Morgunblaðið - 29.07.2015, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015
-Viðhaldsfríir
gluggar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími 554 4300 • Fax 564 1187
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta er fyrst og fremst bara til-
raun hjá mér til þess að prófa eitt-
hvað nýtt,“ segir tónlistarmaðurinn
Jón Ólafsson en hann lauk nýverið
upptökum á plötu með raftónlist-
armanninum Árna Grétari Jóhann-
essyni, betur þekktum sem Future-
grapher. Tvímenningarnir komu
meðal annars fram á Sónar fyrr á
árinu og hyggjast nú standa að þrí-
þættri útgáfu, á geisladiski, vínyl og
á netinu, með hjálp Karolina Fund.
Gefið út undir Möller Records
„Ég er búinn að vera fjári lengi í
þessum bransa og hef kannski verið
að fást við svipaða hluti á ferlinum,
popp- og rokktónlist. Það kemur þó
einstaka sinnum yfir mann að mað-
ur vilji prófa eitthvað nýtt. Fyrir
þremur árum fór ég að grúska í raf-
tónlist og hóf að kynna mér íslensku
raftónlistarsenuna fyrir einskæra
forvitni. Ég skráði mig í Facebook-
hóp sem ber nafnið Íslensk raf-
tónlist og kynntist þar allskonar
fólki. Það varð uppi fótur og fit þeg-
ar ég óskaði eftir inngöngu, fólk
skildi ekki hví Jón Ólafsson í Ný-
dönsk hafði áhuga á því að vera að
þvælast þarna inni. Ég sýndi þó
mikinn lit í spjalli og spurðist mikið
fyrir um hvaða tæki og tól menn
væru helst að nota. Þegar ég fór að
mæta á tónleika hjá raftónlistar-
mönnum var eiginlega það sama
uppi á teningnum. Fólk kom til mín
og spurði hvað ég væri nú að gera
þarna eins og ég væri jólasveinn á
páskum. Ég sat bara úti í horni og
drakk í mig það sem fram fór. Svo
er ég einnig búinn að vera grimmur
að mæta á Sónar,“ segir Jón sem
segist í framhaldinu af því hafa farið
að fikta við það að búa til sína eigin
raftónlist.
„Ég og Futuregrapher, Árni
Grétar, ákváðum svo að gera saman
plötu. Það var aldrei ákveðið hvern-
ig sú plata skyldi verða nákvæm-
lega, bara eitthvert „ambient“ fyr-
irbæri. Ég settist því bara við
píanóið og hóf að spinna það sem ég
gat ímyndað mér að væri gott að
slaka á við. Ég sendi Árna Grétari
verkin og vissi hreinlega ekki
hvernig hann myndi taka þeim.
Hann náttúrlega lifir og hrærist í
þessu, búinn að gera nokkrar raf-
plötur sjálfur. Honum leist þó bara
mjög vel á þetta og ég bjó til átta
lítil tónverk upp úr því sem hann
skeytti síðan við umhverfishljóðum
og fleiru. Þetta er nú komið í fram-
leiðslu og við erum mættir á Karol-
ina Fund eins og allir aðrir og erum
að reyna að sigla þessu í höfn svo
við eigum fyrir framleiðslunni. Út-
gáfufyrirtæki í dag eru náttúrlega
ekki að leita að svona tónlist, frekar
en annarri tónlist, en þetta kemur
samt út undir hatti Möller Records
sem er íslensk raftónlistarútgáfa en
Árni Grétar er þar einn eigenda,“
segir Jón en hann kveður flesta þá
raftónlist sem hafi höfðað til hans
hafa verið gefna út undir þeim hatt-
inum.
Ekki sagt skilið við Nýdönsk
Jón segir samstarf þeirra Future-
graphers hafa verið mjög ljúft og að
ólíkur bakgrunnur þeirra hafi farið
einkar vel saman.
„Ég er hámenntaður í tónlist og
ég efast um að hann hafi menntað
sig nokkuð í þeim fræðum. Það er
alveg hrikalega gaman fyrir mig að
vinna með honum, við nálgumst
þetta á gjörsamlega ólíkan hátt.
Árni Grétar er ótrúlega vel að sér í
músík og þó svo hann flytji raf-
tónlist þá er skalinn á þeirri tónlist
sem hann hlustar á alveg ótrúlega
breiður. Ég heillaðist líka af kraft-
inum í honum. Við eigum það sam-
eiginlegt að vera mjög duglegir og
ég gæti ekki verið glaðari með sam-
starfsmann. Hann er alveg dásemd-
ardrengur og það sem hann gerði
við þessi verk sem ég samdi er al-
veg frábært,“ segir hann. Eins og
áður segir kveður Jón afrakstur
þeirra félaga vera nokkuð „ambi-
ent“-skotna raftónlist og fluttu þeir
tóna sína meðal annars á raftónlist-
arhátíðinni Sónar í Hörpu fyrr á
árinu. Fullt hús gesta naut þá lág-
stemmds hljóðheimsins í þrjú kort-
er. Þrátt fyrir þá ánægju sem Jón
hlýtur af samstarfinu kveðst hann
þó ekki hafa sagt skilið við hljóm-
sveitina Nýdönsk.
„Ég er alls ekkert hættur í Ný-
dönsk, mig langaði bara að gera
eitthvað annað. Við Árni Grétar
verðum til að mynda á Airwaves-
hátíðinni í vetur og svo ætlum við að
vera með útgáfutónleika í október-
mánuði í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar á Laugarnesi. Platan mun
sem sagt koma út í október. Þetta
verður vínyll, geisladiskur og nið-
urhal á vefnum,“ segir hann.
Ætla að leggja í aðra plötu
Jón segir Karolina Fund-
söfnunina ganga ágætlega en hún
hófst fyrir um viku. Takmarkið sé
að safna þrjú þúsund evrum og
þriðjungur þeirrar upphæðar sé
kominn í hús.
„Mér þykir þetta gríðarlega
skemmtileg uppsetning á útgáfu.
Það er eitthvað heimilislegt við það
að senda vinum sínum póst og væla
í þeim að styrkja sig aðeins. Maður
er bara að reyna að átta sig á því
hversu aggressívur maður kemst
upp með að vera,“ segir Jón kíminn.
„Við Árni Grétar erum síðan bún-
ir að ákveða það, að svo fremi að
þetta gangi upp hjá okkur, þá leggj-
um við í gerð á annarri plötu strax á
næsta ári. Við teljum okkur vera
komna með einhverja músík sem
enginn annar er að gera hérna á Ís-
landi og vonandi verða viðtökurnar
á fyrstu plötunni hvetjandi,“ segir
Jón að lokum.
Ljósmynd/albumm.is
Samvinna Jón og Futuregrapher eru þegar farnir að vinna efni á plötu sem þeir hyggjast gefa út á næsta ári.
Jón Ólafsson og Futuregrapher í eina raftónlistarsæng
„Eins og ég væri jóla-
sveinn á páskum“
Sjöttu og jafnframt síðustu tón-
leikar sumardagskrár Jazzklúbbs-
ins Múlans á Björtuloftum Hörpu
verða haldnir í dag en þar kemur
fram tríó víbrafónleikarans Reynis
Sigurðssonar. Á tónleikununum
leiðir Reynir tríó sitt sem auk hans
er skipað þeim Gunnari Hrafnssyni
á kontrabassa og Ásgeiri Ásgeirs-
syni gítarleikara. Tríóið mun leika
ameríska og brasilíska standarda
þar sem bebop og sömbur munu
svífa yfir vötnum eins og segir í til-
kynningu.
Múlinn er samstarfsverkefni Fé-
lags íslenskra hljómlistarmanna
(FÍH) og Jazzvakningar. Klúbb-
urinn heitir í höfuðið á Jóni Múla
Árnasyni sem jafnframt var heið-
ursfélagi og verndari Múlans. Múl-
inn er styrktur af Reykjavíkurborg
og Tónlistarsjóðnum og er í sam-
starfi við Heimstónlistarklúbbinn
og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn
mun halda áfram starfsemi sinni
með nýrri og spennandi tónleika-
dagskrá á Björtuloftum í vetur.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 21 og standa í rúmlega
klukkustund og fara eins og áður
segir fram á Björtuloftum sem
staðsett eru á fimmtu hæð Hörpu.
Síðustu Múlatón-
leikar sumarsins
Tríó Reynis Sigurðssonar kemur fram
Tríó Fram kemur tríó vibrafónleikarans Reynis Sigurðssonar sem einnig er
skipað Gunnari Hrafnssyni á kontrabassa og Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara.