Fréttablaðið - 28.04.2016, Qupperneq 2
Veður
Í dag er áfram spáð norðlægri átt
með snjókomu víða á norðanverðu
landinu, en þó ekki samfelldri norð-
vestan til. Sunnan til er víðast hvar
bjartviðri, og jafnvel heldur hægari
vindur. Kalt norðanlands, og hiti um
og undir frostmarki en hiti allt að 7
stig syðra yfir hádaginn. sjá síðu 30
Eldri borgarar læra af unga fólkinu
Nemendur við Menntaskólann á Akureyri tóku sér í gær hlé frá námi til þess að kenna meðlimum Félags aldraðra á Akureyri að nota tölvur, spjald-
tölvur og snjallsíma. Var þetta annar tíminn í þriggja tíma námskeiði. Mynd/Sverrir Páll
HÚSIÐ ER BYGGT ÚR STEYPTUM EININGUM OG REIST Á STAÐNUM.
SKIPULAG HÚSSINS: FJÖGUR SVEFNHERBERGI, STÓR OG BJÖRT STOFA,
RÚMGOTT ELDHÚS, STÓRT BAÐHERBERGI, FORSTOFA OG ÞVOTTAHÚS.
HITAVEITA ER Á STAÐNUM.
FULLBÚIÐ AÐ UTAN MEÐ SÓLPALLI OG RÚMLEGA FOKHELT AÐ INNAN.
BÚSTAÐURINN ER Í LANDI ÁSATÚNS, ÞVERLÁG 11, 845 FLÚÐIR.
Til sölu glæsilegt 118 fm heilsárshús
á Flúðum með stórkostlegu útsýni
NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA KÁRI INGÓLFSSON Í SÍMA 898 5878
EÐA STEINAR JÓNSSON Í SÍMA 898 5254
VERÐ 27,9 m.
Könnun Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, nýtur yfirburða-
stuðnings landsmanna, samkvæmt
nýrri könnun MMR. Hann mælist
með 52,6 prósenta fylgi.
Sá sem næst kemst Ólafi sam-
kvæmt könnuninni er Andri Snær
Magnason og mælist með 29,4
prósenta fylgi. Halla Tómasdóttir
mælist með 8,8 prósenta fylgi en
fylgi annarra frambjóðenda mælist
undir 2 prósentum.
Þegar fylgi þriggja efstu fram-
bjóðendanna er skoðað eftir sam-
félagshópum kemur í ljós að Ólafur
Ragnar Grímsson hefur hlutfalls-
lega meira fylgi á landsbyggðinni,
auk þess sem þeir sem hafa minni
menntun og lægri tekjur eru líklegri
til að kjósa Ólaf.
Þeir sem tekjuhærri eru og með
aukna menntun, sem og fólk sem
búsett er á höfuðborgarsvæðinu,
eru líklegastir til að vera fylgjendur
Andra Snæs Magnasonar.
Könnunin var gerð dagana
22. til 26. apríl og tóku alls 953 þátt
í henni. – þv
Ólafur Ragnar
með mest fylgi
AusturríKi Austurríska þingið sam-
þykkti í gær hert lög um móttöku
hælisleitenda. Lögin heimila að hælis-
leitendum sé hafnað þegar í stað, áður
en þeir koma inn fyrir landamærin.
Þá hafa ráðamenn einnig sagst vera
að íhuga byggingu girðingar á landa-
mærum Austurríkis og Ítalíu. Lögin
heimila ríkisstjórninni þar að auki að
lýsa yfir neyðarástandi vegna mikils
fjölda flóttamanna.
Innanríkisráðherrann Wolfgang
Sobotka sagði Austurríki ekki eiga
neinna annarra kosta völ. „Við getum
ekki borið byrði alls heimsins á herð-
um okkar.“
Matteo Renzi, forsætisráðherra
Ítalíu, hefur hins vegar lýst sig and-
vígan hugmyndum um byggingu
girðingar og sagt hana ganga gegn
evrópskum lögum og hættulega fyrir
framtíð álfunnar.
