Morgunblaðið - 29.07.2015, Page 26

Morgunblaðið - 29.07.2015, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 Silja Rós Ragnarsdóttir, upprennandi leik- og söngkona, er 22ára í dag. Hún er stúdent úr Verzlunarskólanum og stefnir á aðfara í leiklistarnám í Hollywood í haust við American Academy of Dramatic Arts. Silja er með afmælisdaginn planaðan niður í smáatriði. „Ég byrja daginn á að fara í fiskaspa með mömmu minni og svo ætlum við vin- konurnar að ferðast út á land og finna einhverja heita náttúrulaug eða eitthvað sniðugt. Svo er matarboð um kvöldið og tónleikar eftir það, þannig að þetta verður pakkaður dagur hjá mér.“ Silja bjó í Kaliforníu fyrstu fjögur ár ævi sinnar, en faðir hennar lærði tölvunarfræði þar, og er hún því að fara á kunnugar slóðir. „Ég er ótrúlega ánægð með að fá að fara út og læra. Maður lærir svo mik- ið af því að búa einhvers staðar annars staðar,“ segir Silja, en hún fer út 25. ágúst og ætlar að vera að minnsta kosti tvö ár í Bandaríkjunum. Silja byrjaði að semja eigin tónlist 14 ára gömul og hóf að spila opinberlega aðeins 16-17 ára gömul. Hún hefur frá æsku stefnt að ferli í söng- og leiklist. Hún vinnur fleiri en eina vinnu ásamt lista- mannsstörfunum og kveðst vera manneskja sem þurfi alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Áður en hún fer á vit ævintýranna í Hollywood ætlar hún að vinna eins mikið og hún getur og njóta tímans með fjölskyldunni og vinum. isb@mbl.is Leikkona Silja Rós ætlar í leiklistarnám í Hollywood næsta haust. Fer á vit ævintýr- anna í Hollywood Silja Rós Ragnarsdóttir er 22 ára í dag O lga fæddist í Bolungarvík 29.7. 1935 en ólst upp á Ísafirði. Hún var auk þess í sveit í Æðey í Ísafjarðardjúpi í níu sumur: „Þarna var ég hjá systkinum Rannveigar, ömmu minnar. Mér lík- aði afskaplega vel í Æðey. Það var ekki hlaupið að því að flækjast á milli bæja enda þurftum við þess ekkert með. Þarna var alltaf hópur barna yf- ir sumartímann, góður bókakostur, tvær harmónikkur og svo hlustaði maður á leikritin og danslögin í út- varpinu. Í Æðey tíðkuðust enn fráfærur. Lömbin voru færð í land, ánum smal- að á stekk og þær mjólkaðar en mjólkin var nýtt til smjörgerðar og undanrennan í bakstur. Það var auk þess gaman að tína egg og sinna dúntekjunni. Þá „geng- um við vaktir“ u.þ.b. tíu manns í beinni röð og hver og einn þurfti að sinna sínum reit. Stundum þurfti að færa til unga milli hreiðra ef þeir voru misþroskaðir en því tóku mæðurnar með jafnaðargerði og sinntu öllum ungum eins og sínum eigin.“ Olga stundaði nám við VÍ og við samvinnuskólann Vaar Gard í Stokk- hólmi í Svíþjóð 1957. Hún stundaði verslunar- og skrifstofustörf hjá KEA, starfaði í gjaldeyrisdeild sænska sambandsins KF í Stokk- hólmi og síðan í fræðsludeild þar, var síðan fræðslufulltrúi hjá SÍS, starfaði sem þjónn hjá skipafélaginu MS Thore í Gautaborg og sigldi þá kring- um hnöttinn: „Þetta var árið 1959. Sænsk vinkona mín hafði skrifað mér bréf og stakk upp á að við skoðunum heiminn. „Hvernig eigum við að fara að því,“ spurði ég. „Við ráðum okkur á skip sagði hún“ – og það gerðum við og sáum ekki eftir því. Ég var einmitt Olga Ágústsdóttir fornbókasali – 80 ára Nýgift Olga og Kristján í brúðkaupsferðinni sinni suður á Spáni árið 1964. Hann var bóndi í Kaupangi en ĺést 2013. Bókakona á Akureyri Foreldrar Olgu Sigurður Ágúst Elíasson, kaupmaður og yfirfiskmatsmaður á Vestfjörðum og á Akureyri, og k.h., Valgerður Kristjánsdóttir húsfreyja. Reykjavík Dagur Sverrir Þórðarson fæddist 9. ágúst 2014 kl. 3.27. Hann vó 3.690 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Hanna Kristín Bjarnadóttir og Þórður Smári Sverrisson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Þegar þú ert að leita að gluggatjöldum er Luxaflex® augljós kostur. Með yfir 60 ára reynslu af markaðnum bíður Luxaflex® upp á mikil gæði og frábært úrval. Kíktu á okkur í Zenus og fáðu ráðgjöf um réttu gluggatjöldin fyrir þitt heimili. Smiðjuvegi 9 • Sími: 554 2450 zenus@zenus.is • zenus.is Augljós kostur 5 ára ábyrgð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.