Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 25
fólk kynningarblað 2 8 . a p r í l 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r Ásgerður Jóna Flosadóttir er hug­ myndasmiður og stofnandi Fjöl­ skylduhjálparinnar ásamt fjórum öðrum konum. Þær eru Guðrún Magnúsdóttir, Anna Auðunsdóttir, Ragna Rósantsdóttur og Guðbjörg Pétursdóttir. Allar höfðu þær mikla reynslu af sjálfboðastörfum í góð­ gerðarstarfi. Ásgerður segir að í fyrstu hafi þær sett starfsemina á laggirnar til að úthluta fatnaði til þeirra sem áttu erfitt í samfélaginu. „Fljótlega byrjuðu fyrirtæki að gefa okkur matvæli og með því þró­ aðist starfsemin. Á síðasta ári út­ hlutuðum við 21 þúsund matar­ gjöfum þannig að þörfin er gríðar­ lega mikil. Árin þar á undan voru matargjafirnar yfir 30 þúsund. Allir sem leita til okkar fá aðstoð ef við­ komandi uppfyllir skilyrðin,“ segir Ásgerður sem hefur lagt metnað sinn og allan vinnukraft ásamt fjöl­ mörgum sjálfboðaliðum í að hjálpa fólki, jafnt með mat og fatnað. Hún segir þörfina ekki hafa minnkað þótt rætt sé um uppgang í þjóðfélag­ inu. „Mér finnst sérstaklega sárt að sjá hversu mörg fátæk börn eru á Íslandi. Sjálfboðaliðarnir hjá Fjöl­ skylduhjálp Íslands eru frábærir og vinna kraftaverk á hverjum degi.“ NauðsyNlegt fjáröfluNarstarf Fjáröflunarstarf Fjölskylduhjálp­ ar Íslands er stór þáttur í rekstrin­ um. Fyrirtæki gefa ekki jafn mik­ inn mat og áður en gefa það sem þau geta. Fjölskylduhjálpin þarf því að kaupa mikinn hluta þeirra mat­ væla sem hún síðan gefur fátækum. „Ætli við kaupum ekki 70% af því sem við gefum,“ útskýrir Ás­ gerður. „Sem dæmi þá kaupum við eitt tonn af kartöflum, hátt í þús­ und lítra af mjólk og tvö til þrjú þúsund epli fyrir hverja úthlutun. Til þess að við getum keypt mat erum við með sölu á nýjum og not­ uðum fatnaði. Kannski vita ekki allir að við erum með þrjá styrkt­ armarkaði, flytjum inn flottar tískuvörur sem við seljum á mjög hagstæðu verði. Þetta eru föt fyrir börn, jafnt sem fullorðna,“ segir Ásgerður og bendir á fallega vöru á styrktarmarkaðinum í Iðufelli. „Hingað geta allir komið og verslað á kostakjörum og um leið styrkt gott málefni. Við erum til dæmis með flottar leggings fyrir konur, peysur og kjóla. Þá bjóðum við afar fallegan ungbarnafatnað sem hentar vel til gjafa. Herra bóm­ ullarbolir hafa sömuleiðis verið vinsælir en þeir kosta ekki nema 990 krónur. Við leggjum ekki mikið á vörurnar svo við teljum okkur bjóða mjög góð verð,“ segir Ás­ gerður en sjón er sögu ríkari þegar komið er inn í markaðinn. Duglegir að gefa okkur NotaðaN fatNað „Í styrktarmörkuðum okkar eru líka á boðstólum notuð föt en sjálf­ boðaliðar sjá um að flokka þau og þvo, ef með þarf, þannig að þau eru afhent hrein og fín. Þegar starfsemin flutti úr Eskihlíð í Iðu­ fell árið 2013 urðu þáttaskil hjá okkur. Öll aðstaða er núna miklu betri fyrir skjólstæðinga og vinnu­ skilyrði sjálfboðaliða allt önnur. Þeir sem leita eftir aðstoð hjá Fjöl­ skylduhjálp Íslands eru öryrkjar, atvinnulausir, einstæðar mæður og feður, eldri borgarar, lágtekju­ fólk og einstæðingar. Þá hefur auk­ ist mikið að fólk með stöðu hælis­ leitenda og flóttafólk leiti til Fjöl­ skylduhjálparinnar.