Níutíu þúsund flóttamenn sóttu
um hæli í Austurríki á síðasta ári.
Aðeins eitt ríki fékk fleiri umsóknir
ef miðað er við höfðatölu. – þea
Herða lög um
hælisleitendur
LögregLumáL „Þessi maður er and-
lit Níkaragva. En ég get ekki leyft
honum að komast upp með þetta,“
segir Heiðrún Mjöll Bachmann,
21 árs stúlka sem er au pair hjá
íslenskri fjölskyldu í Mið-Ameríku-
landinu Níkaragva. Hún hefur kært
manninn, sem nýlega var krýndur
herra Níkaragva og er stjarna í land-
inu, fyrir nauðgun.
Heiðrún fór með manninum í
partí á fimmtudag þar sem hún
fékk sér drykk. Hún telur að sér hafi
verið byrlað lyf því að það næsta
sem hún veit er hún rankar við sér
inni á hótelherbergi.
„Þá nauðgar hann mér. Ég reyndi
að ýta honum í burtu og sagði nei
og bað hann að hætta, en var svo
máttlaus.“
Heiðrún kærði manninn á föstu-
dag og hefur síðan þá þvælst á milli
lögreglustöðva, heilsugæslu, farið í
sálfræðimat og viðtöl.
„Það er alltaf verið að fresta við-
tölum, segja mér að fara á aðra staði
eða láta mig bíða. Maðurinn hefur
ekki enn verið handtekinn en hér
er vaninn að menn séu handteknir
um leið og kæra er lögð fram hjá lög-
reglu,“ segir Heiðrún og bætir við að
hún hafi fengið að heyra alls kyns
athugasemdir sem eru afar gamal-
dags og sýna að það sé verið að
reyna að varpa ábyrgðinni á hana.
„Lögreglukonan spurði mig
hversu stuttu pilsi ég hefði verið
í og hversu marga drykki ég hefði
drukkið. Ég taldi það upp. Þá spurði
hún mig hvort ég drykki vanalega
svona mikið og hvað ég hefði gert til
að leiða hann áfram í samskiptum
okkar.“
Heiðrún vill vekja athygli á stöð-
unni úti og þeirri sérmeðferð sem
maðurinn virðist fá. „Ég fer heim
eftir 22 daga og verð að bera vitni
fyrir dómara áður en ég fer, annars
fellur málið niður. Það er eins og
það sé verið að reyna að láta þann
tíma líða.“
Lögmaður Heiðrúnar sagði í sam-
tali við Fréttablaðið að lögreglan færi
að öllu með gát í málinu og segði frá-
sögn Heiðrúnar ekki næga sönnun.
Þar af leiðandi bindur hann vonir við
niðurstöður úr eiturefnaprófi. Ekki
náðist samband við lögregluyfirvöld
í Níkaragva við vinnslu fréttarinnar.
erlabjorg@frettabladid.is
Hefur lagt fram kæru
gegn herra Níkaragva
Ung íslensk stúlka sem er au pair í Níkaragva lagði fram kæru á föstudag vegna
nauðgunar. Maðurinn hefur ekki enn verið yfirheyrður eða handtekinn. Hún
segir samfélagið vera gamaldags og að ekki bæti úr skák að maðurinn sé frægur.
Heiðrún segir opna umræðu á Íslandi hafa veitt sér kraft undanfarna daga.
Lögreglukonan
spurði mig hversu
stuttu pilsi ég hefði verið í og
hversu marga drykki ég hefði
drukkið.
Heiðrún Mjöll Bachmann
visir.is Lengri útgáfa af greininni
er á Vísi
Fátt virðist ógna sitjandi forseta í kom-
andi kosningum. Fréttablaðið/ernir
53%
er fylgi Ólafs Ragnars Gríms-
sonar í nýrri könnun MMR.
2 8 . A p r í L 2 0 1 6 F i m m t u D A g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t A B L A ð i ð
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
D
-A
3
C
4
1
9
3
D
-A
2
8
8
1
9
3
D
-A
1
4
C
1
9
3
D
-A
0
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K