Fréttablaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 8
norðurlöndin
1
2
3
Skipulagðar heimsóknir
ungbarna
1DANMÖRK Yfirvöld í Kaup-mannahöfn ætla að fara að dæmi
yfirvalda í Árósum og koma á fót
sérstökum ungbarnaheimsóknum
á heimili aldraðra vegna góðrar
reynslu. Aldraðir hafa lifnað við
þegar sett er ungbarn í faðm þeirra
og foreldrar í fæðingarorlofi telja
heimsóknirnar hafa jákvæð áhrif á
börnin. Um 100 ungbörn eru nú á
heimsóknaskrá hjá yfirvöldum.
Skráði sig í flokk
til að njósna
2NOREGUR Starfsmaður norska umhverfisflokksins skráði sig í
Sósíalíska vinstri flokkinn til að fá að-
gang að innri umræðusíðu flokksins
í því skyni að skoða uppbyggingu
hennar. Sósíalíski vinstri flokkurinn
hefur farið fram á að málið verði
tekið upp í miðstjórn umhverfis-
flokksins. Fulltrúi umhverfisflokksins
harmaði atburðinn og sagði hann
ekki skipulagðan.
Aðgerðir gegn
skattsvikurum
3 SVÍÞJÓÐ Fjármálaráðherra Sví-þjóðar, Magdalena Andersson,
kynnti í gær aðgerðir ríkisstjórnar-
innar gegn skattaflótta og peninga-
þvætti en nú taka 133 lönd þátt í
slíku. Lagt er til að lönd sem ekki
eru samvinnufús fari á svartan lista.
Stjórnin vill einnig að ráðgjafar í
skattamálum veiti upplýsingar eins
og tíðkast nú í Bretlandi og Banda-
ríkjunum.
Bretland Hagkerfið í Bretlandi yrði
tveimur prósentum stærra árið 2020
og fjórum prósentum stærra eftir
áratug ef Bretar yfirgæfu Evrópu-
sambandið.
Þetta er niðurstaða átta breskra
hagfræðinga sem í gær skiluðu
skýrslu um áhrif útgöngu Breta úr
Evrópusambandinu. Wall Street
Journal segir að með þessu séu hag-
fræðingarnir að bregðast við öðrum
skýrslum sem hafi sýnt þveröfuga
niðurstöðu.
Hagfræðingarnir líkja Evrópu-
sambandinu við garð sem er umluk-
inn girðingu. Þar séu settir íþyngj-
andi tollar og reglugerðir í kringum
innfluttar vörur og þjónustu. Hag-
fræðingarnir segja að með því að
yfirgefa Evrópusambandið fengi
Bretland tækifæri til þess að eiga
viðskipti við önnur ríki í heiminum
með tollum sem Alþjóðaviðskipta-
stofnunin ákveður.
Staða efnahagsmála er aðalátaka-
punkturinn í Bretlandi fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslu sem fram fer þann
23. júní næstkomandi um það hvort
Bretar skuli vera áfram í Evrópu-
sambandinu.
David Cameron, forsætisráðherra
Breta, er talsmaður þess að Bretar
verði áfram í sambandinu. Hann
telur að efnahagslegt öryggi Breta
sé best tryggt með áframhaldandi
aðild.
Margir hagfræðingar, til dæmis
hagfræðingar á vegum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD) og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, telja að
útganga úr ESB yrði skaðleg Bretum.
OECD sagði á miðvikudaginn að
útganga úr ESB myndi jafnast á við
aukaskatt á Breta.
Talsmenn útgöngu segja hins
vegar að úrsögn úr Evrópusam-
bandinu myndi losa Bretland undan
íþyngjandi reglugerðarverki og gera
breskum fyrirtækjum kleift að eiga
viðskipti við aðila á ört vaxandi
markaðssvæðum í heiminum.
Patrck Minford, prófessor í hag-
nýtri hagfræði við Cardiff-háskóla
í Wales, er einn af höfundum
skýrslunnar. Hann segir í samtali
við bandaríska blaðið Wall Street
Journal að matvælaverð myndi lík-
legast lækka í Bretlandi ef Bretar
stæðu utan Evrópusambandsins
vegna þess að þá myndu innflutn-
ingstollar minnka. Hagfræðingur-
inn Rogert Bootle bætir við að
talsmenn aðildar að Evrópusam-
bandinu ofmeti ábatann af aðild.
Hann bendir á að staða efnahags-
mála innan Evrópusambandsins
hafi verið slæm undanfarin misseri.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í síðustu viku að erfiðara
yrði fyrir Breta að ná fríverslunar-
samningi við Bandaríkin ef Bretar
yfirgæfu ESB. jonhakon@frettabladid.is
Segja breskt hagkerfi
vaxa meira utan ESB
Átta breskir hagfræðingar birtu skýrslu í gær þar sem þeir segja Evrópusam-
bandið íþyngja bresku atvinnulífi. Þeir líkja sambandinu við garð með girðingu
í formi tolla og reglugerða. Obama varar Breta aftur á móti við útgöngu.
Viðskipti Rekstrarhagnaður WOW
air án afskrifta á fyrsta ársfjórðungi
(EBITDA) var 680 milljónir króna
og jókst um milljarð milli ára, sam-
kvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu.
Rekstrarhagnaðurinn er meiri hjá
WOW en hjá Icelandair Group.
Samkvæmt afkomutilkynningu var
rekstrarhagnaður Icelandair Group
rétt undir 140 milljónum króna, en
var neikvæður um 281 milljón króna
í fyrra.
Hagnaður WOW air eftir skatta á
fyrsta ársfjórðungi var 400 milljónir
króna samanborið við 280 milljóna
tap á fyrsta ársfjórðungi árið 2015.
Tap Icelandair Group eftir skatta á
fyrsta fjórðungi var 2,1 milljarður en
var 1,8 milljarðar í fyrra.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW, er
ánægður með afkomuna. „Við höfum
vaxið hratt og það er ánægjulegt að
sjá hversu vel okkur hefur tekist að ná
frábærri nýtingu yfir vetrarmánuðina
þrátt fyrir meira en tvöföldun á fram-
boði,“ segir hann. Björgólfur Jóhanns-
son, forstjóri Icelandair Group, er líka
sáttur og segir að árið fari ágætlega
af stað. „Fyrsti fjórðungur ársins er
jafnan þungur í rekstri þar sem mikið
af kostnaði er gjaldfærður á fjórð-
ungnum sem tengist auknu umfangi á
háönn og er það því ánægjulegt að sjá
að EBITDA 1. ársfjórðungs er jákvæð í
fyrsta sinn síðan árið 2010,“ segir for-
stjórinn. – jhh
Meiri hagnaður hjá WOW en Icelandair
David Cameron hefur um nokkurra mánaða skeið reynt að fullvissa sitt fólk um að Bretlandi sé betur borgið innan Evrópusam-
bandsins. Í vikunni fékk hann stuðning frá Obama Bandaríkjaforseta. FréttaBlaðið/EPa
Skýrsluhöfundar segja
m.a. að matvælaverð myndi
lækka í Bretlandi og inn-
flutningstollar minnka ef
Bretar stæðu utan ESB.
680
milljónir króna var rekstrar-
hagnaður WOW á fyrsta
ársfjórðungi.
2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F ö s t u d a G u r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-6
F
3
8
1
9
4
1
-6
D
F
C
1
9
4
1
-6
C
C
0
1
9
4
1
-6
B
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K