Fréttablaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 22
„Hvað hefurðu nú gert
Grace?“ hugsaði hin 25 ára
gamla Grace Achieng þegar hún
ók í fyrsta sinn í gegnum hrjóstr-
ugt hraunið frá Keflavíkurflug-
velli til Reykjavíkur. Aðeins
stuttu áður hafði hún starfað á
hóteli í Kenía þar sem hún kynnt-
ist íslenskum víkingi eins og hún
kallar hann. Þau heilluðust hvort
af öðru og Grace hugsaði sig ekki
tvisvar um þegar hún gifti sig
með skömmum fyrirvara, án vit-
undar fjölskyldu sinnar. Hún yf-
irgaf heimalandið tveimur mán-
uðum síðar og hélt út í óvissuna.
„Þetta var mikil breyting og dálít-
ið áfall,“ segir Grace sem dvaldi
í tvo daga í Reykjavík áður en
stefnan var sett á Sauðárkrók þar
sem hún átti heima næstu mánuði
og starfaði við fiskvinnslu. En
ástin er fallvölt og fjaraði út eins
og verða vill. „Mér var ágætlega
tekið í bænum. Ég átti yndis legan
yfirmann sem kom því til leiðar
að ég eignaðist nokkra vini. Samt
leið mér eins og ég væri föst ofan í
holu umkringdri háum fjöllum og
kæmist ekki burt. Það var líklega
aðeins of mikið sjokk að koma úr
800 þúsund manna bæ í Kenía til
smábæjar með nokkuð þúsund
íbúa,“ segir Grace og brosir sínu
geislandi brosi.
Vaknaði til lífsins
í ReykjaVík
Hún flutti því til Reykjavíkur
og þar segist hún hafa vaknað
til lífsins á ný. „Mér datt aldr-
ei í hug að snúa aftur til Kenía.
Þar beið mín ekkert enda erf-
itt að fá þar vinnu,“ segir Grace
en öll hennar fjölskylda býr enn
í Kenía, foreldrar hennar og
systkinin sex.
Grace segir Keníabúa glað-
lynda þjóð. „Fólk er mjög opið
og vinalegt og ekki óalgengt að
maður bryddi upp á samræðum
við bláókunnugt fólk úti á götu.
Þegar ég reyndi það hér á Íslandi
var horft á mig eins og ég væri
pínu skrítin,“ segir hún og hlær.
Í Reykjavík vann Grace sem
þjónn á veitingahúsi og kunni
afar vel við það. „Það var mjög
líflegt starf, ég hitti margt
skemmtilegt fólk og alltaf var
eitthvað nýtt að gerast,“ segir
Grace sem lærði markaðsfræði
í Kenía. Hún lærði fljótlega að
skilja íslenskuna vel en langaði
til að læra að tala hana betur.
„Ég ákvað því að sækja um vinnu
í leikskóla þar sem ég neyddist
til að tala tungumálið,“ segir hún
á nánast fullkominni íslensku.
„Ég finn að mér gengur mun
betur að tala íslenskuna í dag en
ég þarf að æfa mig enn þá betur.“
HjaRtað á íslandi
Grace á fjögurra ára dóttur með
íslenskum manni. „Móðurhlut-
verkið er yndislegt en dóttir mín
er svo hlýðin og góð að hún gerir
mér lífið mjög auðvelt,“ segir
Grace sem er einhleyp í dag og
kann vel við það. „Núna tek ég
hlutunum rólega og einbeiti mér
að sjálfri mér og dóttur minni.“
Grace segist tala við Tönju
dóttur sína á svahili og ensku
sem er opinbert tungumál í Kenía.
„Hún svarar mér samt alltaf á ís-
lensku,“ segir hún glettin. Í sumar
ætlar hún að kynna dóttur sína
fyrir Kenía þegar hún fer þang-
að í frí. „Mig langar til að hún
sjái ættland mitt og hitti fjöl-
skyldu mína. Hún skilur ekkert
þegar ég er að tala um Kenía og
foreldra mína, finnst bara skrít-
ið að ég skuli eiga mömmu,“ segir
hún og hlær.
Grace segir að þó að Kenía
verði ávallt heimaland hennar hafi
Ísland unnið hug hennar og hjarta.
