Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 12
Það verður dýrara að kaupa erlend­ an gjaldeyri í útibúi Arion banka á Keflavíkurflugvelli sem opnað verð­ ur sunnudaginn 1. maí en í öðrum útibúum bankans. Hægt verður að sjá á vef bankans hver verðmunur­ inn er hverju sinni, að því er Hlynur Ómar Björnsson upplýsingafulltrúi greinir frá. Hann segir dýrt að vera með útibú á Keflavíkurflugvelli auk þess sem það kosti að hafa afgreiðsl­ una opna allan sólarhringinn. Það fer auðvitað eftir því hvernig ferðamenn ætla að haga ferðalagi sínu hvort þeir gefa sér tíma til að bera saman þær mismunandi teg­ undir gengis sem eru í umferð og þar með mögulega spara umtals­ verðar fjárhæðir. Á vef Landsbankans sést til dæmis að á hverjum tíma eru í raun nokkr­ ar ólíkar tegundir gengis í umferð. Seðlagengi, Leifsstöðvargengi, almennt gengi og kortagengi er það sem ferðamenn þurfa að skoða vilji þeir og nenni að gera samanburð. Meta þarf til dæmis hvort ferð í banka áður en haldið er til Kefla­ víkur borgar sig þegar kaupa á gjald­ eyri eða hvort nýta eigi sér þægindin sem felast í því að kaupa gjaldeyrinn á Keflavíkurflugvelli. Þegar greitt er með debetkorti erlendis er miðað við almennt gengi auk 1% gjalds af upphæð­ inni og debetkortafærslugjalds sem er tæpar 20 krónur. Miðað er við kortagengi þegar greitt er með kreditkorti. Þjónustugjald Landsbankans, Arion banka og Íslandsbanka vegna úttektar með debetkorti í hraðbanka erlendis er 2% af upp­ hæðinni. Þjónustugjald bankanna vegna úttektar með kreditkorti, Master­ card og VISA, í hraðbanka erlendis er frá 2,5% til 2,75% af upphæðinni. Lágmarksþóknunin er frá 440 krón­ um upp í 800 krónur. Það getur þess vegna verið dýrt að taka út lágar upphæðir. Af framangreindu sést að það er ódýrara að nota debetkort en kredit­ kort í hraðbönkum erlendis þar sem úttektargjaldið er lægra þegar tekið er út reiðufé með debetkorti. Dýrt að taka út lágar upphæðir í hraðbönkum erlendis Gefi ferðamenn sér tíma til að bera saman mismunandi tegundir gengis geta þeir mögulega sparað talsvert. Landsbankinn Íslandsbanki Arion banki Debetkort Úttekt í hraðbanka erlendis, þóknun 2% af upphæðinni 2% af upphæðinni 2% af upphæðinni Greitt með debetkorti erlendis 1% af upphæðinni 1% af upphæðinni 1% af upphæðinni Kreditkort Erlend úttekt reiðufjár, þóknun VISA 2,75% Mastercard 2,5% 2,75% 2,75% Erlend úttekt reiðufjár, lágmarksþóknun VISA 800 kr. VISA 690 kr. VISA 690 kr. Mastercard 440 kr. Mastercard 690 kr. ✿ Þjónustugjöld bankanna vegna debet- og kreditkorta Ódýrara er að nota debetkort en kreditkort í hraðbönkum erlendis þar sem út- tektargjaldið er lægra þegar tekið er út reiðufé með debetkorti. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Ráð Matur App Kass Á að geyma brauð í plastpoka, brauðkassa, ísskáp eða í frysti? Á vef Myllunnar segir að almennt sé talað um að best sé að geyma brauð við stofuhita því þá sé hægt að hægja á ummyndun sterkju í brauðinu í kristalla en við þá ummyndun verði brauðið hart. Mikilvægt sé að nota umbúðir framleiðandans og loka brauðpok- anum vandlega aftur þegar geyma á brauðið. Sé lítið af brauði notað í einu geti hins vegar borgað sig að frysta brauðið og þíða nokkrar sneiðar eftir þörfum. Á norskum vef er haft eftir bakara að gott sé að vefja hreinni diska- þurrku utan um nýtt brauð og geyma það þannig eða í brauðkassa. Hann bendir jafnframt á að brauð þorni fyrr sé það sneitt. Þannig geymist brauðið best Hannes Óli Ágústsson leikari er nægjusamur þegar kemur að græj­ um, að því er hann greinir frá. „Ég er með ódýrustu týpuna af snjallsíma. Ég þarf ekki meira,“ segir hann. Hann komst líka að því að það var ekki erfitt að leggja sjónvarpinu sem hann átti. „Ég átti lengi túbusjón­ varp sem ég keypti fyrir fermingar­ peningana mína. Þegar ég byrjaði með kærustunni minni var hún mótfallin því að fá það. Hún hélt að ég myndi horfa svo mikið á það en ég er ekki mikið fyrir sjónvarpsgláp svo að það var ekki erfitt að leggja sjónvarpinu. Ég er með stóran skjá á tölvunni og horfi á kvikmyndir í henni. Sjónvarp er ekki nauðsyn­ legt á heimilið en umræðan kemur reyndar alltaf upp öðru hverju. Mér þykir hins vegar gaman að fara í bíó.