Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 66
Tónlistarmaðurinn Prince hefur
mikið verið í umræðunni síðustu
viku eftir andlát hans. Eins og flestir
vita var Prince tónlistarmaður á
heimsmælikvarða, hann gaf út 39
stúdíóplötur, 104 smáskífur og 136
tónlistarmyndbönd svo eitthvað sé
nefnt. