Morgunblaðið - 29.07.2015, Side 19

Morgunblaðið - 29.07.2015, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 Á mallakútnum hennar mömmu Þessum hnokka finnst voða gaman þessa dagana að láta hossa sér og fátt skemmtilegra en að bregða á leik á maganum á mömmu sinni í Hljómskálagarðinum. Eggert Eitt mega vinstrimenn eiga. Þeir eru margir dugmiklir við að boða fagnaðarerindi eigin hugsjóna og „berja“ á pólitískum andstæðingum. Átök hugmynda er nauðsynleg í frjálsu samfélagi. Því miður höfum við sem fylkjum okkur undir merki borgaralegra afla – erum hægrimenn – ekki gengið eins rösklega fram og keppinautarnir. Engu er líkara en að við hræðumst að taka til máls; „berja“ frá okkur, svara andstæð- ingum og afla hugmyndum og stefnu fylgis. Þetta er ein skýringin á því að and- stæðingum Sjálfstæðisflokksins hef- ur tekist að móta ímynd flokksins í hugum þúsunda kjósenda. Í þeirri vissu að fáir verði til svara, er járnið hamrað. Gildir hið fornkveðna; ef þú endurtekur vitleysuna nægilega oft er góð von um að fólk trúi fjarstæð- unni líkt og um sannleika sé að ræða. Til verða heilagar möntrur þar sem sífellt er þulið það sama. Mantra júlímánaðar Ögmundur Jónasson, þingmaður VG og fyrrverandi ráðherra, fer með möntru júlímánaðar í Morgunblaðs- grein síðastliðinn mánudag; Sjálf- stæðisflokkurinn vill eyðileggja heil- brigðiskerfið, einkavæða allt, afhenda gróðapungum sjúklinga og láta ríkið borga. Ég er þess fullviss að Ögmundur Jónasson trúir flestu sem hann skrif- ar en varla öllu. Stundum skrifar hann til „heimabrúks“ fyrir félaga sína og skoðanasystkini. Skrif af því tagi eru eðlileg og oft nauðsynleg í inn- anflokksátökum og deil- um. En þótt „heima- brúks-skrifin“ séu rekin áfram vegna innan- meina geta menn ekki leyft sé að beita hvaða meðulum sem er. Ögmundur ákvað að fara niður í svað að- dróttana og samsær- iskenninga. Með ódrengilegum hætti dylgjar hann um Bjarna Benediktsson, formann Sjálf- stæðisflokksins. Úr verður risastórt samsæri. Í boði ríkisstjórnarinnar gæti „draumur frjálshyggjunnar um alvöru markað á sviði sjúkdóma og lækninga verið að rætast“. Ögmund- ur fellir dóm yfir tugum einkafyrir- tækja í heilbrigðisþjónustu og segir að um brask sé að ræða. Sérstaklega er Ögmundi illa við fyrirtækja- samstæðu sem hann tekur fram að sé undir stjórn fyrrverandi bæjarstjóra í Garðabæ (heimabær Bjarna Bene- diktssonar og eitt helsta vígi sjálf- stæðismanna) og formanns Fjár- málaeftirlitsins en vanhelgi hans er að formaður Sjálfstæðisflokksins skuli hafa skipað viðkomandi í stöð- una. Þannig er samsærið fullkomnað. Engu skiptir þótt ríkisstjórnin sem Ögmundur sat í hafi tekið fyrstu skrefin og samið við umrædd fyrir- tæki. Slík smáatriði mega ekki þvæl- ast fyrir þegar höggið er til andstæð- inga. Valdabarátta og sanngirni Ögmundur þekkir formann Sjálfstæð- isflokksins betur en svo að hann trúi bulli sínu og rógburði. Það hent- ar hins vegar ekki í valdabaráttu innan VG að gæta sanngirnis eða láta pólitíska andstæð- inga njóta sannmælis. Þess vegna getur Ög- mundur aldrei vitnað t.d. í ræðu Bjarna Benediktssonar á landsfundi í febrúar 2013, þar sem hann sagði meðal annars: „Ef dugandi lækna og hjúkr- unarfólks hefði ekki notið við á Land- spítalanum hefði ég getað misst bæði konu og barn fyrir rúmu ári. Á slíkum örlagastundum verður forgangsröðunin skýr. Þá veit maður hvernig þeim líður sem hafa örugga heilbrigðisþjónustu utan seilingar, vegna fjarlægðar, samgöngu- örðugleika eða manneklu. Við þurfum að forgangsraða upp á nýtt til að geta tryggt öryggi og að- gengi að heilbrigðisþjónustu. Það er grundvallarhagsmunamál okkar allra.“ Ætlar Ögmundur Jónasson að halda því fram að hér hafi formaður Sjálfstæðisflokksins talað sér þvert um geð – reynt að slá ryki í augu 1.500 flokksmanna sem hlýddu á ræð- una og um leið blekkt aðra lands- menn? Hversu langt langt niður ætl- ar fyrrverandi ráðherra að draga umræðuna? Eru engin mörk? Erfiður og sannur baráttumaður Það er illa komið fyrir góðum og sönnum baráttumanni. Mér þykir það miður því ég hef ekki reynt Ögmund Jónasson að öðru en góðu, þótt hann geti verið erfiður í horn að taka, fast- ur fyrir og við oftar en ekki ósam- mála. Ögmundur skrifar í Morgunblaðið sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Því embætti gegndi hann frá 1. febr- úar 2009 til október sama ár. (Hann varð innanríkisráðherra í september 2010, eftir að klæði höfðu verið borin á vopnin innan VG.) Sem ráðherra heilbrigðismála undirbjó hann fjár- lagafrumvarp 2010 og hann studdi alltaf stefnu vinstri stjórnar Samfylk- ingar og Vinstri grænna í ríkisfjár- málum og þar með hvernig staðið var að fjárveitingum til heilbrigðismála. Það er ekki úr vegi að draga fram nokkrar staðreyndir sem Ögmundur gæti hugleitt þegar hann semur nýja möntru um heilbrigðismál og Sjálf- stæðisflokkinn. · Að raungildi var framlag til heil- brigðismála um 28,5 milljörðum króna lægra árið 2012 en 2009. · Að raungildi var framlag til sjúkrahúsa um 6,9 milljörðum lægri 2012 en 2009. · Framlög til Landspítalans lækk- uðu verulega í tíð ríkisstjórnar Sam- fylkingar og VG. Þau voru liðlega 4,3 milljörðum lægri 2012 en 2009. · Á síðasta ári voru framlög til Landspítalans um 5,5 milljörðum hærri en árið 2012 og um 1,2 millj- örðum hærri en 2009 að raungildi. · Framlag til Sjúkrahússins á Ak- ureyri (FSA) lækkaði að raungildi um 310 milljónir frá 2009 til 2012. · Á síðasta ári var framlag til FSA hins vegar 730 milljónum hærra en 2012 og 420 milljónum hærra en 2009. · Í tíð ríkisstjórnar Samfylkingar og VG hækkaði kostnaðarhlutdeild sjúklinga. · Hlutdeild heimilanna í heilbrigð- isútgjöldum hækkaði verulega og hefur aldrei verið hærri en í tíð vinstristjórnar. Lægst var hlutdeildin 2008 þegar sjálfstæðismenn stýrðu forsætisráðuneytinu, fjármálaráðu- neytinu og heilbrigðisráðuneytinu. Við eigum mikið verk óunnið við að byggja upp og treysta innviði heil- brigðiskerfisins. Um það verður ekki deilt. Eftir niðurskurð Ögmundar og félaga í heilbrigðismálum hefur blaðinu verið snúið við, en betur má ef duga skal. Í liðinni viku hélt ég því fram hér á þessum stað að heilbrigð- ismálin verði helsta kosningamálið vorið 2017. Ögmundur Jónasson hefði lítinn skaða af því að lesa þá grein. Hann kæmist a.m.k. að því að eitt af grunnstefjum sjálfstæðisstefnunnar er að tryggja öfluga og góða heil- brigðisþjónustu fyrir alla, óháð efna- hag, stöðu eða búsetu. Formaður Sjálfstæðisflokksins orðaði þetta með einföldum en skýrum hætti: „Það er grundvallarhagsmunamál okkar allra.“ Eftir Óla Björn Kárason » Stundum skrifar hann til „heima- brúks“ fyrir félaga sína og skoðanasystkini. Skrif af því tagi eru eðli- leg og oft nauðsynleg í innanflokksátökum. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokks. Ögmundar-mantra við innanmeinum í VG Útgjöld ríkisins vegna heilbrigðismála á verðlagi 2014 í milljónum króna Heimild: Ríkisreikningar 2009 til 2014 2009 2010 2011 2012 2013 2014 160.000 150.000 140.000 130.000 120.000 110.000 100.000 Framlög til Sjúkrahússins á Akureyri á verðlagi 2014 í milljónum króna Heimild: Ríkisreikningar 2009 til 2014 2009 2010 2011 2012 2013 2014 5.800 5.600 5.400 5.200 5.000 4.800 4.600 4.400 4.200 4.000 Raunbreyting á framlögum til heilbrigðismála á hverju ári Heimild: Ríkisreikningar 2009 til 2014 % 8,0 6,0 4,0 2,0 0,0 -2,0 -4,0 -6,0 -8,0 -10,0 2009 2010 2011 2012 2013 2014 Framlög til Landspítalans á verðlagi 2014 í milljónum króna Heimild: Ríkisreikningar 2009 til 2014 2009 2010 2011 2012 2013 2014 46.000 44.000 42.000 40.000 38.000 36.000 34.000 Útgjöld vegna sjúkraþjónustu á verðlagi 2014 í milljónum króna Heimild: Ríkisreikningar 2009 til 2014 2009 2010 2011 2012 2013 2014 62.000 60.000 58.000 56.000 54.000 52.000 50.000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.