Fréttablaðið - 28.04.2016, Side 32
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Bryndís Hauksdóttir| bryndis@365.is | s. 512-5000
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
Langur og farsæll ferill landsliðs-
mannsins og KR-ingsins Helga Más
Magnússonar er nú senn á enda. Í
kvöld eða næsta laugardag mun
hann að öllum líkindum leika sinn
síðasta körfuboltaleik á ferlinum
þegar úrslitakeppninni milli KR
og Hauka lýkur og að sjálfsögðu er
markmið hans að kveðja með stóra
titlinum. Helgi, sem verður 34 ára
síðar á árinu, á að baki 12 landsleiki
með drengja- og unglingalandslið-
um Íslands og tæplega 100 A-lands-
leiki.
Hann hóf ungur að stunda íþrótt-
ir, fyrst hand- og fótbolta en körfu-
boltinn bættist síðar við. Íþróttir
léku stórt hlutverk í uppeldi Helga
og bræðra hans en hann á einn
yngri bróður, Finn Atla, sem spil-
ar með Haukum og annan eldri,
Guðmund, sem lék áður með KR.
„Okkur var ekki þröngvað í íþrótt-
ir af foreldrum okkar. Þau voru
bæði á fullu í íþróttum á sínum
tíma og stýrðu okkur þangað til
að byrja með. Svo studdu þau vel
við bakið á okkur þegar þau sáu að
áhugasvið okkar lá þarna.“ Foreldr-
ar Helga spiluðu bæði handabolta á
yngri árum og lék faðir hans m.a.
nokkra landsleiki. „Það átti óneit-
anlega stóran þátt í íþróttaáhuga
okkar bræðranna.“
NBA-æðið breytti öllu
Þrátt fyrir að hafa spilað allan
körfuboltaferilinn heima með KR
er Helgi uppalinn Víkingur. „Pabbi
er gallharður Víkingur og sá til
þess að fyrstu skrefin í íþróttum
væru stigin þar. Það var ekki fyrr
en NBA-æðið rann á landann að
við bræðurnir eltum eldri drengi í
Laugarneshverfinu á körfuboltaæf-
ingar hjá KR. Það voru engar körfu-
boltaæfingar í boði hjá Víkingum
og því æxlaðist það þannig að ég og
bræður mínir ólumst upp sem KR-
ingar á körfuboltavellinum.“
Markmiðin voru háleit á ung-
lingsárunum og var stefnan sett á
NBA, bandarísku atvinnumanna-
deildina í körfubolta, sem var og
er langsterkasta deild í heimi. „Ég
ætlaði auðvitað í NBA þar sem ég
ætlaði að láta til mín taka. Þeir sem
höfðu mest áhrif á mig fyrir utan
hetjurnar hér heima og í NBA voru
þjálfararnir mínir upp yngri flokk-
ana. Það voru helst þeir Benedikt
Guðmundsson og Ingi Þór Stein-
þórsson, tveir frábærir þjálfarar.
Án þeirra veit ég hreinlega ekki
lífið snerist um körfubolta
Á löngum körfuboltaferli hefur Helgi Már Magnússon unnið fjölda titla, spilað erlendis og leikið gegn nokkrum af bestu leikmönnum
Evrópu með íslenska landsliðinu. Á næstu dögum lýkur ferlinum hér heima og fjölskyldan tekst á við nýjar áskoranir í Bandaríkjunum.
Helgi már magnússon, körfuknattleiksmaður með Kr. mynd/StefÁn
hvort ég hefði endað í körfunni.
Metnaðurinn og krafturinn í þeim
smitaði út frá sér og gerði það að
verkum að lífið hjá mér snerist um
körfubolta.“
Óvæntar breytingar
Leið Helga lá snemma til Banda-
ríkjanna. Fyrst eyddi hann einu
ári sem skiptinemi við Westmin-
ister Academy-framhaldsskólann í
Flórída. Seinna nam hann og spilaði
körfubolta með Catawba-háskólan-
um í North Carolina. „Ég var mjög
heppinn með prógramm sem skipti-
nemi en í liðinu voru góðir þjálf-
arar og hörkuspilarar sem komu
héðan og þaðan. Þar á meðal var
Jakob Örn Sigurðsson landsliðs-
maður. Það var ofboðslega gott að
hafa Kobba með sér enda töluverð-
ur menningarmunur á Menntaskól-
anum við Sund og kristnum einka-
skóla í Flórída.“
Eftir ársdvöl ytra kom Helgi
aftur heim og hélt námi áfram
við MS. „Ég er þakklátur fyrir að
hafa komið heim og fengið að upp-
lifa menntaskólann ögn betur enda
skemmtilegur tími sem ég hefði
ómögulega viljað missa af.“
Lífið getur þó breyst með
skömmum fyrirvara og áður en
Helgi vissi af var hann aftur á leið
til Bandaríkjanna, nú í Catawba-
háskólann. „Þetta gerðist allt mjög
snögglega. Ef ég man rétt þekkti
Friðrik Ingi, þáverandi landsliðs-
þjálfari, til þjálfarans í skólanum
og benti á mig. Kann ég honum
bestu þakkir fyrir. Aðstæðurnar
úti til íþróttaiðkunar voru mjög
góðar og töluvert ólíkar þeim sem
ég var vanur heima.“ Að loknu námi
lék Helgi eitt ár sem atvinnumað-
ur í Sviss áður en hann sneri heim
árið 2007 og hóf að leika með KR.