„Hér er heimili mitt. Hér fullorðn-
aðist ég og fann sjálfa mig. Ég þró-
aðist úr vitlausu stelpunni sem
stökk út í óvissuna í þá manneskju
sem ég er í dag. Íslenskt þjóðfélag
hefur einnig opnað augu mín fyrir
öðrum hugsunarhætti. Hér er fólk
kannski ekki mjög opið en það er
heiðarlegt í því sem það segir og
gerir, og fáir sem sýna falska vin-
áttu,“ segir Grace sem á í mjög
góðu sambandi við fjölskyldu
dóttur sinnar. „Ég held enn með
þeim jólin, allir koma saman til
að halda upp á afmælið hennar og
þegar ég er í vanda get ég leitað
til þeirra.“
Ómetanleg lífsReynsla
Grace hafði aldrei leitt hugann
að leiklist þegar vinkona hennar
fékk hana með sér í prufur fyrir
hlutverk Joy í þáttunum Ófærð.
„Ég ákvað að slá til og fór í prufu
hjá Selmu Björnsdóttur. Þar las
ég upp úr handriti og hreppti
hlutverkið, bara sisvona,“ segir
Grace glaðlega. Þremur mánuð-
um síðar hófust tökur á Siglufirði
sem stóðu í um sex mánuði. „Þetta
var frábær upplifun og reynsla.
Ég lærði mjög mikið af samleik-
urum mínum og ótrúlegt að sjá þá
setja sig í karakter. Ég lærði líka
af öllum fimm leikstjórum þátt-
anna sem gáfu mér góð ráð en svo
lærði ég líka mikið af sjálfri mér.
Það er erfitt að lýsa tilfinningunni
en þegar kveikt var á myndavél-
inni lifnaði persóna Joy innra með
mér sem var mjög áhugaverð upp-
lifun, nánast eins og sálfræðimeð-
ferð.“
Grace kynntist fjölmörgum
við tökurnar, bæði leikurum og
starfsfólkinu á tökustað. „Ég held
bestu sambandi við Ilmi enda
lékum við mikið saman.“ Innt
eftir eftirminnilegasta atriðinu
í þáttunum nefnir Grace atriðið
þegar Joy hleypur út úr hjólhýs-
inu og út í hríðarbyl. „Það þurfti
að taka þessa senu mörgum sinn-
um, það var mjög erfitt og kalt en
samt mjög skemmtilegt.“
dReymiR um leiklist
og tísku
Grace hreifst mikið af leiklist-
inni eftir hlutverk sitt sem Joy og
hefur mikinn áhuga á því feta sig
lengra á þeirri braut. „Ég reyni að
gera mig sýnilegri á Twitter og
Instagram, og fer í prufur þegar
þær bjóðast. Það væri gaman að
geta lært leiklist í framtíðinni en
annars tek ég hlutunum með ró
eins og er.“
Önnur ástríða Grace er tíska.
„Ég elska tísku og lít á sjálfa mig
sem stílista og hef unnið aðeins
sem slíkur. Í Kenía gerði ég mikið
af því að stílisera menningar-
og tískusýningar í skólanum og
fimmtán ára gömul var ég farin
út í rekstur þar sem ég keypti og
seldi föt,“ lýsir Grace. Hér á Ís-
landi hefur hún viðhaldið áhuga-
num og hefur meðal annars hann-
að tískulínu undir leiðsögn JÖR
sem hún hefur þó aldrei getað
fullunnið.
„Ég myndi mjög gjarnan vilja
fara í skóla til að læra um tísku
og hönnun. Ég elska að umbreyta
fólki með tísku og lít á það sem
nokkurs konar listform,“ segir
hún með blik í augum enda lítur
hún björtum augum til framtíðar.
solveig@365.is
Grace starfar á leikskóla í dag en dreymir um frekari frama á sviði leiklistar og tísku. Mynd/Ernir
Þetta var frábær
upplifun og
reynsla. Ég lærði mjög
mikið af samleikurum
mínum og ótrúlegt að sjá
þá setja sig í karakter. Ég
lærði líka af öllum fimm
leikstjórum þáttanna.
Grace Achieng
myndaalbúmið
Grace með Tönju, dóttur sinni.
Grace í hlutverki Joy.
Grace segist hafa lært mikið af samleikurum sínum. Hér er hún með Guðjóni
Pedersen.
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér i i
Veitingastaðir, kaffi hús
ísbúðir & booztbarir velja
Vitamix blandara
2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-5
1
9
8
1
9
4
1
-5
0
5
C
1
9
4
1
-4
F
2
0
1
9
4
1
-4
D
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K