Morgunblaðið - 29.07.2015, Síða 28

Morgunblaðið - 29.07.2015, Síða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 Júlítilboð - á einnota borðbúnaði Verslun RV er opin virka daga kl. 8 – 18 og laugardaga kl. 10 – 14 Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is Rekstrarvörur – fyrir þig og þinn vinnustað Komdu í verslun RV og sjáðu glæsilegt úrval af einnota borðbúnaði í flottum sumarlitum. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefðir gott af því að breyta til á einhvern hátt hvort sem er heima fyrir eða í vinnunni. Ef þú hefur efni á því að láta eitt- hvað eftir þér skaltu gera það. 20. apríl - 20. maí  Naut Maður getur haft ánægju af hagnýtum hlutum eins og næringarríkri máltíð eða hreinu húsi. Þú ert aðalsjarmurinn sem allir vilja kynnast. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt auðvelt með að laða fram það besta í öðrum sem og að miðla málum þegar menn eru ekki á eitt sáttir. Fólk er eitt- hvað svo ófyrirsjáanlegt núna. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er ekki á þínu valdi að bera ábyrgð á hamingju annarra. Stjörnurnar hvetja þig til að gera kurteisa uppreisn og ganga á eftir málum þínum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Samstarfsmaður kemur til þín með áætlun sem hentar honum mjög vel en ekki þér. Leitaðu svara við því sem þig langar til að vita. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hlustaðu og settu þig í stellingar. Reynsla þín, álit, skoðanir og tilfinningar eru algerlega einstakar. Reyndu að halda aftur af þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú ert þú komin/n á lokasprettinn með verkefni sem þú hefur unnið lengi að. Leik- araskapur kemur sér aldrei vel. Auðvelt er að lofa, örðugt að efna. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt þú lendir í einhverju mót- læti um skeið máttu ekki láta það á þig fá. Samstarfsmenn hafa gaman af félagsskap þínum því þú hefur gamanmál á hraðbergi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að leysa fjárhagslega flækju sem upp hefur komið. Hugsaðu þig vel um, er það þess virði að fórna vináttunni fyrir það? 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert eitthvað óvenju gleymin/n þessa dagana. Ei er kálið sopið þó í ausuna sé komið. Þú ert óstöðvandi og kemur miklu í verk. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Yfirmaður þinn eða yfirboðari er tilbúinn til að ræða ýmis óvissuatriði við þig. Vertu betri við sjálfa/n þig og þú laðar að þér athyglina sem þú leitar eftir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nýtt samband er áhugavert og spenn- andi en mun fyrr eða síðar kólna. Fortíðinni fær enginn breytt og umfram allt verða menn að sætta sig við orðinn hlut. Ólafur Stefánsson segir frá því áLeirnum að í kaffiboði á sunnudag hafi menn gert því skóna að Ólafur Ragnar Grímsson færi fram að ári og voru heldur ánægðir með að svo yrði. Þó þekkjast kynnu fingraförin, fælumst varla gömul kynni, og Ólafur Ragnar ennþá kjörinn yrði betri en nokkru sinni. Fía á Sandi var skjót til svars: „Þegar Ólafur fór fram fyrst hélt ég að hann væri kjaftfor vinstri- sinni, en hann breyttist í þjóðlegan landsföður. Síðan breyttist hann í metnaðarfullan útrásarmann og loks í heimsborgara og gaman væri að vita hvað hann á enn eftir. Um kjörið á honum ég víst er í vafa þó vísast sé Ólafur besta skinn. Samt held ég hann breytist í indælan afa við endurkosningu í þetta sinn. Ármanni Þorgrímssyni þykir framtíðin ekki björt – eða hvað? Enn lafir Mundi á merinni margir þó vilji hann sér finni hentugra starf en þennan Hornstranda