Hann segir að sér hafi staðið til
boða að vera lengur en á þessum
tímapunkti var hann nýbúinn að
kynnast verðandi eiginkonu sinni
auk þess sem flott umgjörð hjá KR
heillaði hann líka.
Titlar og liðsfélagar
Aðspurður hvað standi upp úr á
ferlinum nefnir hann alla titlana
en ekki síður liðsfélagana og allt
það góða fólk sem starfar í kring-
um klúbbinn. „Það er ótrúlega vel
haldið utan um þetta hjá KR og
gaman að æfa og spila í þessu um-
hverfi.“ Árangur landsliðsins á
EM í fyrra er einn af hápunktum
ferilsins þar sem liðið lék á móti
nokkrum af sterkustu landsliðum
heims, m.a. Spáni og Serbíu. „Auð-
vitað var þetta súrrealísk og geggj-
uð upplifun, að keppa gegn öllum
þessum stórstjörnum. En það sem
stendur upp úr fyrir mér var að
fá að upplifa þetta með æskuvini
mínum, Jóni Arnóri Stefánssyni,
ásamt mörgum strákum sem eru
góðir vinir mínir í dag. Kjarninn í
þessum hópi hefur verið spila með
eða hverjir gegn öðrum frá því við
vorum 12 ára gamlir.“
Nýjar áskoranir
Þótt körfuboltaferlinum ljúki á
næstu dögum taka engin rólegheit
við hjá Helga og fjölskyldu hans. Í
næsta mánuði sameinast fjölskyld-
an í Washington-borg í Bandaríkj-
unum þar sem eiginkona hans, Guð-
rún Sóley Gunnarsdóttir, hagfræð-
ingur og fyrrverandi landsliðskona
í knattspyrnu, hóf nýlega störf hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem ráð-
gjafi framkvæmdastjóra á skrif-
stofu Norðurlanda og Eystrasalts-
ríkja. „Þegar Gunnu var boðið þetta
starf fannst okkur þetta einfaldlega
vera tækifæri sem við gátum ekki
sleppt. Við munum dvelja þar í um
tvö og hálft ár. Það er ekki alveg
komið á hreint hvað ég geri en það
verður annaðhvort vinna eða nám.
Fyrst og fremst mun ég sinna fjöl-
skyldulífinu af fullum krafti en við
hjónin eigum tvo unga syni, þá Ara
Má 4 ára og Einar Atla 2 ára. Hing-
að til hefur verið erfitt, og eiginlega
vonlaust, að sinna fjölskyldunni al-
mennilega þegar maður er að vinna
frá kl. 9-17 og svo á æfingum frá
kl. 18-20 nánast alla daga vikunn-
ar eins og undanfarin ár hafa verið.
Sem betur fer á ég skilningsríka og
þolinmóða fjölskyldu því annars
hefði þetta ekki gengið upp.“
metnaðurinn og
krafturinn í þeim
smitaði út frá sér og
gerði það að verkum að
lífið hjá mér snerist um
körfubolta.
Helgi Már Magnússon
Vertu laus við
LIÐVERKINA
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og í heilsuhillum verslana
„Sem hlaupari þá er mikilvægt að
halda öllum liðum vel smurðum.
Ég hef notað Nutrilenk Active í
töluverðan tíma og finn að líkaminn
þolir langvarandi álag mun betur og
eymsli í liðum eru miklu minni en
áður. Ég mæli hiklaust með Nutrilenk
Active. Það virkar.“
Friðleifur Friðleifsson,
hlaupari og íþróttamaður.
Eitt mest selda
bætiefni fyrir
liðina á Íslandi.
HeilSa og ÚtiViSt Kynningarblað
28. apríl 20162
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
D
-E
3
F
4
1
9
3
D
-E
2
B
8
1
9
3
D
-E
1
7
C
1
9
3
D
-E
0
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K