Morgunblaðið - 29.07.2015, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Tónlistarmaðurinn Smári Tarfur Jós-
epsson mundar gítarinn á skemmti-
legan máta á nýrri plötu sinni Son Of
The Wind. Gítarinn hefur þó ekki
alltaf verið hans helsta vopn í tónlist-
inni.
„Trommurnar heilluðu mig þegar
ég var barn og ég var um átta ára
gamall þegar ég byrjaði að spila á
trommur. Það var síðan á unglingsár-
unum, svona í kringum fermingarald-
urinn, sem ég fór að prófa mig áfram
með gítarinn en skipti ekki alfarið yf-
ir á hann fyrr en um tvítugt.“
Eins og margir ungir tónlistar-
menn, sem spila á gítar, varð raf-
magnsgítarinn fyrir valinu og rokkið
aldrei langt undan hjá Smára.
„Þungarokkið grípur mig miklum
heljargreipum á sínum tíma og ég
spilaði með Spitsign, eða Hrákskipti
ef ég ætti að íslenska nafn hljóm-
sveitarinnar. Nokkrir úr þeirri
hljómsveit fóru svo yfir í hljómsveit-
ina Mínus en ég fylgdi ekki með í
þeim pakka enda farinn að spila með
Quarashi þegar sú breyting varð á.“
Réð sig í heyskap
Platan Son Of The Wind er víðs-
fjarri þungarokkinu og má lýsa henni
best sem rólegum gítartónum með
niðinn í Seljalandsfossi á bakvið. Þó
ekki þannig að niðurinn frá fossinum
sé truflandi heldur mátulega róandi.
„Tónlistin á þessari plötu kom
mjög náttúrulega til mín. Ég flutti úr
Reykjavík síðasta sumar og fór að
vinna á sveitabæ undir Eyjafjöllum
en ég réð mig þar í vinnu við hey-
skap. Fékk þá þessa hugmynd að
setjast við Seljalandsfoss og leika
mér á gítarinn. Það hefur alltaf hrifið
mig að spila tónlist sem er ekki fyr-
irfram ákveðin og þarna var tilvalinn
staður til þess. Áður en ég vissi af var
ég kominn með glænýja tónlist og
efni á plötu. Lögin urðu því til við
mjög náttúrulegar aðstæður enda
svæðið þarna einstaklega fallegt og
náttúran við fossinn stórkostleg.“
Smári ákvað að endurtaka leikinn í
júní á þessu ári og er strax kominn
með ný lög og með nýja plötu í kort-
unum.
„Nýja platan verður tekin upp eftir
tvær vikur við Seljalandsfoss en á
Son Of The Wind fór ég að nóttu til
og tók upp hljóðið í fossinum og spil-
aði svo á gítarinn í hljóðveri. Núna er
þetta tekið upp „live“ ef svo má að
orði komast og upptökustjórinn minn
núna, Jóhann Rúnar Þorgeirsson,
segir mér að þessir nýju stefnuvirkj-
andi hljóðnemar geti tekið upp gít-
arinn, niðinn í fossinum og fuglasöng
á sama tíma og umferðarniður frá
þjóðveginum er alveg útilokaður.“
Tekur upp tvær aðrar plötur
Nýja Seljalandsfossplatan kemur
ekki út fyrr en næsta vor enda nóg að
gera hjá Smára, sem vinnur að upp-
töku á tveimur öðrum plötum.
„Ég er að taka upp sólóplötu þar
sem ég spila á gítar og syng og rokk-
plötu með hljómsveitinni minni Bel-
ford,“ segir Smári sem spilar þá tón-
list sem kemur til hans hverju sinni
og er alveg fordómalaus á tónlist.
„Ég fer bara þangað sem tilfinn-
ingin tekur mig hverju sinni. Ég er
líka það heppinn að félagar mínir sem
eru frábærir tónlistarmenn hafa ekki
enn fengið leið á mér og leggja mér
lið í hinum ýmsu stefnum.“
Platan aðeins seld við fossinn
Allt sem viðkemur plötu Smára
virðist einlægt og náttúrulegt. Hann
selur plötuna aðeins við Seljalands-
foss og myndin á plötualbúminu er
tekin af fyrrum nemanda Smára.
