Morgunblaðið - 29.07.2015, Side 24

Morgunblaðið - 29.07.2015, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 ✝ Ingibjörg Jó-hannsdóttir fæddist á Efri- Steinsmýri í Meðal- landi í Vestur- Skaftafellssýslu 24. september 1925. Hún lést á Lands- spítalanum við Fossvog 22. júlí 2015. Foreldrar henn- ar voru Jóhann Þor- steinsson frá Syðri-Steinsmýri í Vestur-Skaftafellssýslu, f. 4.9. 1897, d. 19.8. 1995 og Vilborg Guðmundsdóttir frá Syðri- Fljótum í Vestur-Skaftafells- sýslu, f. 12.12. 1893, d. 13.6. 1977, en þau voru lengst af sínum bú- skap bændur í Sandaseli í Með- allandi. Systkini Ingibjargar eru: Páll, f. 27.4. 1924, d. 23.4. 2013, Óli Ragnar, f. 12.12. 1926, d. 16.10. 2009, Jóhanna, f. 26.3. 1928, d. 29.8. 2007, Sigurlína, f. 11.7. 1929, Steinþór, f. 28.4. 1932 og Gunnar, f. 12.2. 1935. Ingi- björg giftist 25. desember 1955 Þorvaldi Halldórssyni, skipstjóra og útgerðarmanni, f. 17.8. 1920, d. 22.11. 2008 og bjuggu þau all- an sinn búskap í Vörum í Garði. Kristján, f. 1957, sambýliskona hans er R. Kolbrún Valdimars- dóttir, f. 1965. Börn hans eru a) Þorvaldur, f. 1986, sambýliskona hans er Elfa Ólafsdóttir, f. 1988. b) Þóra Lind, f. 1996. Barns- móðir hans er Kolbrún Þórlinds- dóttir, f. 1965. Börn R. Kol- brúnar Valdimarsdóttur eru Tinna Björg Hilmarsdóttir, f. 1988 og Grétar Hilmarsson, f. 1993. 3) Ingimar Jón, f. 1959, kvæntur Elínu Kjartansdóttur, f. 1960. Barn þeirra er a) Lilja, f. 1994, sambýlismaður hennar er Örn Viljar Kjartansson, f. 1991. Barn þeirra er Elín Helga, f. 2014. 4) Vilberg Jóhann, f. 1962, kvæntur Helenu Rafnsdóttur, f. 1964. Börn þeirra eru a) Rafn Markús, f. 1983, sambýliskona hans er Hildigunnur Krist- insdóttir, f. 1983. Börn þeirra eru Helena, f. 2003 og Berglind Elva, f. 2013. b) Ingibjörg Elva, f. 1988, sambýlismaður hennar er Logi Eldon Geirsson, f. 1982. Barn þeirra er Vilberg Eldon, f. 2010. c) Helgi Már, f. 1993. 5) Þorvaldur, f. 1965, kvæntur Mikkalínu Þ.K. Finnbjörns- dóttur, f. 1969. Börn þeirra eru a) Guðbjörg Helga, f. 1992, sam- býlismaður hennar er Ragnar Hlynsson, f. 1992. b) Jóhann Ingi, f. 1995. c) Finnbjörn Þorvaldur, f. 2009. Útför Ingibjargar fer fram frá Útskálakirkju í dag, 29. júlí 2015, og hefst athöfnin kl. 14. Foreldrar hans voru Halldór Þor- steinsson, skipstjóri og útvegsbóndi frá Melbæ í Leiru, f. 22.2. 1887, d. 31.1. 1980 og Kristjana Pálína Kristjáns- dóttir, húsfreyja frá Hellukoti á Vatns- leysuströnd, f. 2.11. 1885, d. 1.8. 1975. Börn Ingibjargar og Þorvaldar eru: 1) Valgerður, f. 1955, gift Braga Guðmunds- syni, f. 1955. Börn þeirra eru: a) Pétur, f. 1975, sambýliskona hans er Birta Ólafsdóttir, f. 1976. Börn þeirra eru Ólafur Jóhann, f. 2002 og Bragi Valur, f. 2006. b) Þorvaldur Halldór, f. 1979, kvæntur Berglindi Skúladóttur, f. 1981. Sonur hennar er Arnór Ingi Ingvason, f. 1998. Börn þeirra eru Hjörtur Ingi, f. 2009 og Valgerður Ósk, f. 2012. c) Sveinbjörn, f. 1984, kvæntur Þórunni Hannesdóttur, f. 1985. Börn þeirra eru Kári, f. 2011 og Eyvör, f. 2013. d) Bára, f. 1988, sambýlismaður hennar er Viktor Waagfjörð, f. 1982. Sonur þeirra er Dagur, f. 2013. 