Fréttablaðið - 28.04.2016, Qupperneq 36
1. Öskjuhringurinn (Austurland).
Dulmögnuð leið meðfram kynngi-
magnaðasta vatni landsins. Löng
dagleið, um 25 km á 9-12 klst.
Gengið er kringum Öskjuvatn
frá gönguleiðinni að Víti og þaðan
er þrætt upp með síbreytilegum
fjallsbrúnum sem varða Öskju-
vatnið sjálft með stórkostlegu út-
sýni. Til að byrja með er gengið á
göngustígum að hluta um Dyngju-
fjöll, en svo skilur leiðir þar sem
stígurinn heldur áfram að skálan-
um í Dreka, en þessi leið er ómerkt
og heldur áfram eftir misbröttum
fjallshryggjunum og verður hvað
hrikalegust neðan við efstu tinda
þar sem Þorvaldstindur trónir efst-
ur í 1.510 m hæð. Suðvestan megin
er gengið niður á láglendið í hrauni,
hellum, sandi og mosa Mývetninga-
hrauns um vesturstrandir og norð-
urhluta vatnsins svo að síðari hluti
göngunnar fer mjúkum höndum um
mann eftir fremur krefjandi brölt.
Við fórum þessa leið í ágúst 2009
sem hluta af Toppfaraferð á Herðu-
breið og veðrið lék við okkur. Við
vorum ekki með GPS-slóð af leið-
inni en höfðum lesið allt sem við
fundum. Það virtust vera almenn-
ar upplýsingar sem ekki komu frá
fólki sem raunverulega hafði geng-
ið þessa leið og enginn af skálavörð-
um eða landvörðum í Herðubreiðar-
lindum hafði gengið þennan hring.
Þetta var því könnunarleiðangur
eins og hann gerist skemmtilegast-
ur þar sem við vissum í raun ekki
hvort við kæmumst allan hring-
inn og komumst að því að hann er
ágætlega fær öllum vönum göngu-
mönnum, en við mælum ekki með
að fara hann nema í góðu veðri.
Það ríkir einstakt andrúmsloft
við Öskjuvatn. Á tveimur stöðum
á leiðinni eru minnisvarðar um
harmleikinn þann 10. júlí 1907
þegar Walter Von Knebel jarð-
fræðingur og Max Rudloff málari
fórust á vatninu þar sem þeir voru
við jarðfræði athuganir. Trega-
fullt andrúmsloft þessa harmleiks
lék einhvern veginn við okkur alla
gönguna. Þessi sérstaki andi Öskju-
vatns hefur enn þá tangarhald á
okkur.
2. Jökulsárgljúfur – frá Dettifossi
niður í Ásbyrgi (Norðurland). Stór-
brotin ganga um slóðir hamfara-
hlaupa. Alls um 35 km á 2 dögum
eða löng dagleið fyrir mjög vana.
Almennt er mælst til þess að
fara leiðina á tveimur dögum með
tjaldgistingu í Vesturdal, en við
fórum með hópinn okkar þessa leið
á einum degi í júní 2010 og skiluð-
um okkur dauðþreytt en alsæl eftir
12 klst. göngu niður í tjaldstæðið í
Ásbyrgi þar sem við slógum upp
grillveislu í sæluvímu. Þetta er í
megindráttum sama leið og Jökuls-
árhlaupið svokallaða sem haldið er
árlega í ágúst en talsvert fjölbreytt-
ari þar sem farið er niður í gljúfr-
ið að hluta og teknir alls kyns krók-
ar og kimar sem hlauparinn miss-
ir af. Leiðin er stikuð alla leið þar
sem lagt er af stað frá Dettifossi og
gengið um stíg eftir brúnum gljúf-
ursins og á köflum niður í það með
viðkomu á mögnuðum stöðum eins
og Hafragilsundirlendi, Hólma-
tungum, Kötlum, Hljóðaklettum
og loks komið fram á botnbrúnir
Ásbyrgis og endað niður um þær í
tjaldstæðið.
Leiðin er ágætlega greið alla
leiðina en þó þarf að styðjast við
reipi á tveimur stöðum, þegar
farið er niður í gljúfrið fljótlega
eftir Dettifoss og svo aftur í lokin
niður í Ásbyrgi, auk þess sem stíg-
urinn liggur á kafla utan í gljúfur-
veggjunum sem gæti reynt á hjá
þeim allra lofthræddustu. Við erum
ennþá að furða okkur á því hvers
vegna þessi leið nær hvergi nærri
sömu vinsældum og Laugavegurinn
og Fimmvörðuháls þar sem hún er
heillandi fögur í alla staði, síbreyti-
leg en létt og ljúf þess á milli um
ljúfa skógarstíga þar sem gengið
er bókstaflega í gegnum jarðsög-
una og afleiðingar hamfarajökul-
hlaups blasa alls staðar við manni
eins og í hasarmynd. Maður er
óskaplega smár í þessu áhrifamikla
tröllvaxna landslagi sem hrópar að
manni skelfilegar afleiðingar jökul-
hlaupanna sem urðu alls sex tals-
ins á 24 árum frá 1707-1730, en eins
og segir í bók Sigrúnar Helgadóttur
þá eru „þessi sögulegu hlaup smá-
munir hjá þeim hamfarahlaupum
sem einhverjum árþúsundum fyrr
æddu um farveg Jökulsár og skópu
gljúfrin sem við hana eru kennd“.
Það er nauðsyn að hafa bók Sigrún-
ar Helgadóttur, „Jökulsárgljúfur“
frá 2008, meðferðis og lesa í henni
alla gönguna því lesturinn opnar
manni töfraheima gljúfranna.