„Ég er mjög lítið fyrir útlitsdýrkun
og hef aldrei átt góða myndavél sjálf-
ur. Myndin er mjög flott á albúminu
en hana tók Alti Arnarsson, en það
vill svo skemmtilega til að ég passaði
hann á leikskóla þegar hann var
þriggja ára. Hann er orðinn tvítugur í
dag og smellti af mér nokkrum
myndum sem auglýsingastofan
Maurar vann með og úr varð þessi
glæsilega kápa.“
Innblástur við Seljalandsfoss
Smári Tarfur Jósepsson vinnur að upptöku á þremur nýjum plötum núna í haust og vetur Nýjasta
plata hans Son Of The Wind varð til við Seljalandsfoss Tekur upp nýja plötu við fossinn eftir tvær vikur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ísland Seljalandsfoss er vinsæll meðal ferðamanna sem koma til Íslands til
að sjá náttúruna og kynnast því einstaka fólki sem byggir þetta land.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Hljómsveitin Logn var að senda
frá sér nýja plötu sem ber nafnið Í
sporum annarra en þetta er fjórða
plata hljómsveitarinnar sem stofn-
uð var árið 2008.
„Við byrjuðum að spila saman
árið 2008 um haustið og höfum í
raun og veru starfað með hléum
frá þeim tíma. Fyrstu tónleikarnir
okkar voru árið 2009 en það ár
sendum við einnig frá okkur deili-
plötu með annarri hljómsveit og
vorum almennt mjög virkir á því
herrans ári. Við föndruðum um-
slögin sjálfir og héldum alla tón-
leika í kringum útgáfu fyrstu
plötunnar,“ segir Ægir Sindri
Bjarnason, trommuleikari Logns.
Næsta plata hljómsveitarinnar
fór í vinnslu árið 2009 og var sú
plata einnig deiliplata en vegna
margs konar vandræða endaði
platan í netútgáfu.
„Við ætluðum okkur stóra hluti
með seinni deiliplötuna en hún
fór af einhverjum ástæðum ekki
eins og við ætluðum og þess
vegna settum við hana bara á
netið.“
Vandræðagangur í útgáfu
Útgáfumál hafa reynst hljóm-
sveitinni erfið og segir Ægir út-
gáfuferli fyrstu sjálfstæðu plötu
Logns hafa verið langt og leið-
inlegt.
„Platan Í fráhvarfi ljóss, myrkr-
ið lifnar við var fyrsta platan sem
var alfarið okkar, þ.e. við vorum
ekki að deila sviðsljósinu eða efni
á plötunni með öðrum. Sú plata
reyndist okkur hins vegar mjög
erfið og allt ferlið í kringum hana
var leiðinlegt og langt. Útgefand-
inn hætti við útgáfuna í miðjum
klíðum og við enduðum á því að
taka yfir verkefnið sjálfir og klára
hana á eigin forsendum. Það varð
til þess að hún kom ekki út fyrr en
haustið 2011.“
Ægir segir að útgáfuferli þeirr-
ar plötu hafi hægt nokkuð á hljóm-
sveitinni og orðið til þess þeir hafi
ekki byrjað að semja nýtt efni um
nokkurn tíma.
„Erfiðleikarnir með útgáfuna
urðu því miður til þess að við fór-
um seint að semja nýtt efni. Það
stafaði helst af því að við vildum
ekki fjarlægjast efni plötunnar og
spiluðum það mikið á tónleikum.“
inn en það virð-
ist fátt stöðva þá þeg-
ar stefnan er sett.
„Í sporum annarra er önnur
breiðskífa okkar en platan er í
anda þess sem við höfum verið að
fást við, þ.e. tilraunakennt þunga-
rokk sem brúar bilið milli harð-
kjarna, svartmálms og dauða-
rokks. Viðfangsefni plötunnar er
svo einhvers konar samsafn texta
sem snerta með einum eða öðrum
hætti á samkennd, bæði persónu-
legri og almennri, slæmri lífs-
reynslu nákominna, misskiptingu
lífsgæða í heiminum og einnig hin-
um verstu hliðum mansins sem
krauma á ólíklegustu stöðum.“
Allt virðist því vera að fara af
stað á nýjan leik hjá strákunum en
þeir munu spila á Norðan Pönk á
Laugarbakka um verslunarmanna-
helgina og stefna á útgáfutónleika
þegar líða tekur á haustið og skól-
arnir eru komnir á fullt skrið.
Platan Í sporum annarra er nýtt
upphaf fyrir strákana í Logni. Út-
gáfuferlið var að sjálfsögðu ekki
stórslysalaust frekar en fyrridag-
Erfiðleikar í útgáfumálum hrjá hljómsveitina en það stöðvar hana ekki
Spilar á Norðan Pönk á Laugarbakka um verslunarmannahelgina
Tónleikar Hljómsveitin Logn heldur sig í þungarokkinu.
Ný þungarokksplata frá Logni