2) Halldór Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Vald. Briem) Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, Ingibjörg, fædd- ist á Efri-Steinsmýri en flutti í Hólminn í landi Efri-Fljóta árið 1929. Hún var vinnukona á Hnausum á sumrin frá tíu ára aldri þar til hún varð fjórtán ára gömul. Veturinn sem hún varð fimmtán ára þá var hún einnig vinnukona þar en ákvað að fara einn mánuð á saum- anámskeið á Bakkakoti. Þegar hún varð sextán ára þá réði hún sig að Hólmi sem vinnukona hjá hjónunum Valgerði og Bjarna. Ingibjörg og Valgerður tengd- ust miklum tryggðaböndum og var Valgerður henni sem önnur móðir. Ingibjörg gekk í barna- skóla á Efri-Steinsmýri hálfan vetur í senn frá tíu ára aldri fram að fermingu. Hún átti auðvelt með að læra og var góð- ur námsmaður. Skólaárið 1948- 1949 fór hún í Húsmæðraskóla Reykjavíkur og í framhaldi þá ákvað hún að leggja land undir fót og gerast ráðskona hjá tveimur systrum í Kaupmanna- höfn. Til þess þurfti hún að ferðast með skipi og þótti það merkilegt á þessum tíma. Þegar hún kom heim frá Kaupmanna- höfn gerðist hún ráðskona í Sandgerði en þar hitti hún fyrst tilvonandi eiginmann sinn. Þeg- ar hún hóf störf á veitingastað í Reykjavík sem hét Gildaskálinn þá hófust kynni fyrir alvöru á milli hennar og Þorvaldar. Ingi- björg og Þorvaldur hófu síðan búskap í Vörum árið 1955 á efri hæð hússins en foreldrar Þor- valdar bjuggu á neðri hæðinni og hugsaði Ingibjörg um þá þegar heilsu þeirra hrakaði. Seinna byggðu þau hús á Va- ratúninu og fluttu þangað árið 1968 og bjó Ingibjörg þar til dánardags. Ingibjörg var alla tíð heimavinnandi en vann einn- ig við fiskverkun í Vörum þegar á þurfti að halda. Ingibjörg var alltaf glaðlynd, jákvæð og með góða nærveru. Hún var traust og hlý móðir, tengdamamma og amma og talaði hún oft um hvað hún væri heppin að eiga svona góða fjölskyldu. Hún var alla tíð heilsuhraust og þótti henni gaman að ferðast. Ingi- björg og Þorvaldur voru mjög samrýnd hjón og nutu þess að ferðast bæði innanlands og ut- an. Þau voru dugleg að fara í Varaós sem var þeirra sælureit- ur í sveitinni fyrst í Húsafelli og seinna í Vaðnesi. Ingibjörg var einstaklega handlagin og vandvirk og lék allt í höndum hennar. Hennar helstu áhuga- mál voru handavinna og garð- yrkja og hafa margir fengið að njóta þess að eignast og klæð- ast afraksturs vinnu hennar. Ingibjörg varð heiðursfélagi í Kvenfélaginu Gefn árið 2007 og var hún dugleg að taka þátt í starfi félagsins. Hún tók einnig virkan þátt í félagsstarfi aldr- aðra í Garði og var það starf sem fór fram í Auðarstofu henni ómetanlegur félagskapur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem). Minning um góða konu lifir í hjörtum okkar. Valgerður, Halldór, Ingimar, Vilberg, Þor- valdur og tengdabörn. Mig langar með örfáum orð- um að minnast elskulegrar tengdamóður minnar, hennar Ingu í Vörum, sem lést 22. júlí sl. Ég var svo heppin að kynn- ast henni fyrir 31 ári síðan og það var mikil gæfa því betri tengdamóður hefði ég ekki geta eignast né börnin mín betri ömmu. Inga var hörkudugleg, ósérhlífin, hláturmild og hrein- skilin. Hún lá ekkert á skoð- unum sínum og þú vissir alltaf hvar þú hafðir hana og hún var án efa jákvæðasta manneskja sem ég hef kynnst. Hún sá bara björtu hliðarnar á lífinu og var ekkert að dvelja við eitthvað annað. Hún var mikill prjóna- snillingur og liggja ófá lista- verkin eftir hana víða. Það var aldrei skortur á hlýjum flíkum í fjölskyldunni, Inga sá alltaf til þess. Á meðal flíka eftir hana sem er varðveitt sem gull hjá mér, er minnsta lopapeysa sem hún nokkurn tímann prjónaði, að eigin sögn. Því þegar Valdi minn fæddist fyrir tímann, agn- arsmár, fannst Ingu ekki annað hægt en að hann fengi lopa- peysu til að halda hita á litla kroppnum. Og hún hugsaði fyr- ir öllu, því