3. Vesturgatan úr Dýrafirði í Arnar-
fjörð (Vestfirðir). Göldróttar slóð-
ir um lygilegan veg Elísar Kjaran.
Alls um 28 km á 9 klst.
Gengið er meðfram sjávarsíð-
unni á malarvegi allan tímann
með sjóinn á hægri hönd og tignar-
lega hamra og tinda rísandi úr
blómlegri sveitinni vinstra megin.
Leiðin liggur að hluta um vegslóð-
ann sem Elís Kjaran, bóndi í Kjar-
ansdal í Dýrafirði ruddi árin 1973
til 1974 í framhaldi af tilraunum
vegagerðarinnar sem hafði gef-
ist upp á verkinu, en Elís gaf ekki
eftir og tókst með einstakri elju-
semi að koma á vegasambandi
við Lokinhamradal beggja vegna
fjarðanna. Kaflinn frá bæjunum
Lokinhömrum og Hrafnabjörgum
inn að Stapadal er viðhaldsfrekur
vegna stórstreymis sjávar og end-
urbyggja þarf því veginn á hverju
vori og halda honum við yfir sum-
arið og það veldur því að Kjarans-
brautin er eingöngu jeppafær. Við
höfðum keyrt þennan veg sumar-
ið áður en við fórum með hópinn
og heilluðumst svo gjörsamlega af
leiðinni að við ákváðum að ganga
veginn allan frá firði í fjörð í skipu-
lagðri ferð Toppfara. Þessi leið er
einnig að hluta til árleg hlaupaleið
á Vestfjörðum og það er ekki annað
hægt en að mæla með því að menn
gangi hana þó þeir hafi keyrt hana
eða hlaupið, því áhrifin af því að
anda að sér hverju andar taki alla
leiðina er engu lík. Leiðina skreyta
egghvassir tindar, tröllvaxin björg
og himinháir hamrar, sundurskorn-
ir vogar og friðsælar fjörur innan
um eyðibýli sem hvísla að manni
lygilegum sögum. Það gerðist eitt-
hvað innra með manni þegar við
gengum þessa leið og það að vera
„bergnuminn“ fékk annan og dýpri
skilning í huga manns.
4. Hekla frá Næfurholti (Suðurland).
Ofurganga um gamlar slóðir. Alls
33 km á 13 klst.
Mjög krefjandi fjallganga og
óhefðbundin leið á lifandi eldfjall
þar sem greina má hitann úr 5,5
km langri sprungunni sem liggur í
austnorðaustur-vestsuðvestur. Við
gengum þarna í spor elstu meðlima
fjallgönguklúbbsins, Ketils Arnars
Hannessonar, föður míns, sem lést
2014 og gekk með klúbbnum til 75
ára aldurs en hann gekk á fjallið
með móður minni árið 1956, og hins
vegar í spor Björns Matthíassonar,
77 ára, sem enn þá er með ötul-
ustu og sterkustu göngumönnum
klúbbsins. Báðir gengu þeir svipaða
leið frá bænum Næfur holti vestan
undir Heklu sem var á þeim tíma
eina færa leiðin. Við fengum góðar
ráðleggingar hjá Ófeigi bónda í
Næfurholti sem ráðlagði okkur að
sniðganga úfið hraunið sem liggur
norðanmegin ofan við Rauðöldurn-
ar og fara svo upp með öxlinni sem
gengur niður vestsuðvestan megin
og það gekk eftir, frábær leið sem
reyndi verulega á og ógleymanlegt
í minningunni að vera komin upp
á tind klukkan fimm síðdegis eftir
rúma 16 km göngu á átta klukku-
stundum og eiga eftir að koma sér
til baka. Við lögðum af stað niður
um sexleytið með sólina í fangið
en þetta var í lok apríl og því naut
sólar fram undir ellefu í heiðskíru
veðrinu og við skiluðum okkur í
bílana í rökkrinu. Ein erfiðasta,
lengsta og flottasta fjallganga sem
við höfum farið í. Hekla er okkar
uppáhaldsfjall og við höfum farið
nokkrum sinnum með hópinn þang-
að á öllum árstímum, en eftir þessa
göngu alveg hinum megin á fjall-
inu öfugt við hefðbundna leið, þá
hefur hún enn meiri sérstöðu í
okkar huga.
Stefnan er að ganga svo sunn-
an megin upp á hana á næsta ári,
sem verður veglegt 10 ára afmælis-
ár klúbbsins. Þar ætlum við að líta
yfir farinn veg og velja tíu bestu,
erfiðustu, bröttustu, lengstu, fal-
legustu, blautustu … ferðirnar í sí-
stækkandi fjallasafninu okkar.
Fleiri ferðasögur má finna á
www.fjallgongur.is
Langar, strangar og stórfenglegar
Bára Agnes Ketilsdóttir og Örn Gunnarsson reka fjallgönguklúbbinn Toppfara. Þau eiga fjölmargar uppáhaldsgönguleiðir en völdu hér þær
fjórar sem standa upp úr. Þær eru allar langar og erfiðar en þau telja að kannski sé það einmitt þess vegna sem þær séu þeim efst í huga.
Öskjuvatn er kynngimagnað vatn. Stórbrotið er að ganga frá Dettifossi og niður í Ásbyrgi.
Hekla er í miklu uppáhaldi hjá Báru og Erni. Ein af þeim leiðum sem þau nefna er ganga á Heklu sem farin er frá Næfurholti . Það er leið sem sjaldan er farin á fjallið.
Bára og Örn á fjallstoppi.
HEiti Á SérBLAði Kynningarblað
28. apríl 20166
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
D
-B
C
7
4
1
9
3
D
-B
B
3
8
1
9
3
D
-B
9
F
C
1
9
3
D
-B
8
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K