Fréttablaðið - 28.04.2016, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —9 9 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 2 8 . a p r Í l 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
skoðun Þórir Stephensen
skrifar um nafla Reykjavíkur. 24
sport Tekst Haukum að koma
úrslitaeinvíginu í oddaleik? 26
Menning Könnunarleiðangur til
KOI er nýtt leikrit sem er samið
og æft á aðeins einum mánuði.
34-38
plús 2 sérblöð l Fólk
l Heilsa og útivist
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
12 MANNA ÁSAMT FYLGIHLUTUM
YFIR 15 TEGUNDIR
VERÐ FRÁ KR.24.990
HNÍFAPARATÖSKUR
45 ÁRA
LAUGAVEGI 178 – SÍMI 568 9955
mmm...
og súkkulaði
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2
Alvarlegir höfuðáverkar
583
voru lagðir inn á gjörgæslu vegna
höfuðáverka 1999-2013.
36%
vegna falls á
jafnsléttu eða
undir tveimur
metrum
32%
vegna um-
ferðarslysa
72%
sjúklinga voru
karlar
18,2%
létust en fjöl-
margir þeirra
sem lifðu
fallið af búa
við skert
lífsgæði
40%
sjúklinga voru
undir áhrifum
áfengis
„Ég yfirgef sviðið sáttur. Sýningin var góð þótt handrit og leikrit hafi breyst í miðju verki,“ segir Hrannar Pétursson. Á fundi sem haldinn var með for-
setaframbjóðendum í Háskólanum í Reykjavík í gær dró hann forsetaframboð sitt til baka. Fréttablaðið/Vilhelm
Fólk er sem sagt
lífshættulega
slasað og lætur jafnvel lífið
eftir fall úr neðsta þrepi
eða á jafnsléttu.
Guðrún María Jónsdóttir læknir
HeilbrigðisMál Ný rannsókn á far-
aldsfræði höfuðáverka á Íslandi á
árunum 1999-2013 leiðir í ljós hlut-
fallslega fjölgun höfuðáverka hjá mið-
aldra fólki eftir fall á jafnsléttu.
„Áður fyrr voru þetta yngri einstak-
lingar með áverka eftir umferðarslys.
En nú er algengasta orsökin fyrir
höfuðáverka sjúklings sem leggst inn
á gjörgæslu fall úr lítilli hæð. Fólk er
sem sagt lífshættulega slasað og lætur
jafnvel lífið eftir fall úr neðsta þrepi
eða á jafnsléttu,“ segir Guðrún María
Jónsdóttir, sérnámslæknir í svæfingu
og gjörgæslu á Landspítalanum og
rannsakandi.
Rannsóknin sýnir marktæka
fækkun höfuðáverka í öllum aldurs-
flokkum fyrir utan fjölmennasta
hópinn sem er 36-65 ára. Guðrún
segir að með forvörnum í umferðinni,
hjálmanotkun og bílbeltanotkun auk
forvarna hjá elsta aldurshópnum
með göngugrindum og því að hafa til
dæmis ekki mottur á heimilum, hafi
náðst góður árangur. Aftur á móti sé
áhyggjuefni að þeim fjölgi hlutfalls-
lega sem fái alvarlega höfuðáverka á
miðjum aldri.
Miðaldra með áverka
eftir fall á jafnsléttu
Færri fá alvarlega höfuðáverka eftir umferðarslys en fleiri vegna falls úr lítilli
eða engri hæð. Fleiri sjúklingar eru undir áhrifum áfengis. Einnig gæti alvarleiki
áverka tengst lífsstíl. Margir deyja af völdum höfuðáverka eða lifa við fötlun.
Rannsóknin veitir ekki svör við
þessum breytingum en gefur ákveðn-
ar vísbendingar. Til að mynda eru
fleiri sem eru undir áhrifum áfengis.
Árið 1999 voru 22 prósent sjúklinga
með alvarlega höfuðáverka með
áfengi í blóðinu en þeir voru tæplega
fjörutíu prósent árið 2013.
Guðrún segir það vekja furðu hve
alvarlega höfuðáverka fólk á besta
aldri hlýtur eftir svo lágt fall, jafnvel
eftir að hafa eingöngu hrasað um
þröskuldinn heima hjá sér. „Ein til-
gáta sem vaknaði í gagnavinnslu er
aukin notkun blóðþynningarlyfja.
Að fólk hljóti alvarlegri áverka vegna
þess. Aukin notkun blóðþynningar-
lyfja tengist hjartasjúkdómum og
hjartsláttaróreglu, sem getur tengst
lífsstíl fólks.“
Höfuðáverkar hafa oft mjög alvar-
legar afleiðingar og um tuttugu pró-
sent sjúklinga deyja. Því segir Guðrún
forvarnir vera mikilvægasta vopnið
í baráttunni. „Samkvæmt þessum
niðurstöðum þyrfti því mögulega að
beina sjónum að forvörnum varðandi
áfengisdrykkju og lífsstílssjúkdóma,“
segir hún. – ebg
viðskipti Lífeyrissjóðir hafa lánað
mun hærri upphæðir til húsnæðis-
kaupa að undan förnu með beinum
hætti miðað við síðustu ár. Lífeyris-
sjóðirnir lánuðu nær fjórfalt meira
með sjóðsfélagalánum á fyrstu
tveimur mánuðum ársins miðað við
sama tímabil í fyrra. Sjóðsfélagalán
lífeyrissjóðanna námu 12 millj-
örðum króna frá byrjun desember
til loka febrúar, hærri upphæð en
lánuð var út til sjóðsfélaga allt árið
2014. – ih / sjá síðu 16
Breytingar á
íbúðamarkaði
dægurMál „Þetta hefur verið frá-
bært ferli, Hugmyndin kom þegar
ég var í fæðingarorlofi,“ segir Hanna
Ólafsdóttir, rithöfundur og fjöl-
miðlakona. Hún hefur lokið við að
skrifa bókina Fæðingarsögur.
„Konur hafa oft ákveðna hug-
mynd um fæðingar. Konur eiga auð-
vitað að vera ofurhetjur. Þær eiga að
stunda jóga, líta óaðfinnanlega út,
stunda fjallgöngur og vinna 150 pró-
senta vinnu fram að fæðingardegi.“
segir Hanna. – gj / sjá síðu 44
Ríkar kröfur
gerðar á konur
hanna Ólafsdóttir,
rithöfundur og
fjölmiðlakona
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
D
-9
E
D
4
1
9
3
D
-9
D
9
8
1
9
3
D
-9
C
5
C
1
9
3
D
-9
B
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K