hún gerði peysuna þannig að sem auðveldast yrði að færa hann í og úr peysunni. Hún hafði mjög gaman af að finna lausnir á því hvernig hægt væri að hafa hlutina sem einfaldasta og þægilegasta og sá maður margar snjallar og skondnar Sandasels-reddingar í gegnum tíðina hjá henni. Við höfðum gaman af því að tala um matseld og hvernig væri best að matbúa hitt og þetta og í mínum huga gerði enginn betri kökur en hún og það útbjó enginn eins góðan fisk í raspi en hún og hjá henni lærði ég líka að búa til heimsins bestu fiskibollur. Það var alltaf gott að koma til hennar og alltaf fékk maður góðar móttökur og þó leiðir okkar Halla hafi skilið fyrir tæpum tveimur árum, þá breyttist það ekki neitt. Alltaf fagnaði hún komu minni og það var mér mikils virði. Takk, elsku Inga mín, fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mína og knúsaðu Valda tengdapabba frá mér. Ég gleðst yfir því að þið séuð nú sameinuð á ný og getið haldið áfram að vera ástfangin á nýjum stað. Minningin um góða konu mun lifa í hjörtum okkar allra sem vorum svo heppin að fá að kynnast henni. Líkt og sólin, stráðir þú birtu og yl í líf okkar með brosi þínu og þeirri hlýju sem þú bjóst yfir. Líkt og tunglið, lýstir þú upp myrkrið með nærveru þinni, umhyggju og ástúð. Líkt og norðurljósin, gladdir þú okkur með fegurð þinni og margbreytileika. Líkt og stjörnurnar, gafst þú okkur von um nýja og betri heima, betri veröld. Þegar ég lít sólina, tunglið, norðurljósin og stjörnurnar, þá minnist ég þín. (ÁL) Þín tengdadóttir, Kolbrún Þórlindsdóttir. Amma kær, er horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín ömmubörn, Þorvaldur og Þóra Lind. Elsku amma í Vörum! Lífsglöð, traust, jákvæð, hlý, hláturmild, óðamála, dugleg og hamingjusöm eru allt orð sem koma upp í hugann þegar við hugsum til þín. Tilfinningin að ganga inn í Varir var alltaf góð, vitandi af þér inn í eldhúsi eða að prjóna í sófanum, þú varst alltaf að. Tókst á móti manni með brosi sem náði til tindrandi augn- anna, spurðir frétta og sýndir manni nýjustu prjónaafurðirn- ar. Steikingarilminn og bláan reykinn lagði yfir hlaðið í Vörum þegar þú varst að elda fyrir afa, sem var þinn dyggasti aðdáandi í eldhúsinu. Það var alltaf heitt á könnunni, hvað sem klukkan sló. Kaffi, jóla- kaka og spjall við eldhúsborðið eru minningar sem munu alltaf lifa. Þeir sem sáu til þín hlaup- andi milli húsa áttu bágt með að trúa því að þar færi níræð kona, svo létt varstu á fæti al- veg fram á síðasta dag. Þú talaðir alltaf mjög hratt en prjónaðir enn hraðar, hvort sem augun voru opin eða hálf lokuð, dottandi yfir sjónvarp- inu. Þið afi voruð afar samhent hjón sem lituð lífið jákvæðum augum og kennduð manni að meta lífið og tilveruna eins og það var. Við vitum að hann tek- ur vel á móti þér. Þú varst svo stór hluti af okkur öllum og við munum búa að því alla tíð að hafa kynnst þér og notið góðmennsku þinn- ar, visku, gleði og ekki síst allra lopapeysanna sem munu halda áfram að ylja okkur. Takk fyrir að hafa verið svona lengi með okkur, elsku amma. Þín, Sveinbjörn, Þórunn og börn. Hún amma var snillingur, þvílík forréttindi að fá hafa kynnst henni svona vel og fyrir það verð ég alltaf þakklát. Öll uppátækin hennar, ég gæti skrifað heila bók af dásamleg- um sögum af henni. Mér efst í huga eru jólaævintýrin, að pakka inn öllum gjöfunum. Amma snerist í hringi, óð um allt hús með hníf í annarri hendi (skæri voru ekki nógu góð) og kassa af öllum stærðum og gerðum