“ Hannes á ekki bíl og ferðast þess vegna mikið á hjóli á sumrin en notar annars yfirleitt strætó. „Ég bý á Laugalæk og mér finnst það afslapp­ andi og þægilegt að taka strætó. Ég hef aðgang að bíl í fjölskyldunni og fæ að nota hann einn og einn dag ef það koma miklar tarnir.“ – ibs Neytandinn Hannes Óli Ágústsson leikari Eyðir ekki miklu í tæki og tól Það er afslappandi og þægilegt að ferðast með strætó, að mati Hannesar Óla. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ég átti lengi túbusjónvarp sem ég keypti fyrir fermingarpeningana mína. Þegar ég byrjaði með kærustunni minni var hún mótfallin því að fá það. Þeir sem eru á ferð erlendis eru æ oftar spurðir að því hvort þeir vilji greiða með greiðslukorti í sínum eigin gjaldmiðli í stað gjaldmiðils viðkomandi lands. Á vef Lands­ bankans er bent á að greiðsla sem samþykkt er með þessum hætti sé ekki háð sveiflum á gengi frá þeim tíma sem færslan er staðfest og þangað til upplýsingar um færsluna berast til kortaútgefanda eins og venja er hérlendis. Engar reglur eru þó til um hámarksþóknun og hámarks­ greiðslur fyrir þessa þjónustu. Upp hafi komið tilvik þar sem álag og þóknanir séu algjörlega úr takti við það sem eðlilegt geti talist. Erfitt og jafnvel ómögulegt geti reynst fyrir korthafa að bregðast við slíku eftir á enda hafi hann samþykkt skilmálana með því að slá inn pin­ númerið sitt. Greint er frá dæmi þar sem gengið var 290 íslenskar krónur fyrir evru í slíkum viðskiptum. VISA­gengi á evru sama dag hafi verið um 148 krónur. ibs@frettabladid.is Neytandi á rétt á úrbótum vegna galla óháð því hvar hann lætur þjónusta bíl sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Neytendum ber engin skylda til að fara með nýja bíla í reglulegar þjón­ ustuskoðanir hjá umboðinu til að viðhalda rétti sínum komi til galla. Á þetta er bent á vef Neytendasam­ takanna. Þegar keypt er ný bifreið á neyt­ andi rétt á úrbótum vegna galla óháð því hvar hann lætur þjónusta bíl sinn. Þannig er ekkert sem kemur í veg fyrir að farið sé með bifreiðar annað en til umboðsins í smurningu og skoðanir. Tekið er fram að gott viðhald og reglulegt eftirlit bifreiða sé mikilvægt enda leiði það til betri endingar. Komi upp galli geti það veikt rétt­ arstöðu neytandans hafi hann ekki sinnt eðlilegu viðhaldi. Kvörtunarfrestur vegna galla er almennt tvö ár, en getur verið fimm ár vegna hluta sem ætlaður er veru­ lega lengri endingartími en almennt gerist, og getur það átt við um ýmsa íhluti bifreiða. Umboð geta þannig ekki neitað kaupanda um úrbætur vegna galla þótt bifreið hafi verið þjónustuð á öðru verkstæði, lögbundinn rétt má einfaldlega ekki skilyrða með slíkum hætti. Hins vegar má skilyrða viðbót­ arábyrgð, eins og ábyrgð á lakki í tíu ár eða lengri ábyrgð en tveggja ára á slithlutum, með því að komið sé í þjónustuskoðun hjá umboði. – ibs Engin skylda að láta skoða hjá umboðinu Kass er app sem allir sem nokkurn tímann skipta kostnaði með fjöl- skyldu og vinum geta nýtt sér. Með Kass geturðu sent rukkun á viðkom- andi eða endurgreitt viðkomandi, til dæmis ef skipulagt er matarboð og einn kaupir inn fyrir hópinn. Oft getur verið óþægilegt að rukka vin um greiðslu, sérstaklega í annað skipti, en þarna geturðu einfaldlega sent rukkun án þess að roðna. Það eru ekki allir með greiðslu- upplýsingar eða kennitölur hver annars í höfðinu og með appinu sleppur maður við að þurfa að leggja þær á minnið. Með því að nota appið geturðu sparað peninga með því að minnka líkurnar á að þurfa að bera meirihluta kostnaðar af því sem þú leggur út fyrir fyrir stærri hóp. Íslandsbanki er eigandi Kass og ábyrgist allar færslur sem gerðar eru í samræmi við skilmála Kass. Hugbúnaðurinn á bak við Kass er hannaður af hugbúnaðarhúsinu Me- mento en lausnin hefur verið útfærð í samstarfi bankans og Memento. neytenduR 2 8 . A p r Í L 2 0 1 6 F I M M T U D A G U r12 F r é T T I r ∙ F r é T T A B L A ð I ð 2 8 -0 4 -2 0 1 6 0 3 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 3 D -E D D 4 1 9 3 D -E C 9 8 1 9 3 D -E B 5 C 1 9 3 D -E A 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.