“ Holl og góð matvæli „Hingað kemur fólk daglega í mik­ illi neyð og leitar eftir aðstoð með mat og fatnað. Síðan erum við með tvær risastórar matarúthlutanir í mánuði og oft fleiri, fer eftir getu okkar varðandi innkaup á mat­ vælum. Þá koma hingað hátt í tvö þúsund manns. Við höfum leyfi til að fletta fólki upp og kanna stöðu þess. Með því getum við fylgst með hvort fólk sé í þörf fyrir aðstoð. Það er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir misnotkun. Við leyfum síðan fólki að velja sér matvæli eftir því hvað við höfum á boðstólum hverju sinni. Það er misskilningur að fólki sé réttur poki með ákveðnum mat­ vælum,“ segir Ásgerður og bætir við: „Við skömmtum ekki útrunna vöru. Ef við eigum vörur sem eru að renna út á söludegi eða útrunn­ ar látum við þær liggja frammi og fólk getur tekið ef það vill. Sú vara klárast alltaf. Við viljum gefa holla og góða vöru.“ góður stuðNiNgur „Myllan hefur verið frábær stuðn­ ingsaðili og gefur okkur nýbak­ að brauð, Bakarameistarinn og Björnsbakarí hafa sömuleiðis gefið okkur brauð og bakkelsi. Sölufélag garðyrkjumanna hefur gefið tóm­ ata, kál og gúrkur. Veitingastaður­ inn Eldum rétt færir okkur reglu­ lega grænmeti. Mjólkursamsalan hefur gefið okkur það sem þeir geta ekki endurframleitt úr, til dæmis jógúrt, skyr og margt fleira sem kemur sér mjög vel. Papco styður okkur með pappírsvörum og versl­ unin Iceland gefur okkur alla hald­ poka. Þessi stuðningur er ómetan­ legur. Við kaupum hins vegar mikið af súrmjólk, smjöri og mjólk frá MS,“ útskýrir Ásgerður sem segist hafa miklar áhyggjur af hækkun gjalda í heilbrigðisþjónustu. „Hingað leita margir sem hafa ekki efni á lyfjum. Það er skelfi­ legt að fylgjast með þeim hópi. Við erum í samstarfi við Árbæjar­ apótek, þeir afgreiða lyfin sem við kaupum fyrir skjólstæðinga í neyð og senda okkur reikninginn. Við staðgreiðum allt sem við kaupum og skuldum ekkert.“ Hárgreiðslustofa Í Iðufelli er boðið upp á klipp­ ingu alla miðvikudaga fyrir þá sem þurfa. „Heilu fjölskyldurn­ ar koma til okkar fyrir jólin og aftur á vorin. Við tökum ekkert frá öðrum stofum þar sem þetta fólk hefur ekki efni á að sækja þær. Frida Pedersen sem er hár­ greiðslumeistari á eftir­ launum hefur sinnt þessari fjáröfluNiN er mjög mikilvæg Kynning Fjölskylduhjálp Íslands hefur verið starfandi í þrettán ár í haust. Starfið hefur verið farsælt og veitt þúsundum hjálp sem á þurfa að halda. Fjölskylduhjálpin er með þrjár starfsstöðvar, í Iðufelli 14 í Breiðholti, Hamraborg í Kópavogi og á Baldursgötu 14, Reykjanesbæ. Fjáröflun er stór þáttur starfseminnar með hjálp fólksins í landinu. Fjölskylduhjálpin selur ný og notuð föt til styrktar starfseminni. Kaupa þarf inn 70% af allri þeirri matvöru sem síðan er gefin fátækum. Ásgerður Jóna Flosadóttir og Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir með falleg ungbarnaföt sem þær flytja inn og selja til styrktar starfinu. MYNDIR/ERNIR Úthlutun 16. og 17. mars sl. l Matargjafir voru 1.065 l Íslenskir fullorðnir borgarar voru 400 l Einstaklingar með íslenska kennitölu en erlendir ríkis- borgarar voru 278 l Börn sem bjuggu á þessum heimilum voru 365 l Flóttafólk, hælisleitendur, fólk með stöðu hælisleitanda og einstaklingar með dvalarleyfi voru 22 2 8 -0 4 -2 0 1 6 0 3 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 3 D -E 3 F 4 1 9 3 D -E 2 B 8 1 9 3 D -E 1 7 C 1 9 3 D -E 0 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.