í hinni. Öllu var troðið í kassa svo að ekki væri hægt að þreifa á innihaldinu á utanverðum pakkanum. Ein jól- in fékk mamma fallegan disk sem amma hafði málað en það var búið að vefja diskinum inn í bleikar blúndunærbuxur svo að diskurinn myndi ekki brotna. Svipurinn á mömmu var stór- kostlegur og það var mikið hlegið. Síðustu jól voru svo skemmtileg, amma lék á als oddi og hristi alla pakkana sína. „Ég vil bara eitthvað sem gutl- ar í,“ sagði hún og skellihló. Hún var ekki lengi að opna alla pakkana sína og faðmaði að sér rauðvínsbeljurnar. Amma var alltaf svo þakklát fyrir allt sem ég gerði fyrir hana, því hún vildi helst ekkert láta hafa of mikið fyrir sér. Ég naut þess að vera í kringum hana, ef mig vantaði smá hlátur og gleði þá fór ég bara til ömmu á kvöldin, sat í sófanum hjá henni yfir sjónvarpinu og hún prjónaði á fullu. Ég keyrði með ömmu nokkr- ar ferðir til augnlæknis og í eitt skiptið þá brá hún á það ráð að stinga grænu skurðhúfunni, sem hún var með á höfðinu, of- an í vasann hjá sér. Hún sagði að húfan ætti eftir að koma sér vel þegar hún myndi ganga út í Auðarstofu í rigningu. Auðar- stofa á skilið mikið þakklæti fyrir það hvað þær hugsuðu vel um ömmu. Það var alltaf eitt- hvað um að vera hjá henni og hún tók þátt í öllu, það á mik- inn þátt í því hvað hún var lífs- glöð og jákvæð. Heimili ömmu og afa var mitt annað heimili, þar var ég alltaf velkomin, sama klukkan hvað. Þér var velkomið að ganga í ísskápinn, mæta með vini þína og byggja heila spila- borg í stofunni. Amma gretti sig og skellti út úr sér tönn- unum til þess að skemmta okk- ur krökkunum. Ég man ekki eftir því að hafa verið skömmuð eða að það hafi verið hækkaður rómurinn við mig. Ég hringdi oft heim á kvöldin og bað um að fá að gista, því það var búið að taka upp á vídeó-hundaþátt eða nýja teiknimynd fyrir mig og hita sængina á ofninum. Sam- band ömmu og afa við foreldra mína var yndislegt og naut ég góðs af því, við ferðuðumst mikið með þeim innanlands sem utan og samgangurinn milli þeirra var mikill og góður. Daginn áður en amma kvaddi þá var sagt við okkur tvær að það væri gullstrengur á milli okkar og það væri einstakt sambandið okkar á milli. Amma brosti til mín og klappaði mér á öxlina eins og hún gerði svo oft. Við vorum góðar vinkonur, amma var til í allt og við gerð- um margt skemmtilegt saman. Hún fór með mér í kvenna- hlaupið í fyrra og hún hefði hlaupið en ekki gengið ef ég hefði ekki stoppað hana af. Ég er þakklát fyrir öll árin með henni, hún var heilsuhraust og glaðlynd fram á síðasta dag. Bára Bragadóttir. Alla tíð hef ég verið stað- ráðin í því að þegar ég verð stór ætla ég að verða alveg eins og þú. Ástæða þess er einföld. Jákvæðni, jafnaðargeð, hrein- skilni, dugnaður, harka, góð- vild, gjafmildi, umhyggjusemi, fegurð og öll hinn góðu lýsing- arorð íslenskrar tungu áttu við þig á einn eða annan hátt. Handlagin varstu með ein- dæmum. Engin tala er á því hve mörgum ullarpeysum, -vettlingum og -sokkum þú fleyttir blindandi fram úr hendi þér. Allt var til taks ef bráður lopasokkaskortur yrði innan fjölskyldunnar. Þakklæti er mér efst í huga þegar ég hugsa um þær stundir sem ég fékk að njóta með þér. Það var ómetanlegt að fá að búa við hlið ykkar afa alla mína ævi og eiga kost á því að stökkva til ykkar hvenær sem mig lysti. Þar voru knúsin, kök- urnar og súkkulaðirúsínurnar ávallt á reiðum höndum. Unun var að fylgjast með sambandi ykkar afa þar sem kærleikur og