Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2008, Síða 24
ætlunarverk sitt.29 Víst er að Gissur þýddi spekiritin Jesú Síraksbók og
Orðskviði Salómons, að mestu leyti úr lágþýsku. Spyrja má hvers vegna
hann hafi hafist handa þar - voru ekki aðrar bækur nærtækari? Ef til vill
liggja guðfræðilegar skýringar á þessu vali Gissurar í augum uppi, en mér
dettur í hug að það hafi meðal annars stjórnast af því að biblíutextar af
þessu tagi lágu ekki íyrir á íslensku. (Þetta eru ekki frásagnarbókmenntir
og höfðu því ekki höfðað til miðaldaþýðendanna). Nær óhjákvæmilegt er
að ætla að þeir Skálholtsmenn hafi haft vitneskju um eldri þýðingar: Eitt
aðalhandrit Stjórnar var á staðnum og í þessu sambandi má einnig nefna
að Jón Helgason sýndi fram á skyldleika Lúkasarguðspjalls í þýðingu Odds
og Jóns sögu baptista eftir Grím Hólmsteinsson.30 Ian Kirby taldi síðar að
þennan skyldleika bæri að túlka svo að þeir Grímur og Oddur hefðu báðir
notast við miðaldaþýðingu guðspjallanna.31 Hvernig sem því er farið, þá
bendir þetta til þess að þeir siðbótarmenn hafi lagt sig eftir að kanna eldri
þýðingar. Þegar þeir hófust sjálfir handa hafa þeir því ef til vill hugsað sér
að byrja á einhverju sem alls ekki lá fyrir í þýðingu. Og svo kann auðvit-
að líka að vera að siðferðilegur boðskapur spekiritanna hafi staðið hjarta
Gissurar nærri.
Ef við gerum ráð fyrir því að í þýðingarstarfi 16. aldar hafi menn fyrst
einbeitt sér að því efni sem ekki lá fyrir á íslensku kemur eitt handrit
okkur á óvart. Það var skrifað í Skálholti veturinn 1574-75 og á því eru
Spámannabækurnar (sami eða svipaður texti og Guðbrandur prentar í
biblíunni) - og uppskrift nýrrar þýðingar Makkabeabókanna. Sú þýðing
hefur aldrei gengið á þrykk en unnið er að útgáfu hennar á Árnastofnun.32
Hún er lítt þekkt, sjálfsagt mest fyrir það að handritið lenti til Englands
snemma á 19. öld fyrir tilstilli Ebenezers Henderson.33 Komið hefur í ljós
að þessi nýja þýðing Makkabeabókanna var að líkindum gerð úr dönsku
29 Páll Eggert Ólason. Menn og menntir siSskiptaaldarinnar á íslandi IV (Reykjavík: Bókaverzlun
Ársæls Árnasonar 1926), 373, sbr. Menn og menntir II, 556. Westergaard-Nielsen, To bibelske
visdomsboger, 147-148.
30 Jón Helgason, Málið á Nýja testamenti Odds, 193-194.
31 Kirby, Bible Translation in Old Norse, 100-101.
32 Að því hefur einkum unnið Karl Óskar Ólafsson, með fulltingi Svanhildar Óskarsdóttur og
Guðrúnar Kvaran.
33 Henderson flutti það með sér úr Islandsför sinni 1814 og það tilheyrir safni British and Foreign
Bible Society sem nú er varðveitt í háskólabókasafninu í Cambridge (BFBS ms. 251).
22
1