arf því næst verður hann ekki hér inni. Hulda Jó. skrifaði í Leirinn á föstudaginn: Spurning Það er gaman að glettast við þig, sagði gárunginn sposkur við mig. Þú veist ekki hvort mín viska er gort en verður að trúa á mig. Málsnið Æði að hittast loks – hæ hæ hérna á torginu – træ læ anda að sér fortíð eiga sér nútíð. Allt í key, sjáustum – bæ bæ. Vísa Svo vönduð og prýðileg vísa verðskuldar lofgjörð og prísa, er tuttugu orð og ekkert um morð. Hefurðu heyrt hana, Dísa? Björgvin R. Leifsson segist aldrei munu kaupa vörur frá fyrirtækinu KÚ og rökstyður það með þessum hætti: Firma eitt fallbeygist KÚ. Finnst okkur það út úr KÚ. Ég nefni’ engin föll, við námum þau öll: Hér er ein umfrátil KÚ. Þessi ábending Hallmundar Kristinssonar eru orð í tíma töluð: Vert er að íhuga vandlega, vinur minn, hver sem þú ert; að afhausa manneskju andlega er ekki fallega gert. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Forseti vor innan um limrur Í klípu „ÉG BAÐ UM HÚLLUMHÆ – EKKI GJUGG Í BORG.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ FÆRÐ KLUKKUTÍMA TIL ÞESS AÐ NAGLALAKKA ÞIG OG TALA VIÐ MÖMMU ÞÍNA. ÉG ER AÐ FARA Á FUND.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að kasta lyklinum í burtu. VÁ, ÉG VONA AÐ ANDLIT OKKAR MUNI EKKI FESTAST SVONA. ÞVÍ SVONA VÆRI MIKLU BETRA. GAM LI ÓLI HJÚKK! ÞETTA ER Í SÍÐASTA SINN SEM VIÐ RÁÐUMST Á KASTALANN HANS GAMLA ÓLA! Það er auðvelt að láta heillast afbandarísku söngkonunni Ninu Simone. Hálf öld er síðan hún sló í gegn með einstakri rödd sinni og fág- uðum píanóleik. Í grein í The New York Times segir að nú sé hún að ná hátindinum. Um þessar mundir eru að koma út þrjár kvikmyndir um hana og nýlega var gefin út tvöföld plata þar sem ýmsar stjörnur syngja lög hennar. Á undanförnum árum hafa komið út tvær ævisögur hennar, ljóð hennar hafa verið gefin út og hipp-hopp lista- menn á borð við Jay Z, Kanye West og hljómsveitina The Roots hafa notað rödd hennar í lögum sínum. x x x Nina Simone fæddist 1933 og hét þáEunice Waymon. Hún óx úr grasi í bænum Tryon í Norður- Karolínu þar sem ríkti aðskilnaður svartra og hvítra. Þriggja ára var hún farin að spila gospel-sálma á píanó. Þegar hún var átta ára hafði hún vak- ið slíka athygli að hvítur vinnuveit- andi móður hennar bauðst til að greiða fyrir tíma handa henni í klass- ískum píanóleik. Hún var staðráðin í að skara fram úr í klassískum píanó- leik, en varð fyrir áfalli þegar henni var neitað um inngöngu í Curtis Insti- tute of Music í Fíladelfíu. Skólinn heiðraði hana tveimur dögum fyrir andlátið. Hún fór að spila á börum og klúbbum og tók sér nafnið Nina Sim- one. Fyrsta plata hennar kom út 1959, Little Girl Blue, og varð útgáfa henn- ar á laginu I Loves You, Porgy eftir George Gershwin vinsæl. Hún fluttist til New York og tók vaxandi þátt í réttindabaráttu svartra í Bandaríkj- unum. 1964 brást hún við morðinu á Medgar Evers, sem barðist fyrir rétt- indum svartra, og fjórum svörtum stúlkum, sem létu lífið þegar kirkja í Birmingham í Alabama var sprengd í loft upp ári áður, með hinu magnaða lagi Mississippi Goddam. x x x Ferill Ninu Simone var ekki dans árósum. Hún glímdi við geðrask- anir og önnur vandamál, en náði sér aftur á strik. Hún lést árið 2003. Vík- verji hefur löngum verið heillaður af list Simone og fagnar því að nafni hennar skuli haldið á lofti. víkverji@mbl.is Víkverji Það orð er satt, og í alla staði þess vert að við því sé tekið, að Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn og er ég þar fremstur í flokki. Fyrra Tímóteusarbréf 1:15

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.