gagnkvæm virðing var allsráð- andi og ástin leyndi sér ekki. Sama hvað bjátaði á þá kvartaðir þú aldrei. Þú kenndir mér að sjá ljósu hliðar lífsins, virða náungann og taka lífinu ekki of alvarlega. Pönnuköku- bakstur, Ingu-ömmu-ísgerð og fyrstu handtökin á prjónunum var heldur ekki amalegt að læra af þér, meistaranum sjálf- um. Það var ætíð gaman að vera í kringum þig. Lundin létta, stutt í hláturinn og hin ýmsu uppá- tæki eru mér minnisstæð. Sí- ung í anda, á níræðisaldri, hlaupandi yfir túnin þegar þú hélst að enginn sæi til. Maga- æfingarnar sem þú tókst á eldhúsgólfinu til að sýna okkur að það væri nú ekki vandamál fyrir þig að setjast upp í rúm- inu á morgnana og svo mætti lengi telja. Elsku amma, takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir mig, takk fyrir hláturinn þinn, brosin þín, hlýju faðmlögin og allt hitt. Þangað til næst. Þín Guðbjörg Helga. Elsku amma. Takk fyrir öll skemmtilegu árin með þér og allar yndislegu stundirnar. Ég hef verið svo heppinn að fá að vera mikið með þér og kynnast þér mjög vel. Við höfum oft hlegið saman og orka þín, jákvæði og góð- mennska var sannarlega smit- andi. Spræk og kát fram á sein- asta dag og til í nánast hvað sem er. Það eru margar góðar minningar sem sitja eftir eins og t.d. þegar við reyndum við met í pönnukökuáti eldhúsinu og byggðum spilahús á stofu- gólfinu í Vörum, ferðalög á Kirkjubæjarklaustur, heimsókn til Danmerkur og ferðir í sum- arbústaðinn. Það var það gott að vera í kringum þig að ég strauk bæði af leikskólanum í Garðinum og úr pössun í Kefla- vík til að komast til þín þegar ég var lítill gutti. Ég man ennþá eftir því þegar ég gróf mig undir girðinguna á Gefn- arborg og þegar ég var hirtur upp af Hafsteini löggu á Garð- veginum á leiðinni út í Garð til þín. Það var gott að geta verið með þér á þínum hinsta degi, geta hlúð aðeins að þér og kvatt þig. Þú átt eftir að njóta þín í Sumarlandinu með afa og öllum hinum. Ástarkveðja, Pétur og fjölskylda. Ingibjörg Jóhannsdóttir var eiginkona Valda móðurbróður míns og ég hef búið í nágrenni við þau sómahjónin alla tíð. Í æsku var ég nánast daglegur gestur í Vörum hjá ömmu og afa. Valdi og Inga bjuggu á efri hæðinni, börnin þeirra á líkum aldri og ég svo þangað var margt að sækja og alltaf fann ég mig velkomna á þeirra heim- ili. Nú síðustu árin hef ég sótt meira til Ingu, gott að koma til hennar að fá morgunkaffi og spjall. Hún sat iðulega í sóf- anum sínum með eitthvað á prjónunum þegar ég kom. Ég fékk að sjá það sem hún hafði verið að vinna, hvert stykkið öðru fínna og einstaklega vel unnið. Svo spjölluðum við um alla heima og geima allt á léttu nótunum. Aldrei heyrði ég Ingu hallmæla nokkrum manni, alltaf jákvæð og glaðsinna gagnvart öllu og öllum. Inga var félagslynd og mjög virk í sínum félagsskap. Hún var heiðursfélagi í kvenfélaginu Gefn í Garði, mætti á flestalla félagsfundi kvenfélagsins og tók virkan þátt í félagsskapn- um. Hún gaf fallegar prjóna- vörur á jólabasarinn og lagði félaginu lið í öðrum verkefnum. Inga var líka tilbúin að koma Ingibjörg Jóhannsdóttir HINSTA KVEÐJA Inga amma er mér svo kær, vildi að hún væri mér nær. Einstök og alltaf jákvæð, dugleg svo hjartahlý og falleg. Með risastórt hjarta, hana heyrði aldrei kvarta. Alla daga er ég vakna, finn ég hversu sárt það er að sakna. Dýrmætar minningar um hugann minn þjóta, þeirra mun ég alla tíð njóta. (IEV) Þín, Ingibjörg Elva.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.