Morgunblaðið - 29.07.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 29.07.2015, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 210. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. „Við vökum yfir henni“ 2. Utanvegaakstur náðist á mynd 3. Andlát: Vilhjálmur Bjarni Vilhjálmsson 4. „Ekki í boði árið 2015“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarhátíðin Innipúkinn mun hita gesti sína upp fyrir verslunar- mannahelgina klukkan 21 á morgun en þá mun rapparinn Sturla Atlas stíga á svið ásamt fríðu föruneyti á hostelinu Hlemmi Square. Rapparinn hefur komið eins og stormsveipur inn í íslenska hipphopp-senu en ekki er langt síðan frumburðurinn Love Hurts leit dagsins ljós. Innipúkinn fer fram á höfuðborgarsvæðinu dagana 31. júlí til 2. ágúst en meðal lista- manna sem koma þar fram má nefna Retro Stefson, Gísla Pálma, Diktu, Úlf Úlf, Vök, Tilbury, Sturlu Atlas, Teit Magnússon, Benny Crespo’s Gang, Introbeats, M-Band og Vaginaboys. Morgunblaðið/Styrmir Kári Sturla Atlas á Hlemmi Square  Alþjóðlegt orgelsumar stendur nú sem hæst í Hallgrímskirkju og mun Schola cantorum halda viku- lega hádegistónleika í dag. Schola cantorum hefur hlotið verðskuldað lof sem einn frambærilegasti kór landsins. Kórinn hefur unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum og verið tilnefndur til tónlistar- verðlauna Norðurlandaráðs og Ís- lensku tónlistarverðlaunanna. Efn- isskráin samanstendur af íslenskum og er- lendum kórperl- um og þjóð- lögum og stjórnandi er Hörður Áskels- son. Tónleikarnir hefjast klukk- an 12 og fást miðar við innganginn. Hádegiskórtónleikar í Hallgrímskirkju Á fimmtudag Austan og norðaustan 3-8 m/s, skýjað með köflum og sums staðar skúrir á Suður- og Vesturlandi. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast vestantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skúrir eða rigning með köflum vestantil, síst þó á Vestfjörðum og líkur á síðdegisskúrum í innsveitum nyrðra. Hiti 8-16 stig, hlýjast vestra. VEÐUR FH-ingar komu sér á topp- inn í Pepsi-deild karla í knattspyrnu eftir sigur á botnliði Keflavíkur í gær. Atli Viðar Björnsson var hetja FH-inga en hann skor- aði sigurmark þeirra eftir að hafa komið inn á sem varamaður skömmu áður. Keflavík hefur aðeins fimm stig í botnsæti deildarinnar þegar fram er komið í ágústmánuð og sex stig eru í öruggt sæti. »2 FH kom sér á toppinn í Keflavík Stjarnan vann nauðsynlegan sigur á erfiðum útivelli í Pepsi-deild kvenna í gærkvöldi til þess að halda í við topp- lið Breiðabliks. Stjarnan vann á Sel- fossi þrátt fyrir að hafa lent undir í leiknum en þessi lið munu einmitt mætast í bikarúr- slita- leiknum í ágúst. Blikar gerðu engin mistök á KR-vellinum og unnu sannfærandi sigur. Forskot Breiðabliks er því enn fjögur stig á toppi deildarinnar. »3 Nauðsynlegur sigur hjá Stjörnunni á Selfossi „Sjúkraþjálfarinn segir að það séu svona þrjár, fjórar vikur í að ég geti byrjað að spila. Ég læt á það reyna með varaliðinu fyrst en ég hef ekki fundið neinn verk og ekkert bakslag komið svo að ég er farinn að sjá fyrir endann á þessu,“ segir Björn Daníel Sverrisson meðal annars við Morgun- blaðið en hann hefur verið meiddur að undanförnu. »4 3-4 vikur þar til Björn Daníel getur spilað ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þetta hefur gengið ljómandi vel og verið virkilega skemmtilegt,“ segir Sigurður L. Hall, öðru nafni Siggi Hall, matreiðslumeistarinn þjóð- kunni, um nýtt verkefni í sumar. Það felst í því að flakka á milli Edduhót- ela og elda fyrir gesti með mat- reiðslumönnum viðkomandi hótela. Siggi Hall hefur unnið mikið með Icelandair-hótelunum, meðal annars í sambandi við matarmenningarhá- tíðina Food & Fun, sem hann og Baldvin Jónsson hafa skipulagt ár- lega með Icelandair og haldin hefur verið í febrúar eða mars frá 2002 með það að markmiði að gera Reykjavík að heimsfrægri matarborg. Styttri útgáfur af henni hafa meðal annars verið haldnar í St. Pétursborg, Washington DC, Turku, París og Alicante. Frábær hugmynd Hann segir að Stefán Viðarsson, yfirmatreiðslumaður Icelandair- hótelanna, hafi í vor spurt hvort hann væri tilbúinn að taka þetta verkefni á Edduhótelunum að sér og hann hafi ekki þurft að hugsa sig um tvisvar. „Þetta er frábær hugmynd, það er alltaf gaman að vinna með ungu fólki og því sagði ég bara takk fyrir og lagði af stað,“ segir Siggi. Matarupplifunin er hugsuð jafnt fyrir Íslendinga og útlendinga og segir Siggi að framtakið hafi mælst vel fyrir. Sagt hefur verið að Food & Fun hafi breytt ímynd Íslands er- lendis sem matarþjóðar til hins betra og ganga má að því vísu að eitthvað spennandi sé á borðum þar sem Siggi er. „Við bjóðum að sjálfsögðu upp á besta hráefnið og gestirnir, jafnt inn- lendir sem erlendir, kunna vel að meta réttina,“ segir hann. Siggi er nýkominn frá Staf- angri í Noregi, þar sem hann hélt meðal annars fyrirlestur um Food & Fun. „Norðmenn hafa mikinn áhuga á að halda afbrigði af Food & Fun og ég boðaði fagnaðarerindið,“ segir hann. Fyrir tæplega ári var boðið upp á Food & Fun-hátíð í Turku í Finnlandi í fyrsta sinn og verður há- tíðin þar öðru sinni 30. september til 4. október. „Hátíðin þar heppnaðist ótrúlega vel í fyrra og áhuginn er ekki síðri núna, en samið hefur verið um að halda hana í Turku til 2017,“ segir Siggi. Hann verður í Skógum á laug- ardag, Laugarbakka 8. ágúst, Egils- stöðum 14. ágúst, Neskaupstað 15. ágúst og lýkur yfirreiðinni á Laugum í Sælingsdal laugardaginn 22. ágúst. Upplifun með Sigga Hall  Flakkar á milli Edduhótela og eldar fyrir gesti Morgunblaðið/RAX Matreiðslumeistarinn Siggi Hall með Bankastjóranum og Sigrúnu, skúlptúrum eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur, á Icelandair hótel Reykjavík Natura. Siggi er með sína rétti og skúlptúrarnir eru sérstaklega gerðir fyrir Icelandair. Siggi Hall hefur komið víða við á löngum ferli og matseðillinn tek- ur mið af því. „Matseðillinn er eins á öllum stöðunum, úr minni gömlu smiðju,“ segir matreiðslu- meistarinn. Boðið sé upp á mat- armikla laxasúpu, sem hann hafi gert fræga í Kjósinni á sínum tíma, og lambafillé með bláberjum og blóð- bergi úr Þingvalla- sveit, sem hann hafi boðið upp á á þjóðhátíðinni á Þingvöllum 1994. Síldarréttir meistarans séu á sínum stað sem og heit súkku- laðikaka með rommkúluís. „Þessir réttir eru í bókunum mínum og Stefán Viðarsson vildi endilega að ég hefði þá á mat- seðlinum,“ segir Siggi. „Þetta er klassískt og hefðbundið og afar gott. Við erum ekkert að flækja hlutina heldur höfum þá ein- falda.“ Úr smiðju meistarans SAMI MATSEÐILL Á ÖLLUM STÖÐUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.