Side 17

Morgunblaðið - 29.07.2015, Side 17
FRÉTTIR 17 Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 bíumbíum útsalan er hafin... Síðumúla 13 | 108 Reykjavík | Sími 571-3566 40-60% afsláttur af útsöluvörumfacebook.com/biumbiumstore Instagram: @biumbiumstore Opið: Þri. - föst. 10-18 laugardaga 11-16 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Margt bendir nú til þess að nokkur eining sé að skapast á Bandaríkja- þingi um að draga úr refsigleðinni sem veldur því að ekkert vestrænt ríki fangelsar hlutfallslega jafn marga borgara sína og Bandaríkin. Fram kemur í fréttaskýringu í The New York Times að Barack Obama forseti hafi nýlega hvatt til breytinga í þessa átt og repúblikaninn John Boehner, forseti fulltrúadeildarinn- Ætla að draga úr refsigleði  Eining að nást milli repúblikana og demókrata um málið á Bandaríkjaþingi ar, tekið undir. Charles E. Grassley, repúblikani og formaður dómsmála- nefndar öldungadeildarinnar, segist reikna með að leggja fram frumvarp beggja flokka um breytingar á refsi- lögum alríkisins fyrir sumarhlé deildarinnar í ágúst. Grassley segir frumvarpið njóta mikils stuðnings meðal þingmanna repúblikana. Ummælin sýna hugar- farsbreytingu vegna þess að Grass- ley var einn margra þingmanna sem fyrr á árinu sögðu að ákvæði um lág- marksrefsingar hefði mikla kosti. En nú er rætt um að auka svigrúm dómara til að ákveða styttri dóma en lágmarksákvæði kveða á um vegna minniháttar fíkniefnabrota. Brot af þessu tagi eiga mikinn þátt í því að hlutfall ungra blökkumanna í fang- elsum er mun hærra en gera má ráð fyrir ef litið er á hlutfall af þjóðinni. Nokkur sambandsríki hafa þegar samþykkt að draga úr refsingum og minnka þannig kostnað vegna rekst- urs fangelsa. Um 2,2 milljónir manna sitja nú í fangelsi vestra, þar af tæp 10% í alríkisfangelsum. Þrjú brot og í steininn » Eitt af því sem hefur fjölgað föngum er stefna sem Bill Clin- ton beitti sér fyrir í forsetatíð sinni. Ákveðið var að þeir sem brytu þrisvar af sér færu sjálf- krafa í fangelsi. » Clinton segir nú að þessi stefna hafi verið slæm mistök. Farandfólk á járnbrautarteinum í grennd við borgina Gevgelija á landamærum Grikklands og Make- dóníu á mánudag. Fólkið, sem sennilega er frá ríkjum í Miðaust- urlöndum, reyndi að komast í lest á leið til Serbíu og þaðan til ríkja í Evrópusambandinu. Sumir flýja mannskæð átök í heimalöndum sínum, aðrir eru ein- faldlega að reyna að komast til auð- ugri landa í von um betra líf fyrir sig og fjölskylduna. Ungverjar hafa nú byrjað að reisa umdeilda girð- ingu á landamærunum að Serbíu til að reyna að hindra stöðugan straum farandfólks til landsins. AFP Á langri ferð í von um betra líf Michael Cohen, ráðgjafi banda- ríska auðmanns- ins Donalds Trump, sem vill verða forseta- efni repúblik- ana, fullyrti í samtali við blaðamann fréttavefsins Daily Beast að lagalega séð gæti eiginmaður ekki nauðgað konu sinni. Þetta er rangt, lög banna slíka nauðgun eins og aðrar og hafa gert vestra í 22 ár. Cohen hótaði blaðamanninum lögsókn („ég mun eyðileggja líf þitt“) ef hann skrifaði frétt þar sem orðin nauðgun og Trump kæmu fyrir. kjon@mbl.is „Ég mun eyði- leggja líf þitt“ Donald Trump NAUÐGANIR OG TRUMP Uppgötvuð hefur verið veira í Android-stýrikerfinu sem gæti haft áhrif á nær þúsund milljónir far- síma, að sögn BBC. Google, sem framleiðir Android, segist hafa lag- fært gallann sem aðeins sé í eldri gerðum Android. En uppfæra þarf hugbúnað í milljónum síma. Með því að senda einfaldlega mynd eða myndskeið í snjallsíma einhvers er hægt að notfæra sér veiruna. Sérfræðingar bandaríska öryggisfyrirtækisins Zimpherium segja að veiran sé stórhættuleg. Hana megi nota til að fá aðgang að öllu efni sem geymt er í símanum. kjon@mbl.is Veira gæti læðst í milljónir síma ANDROID-STÝRIKERFI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.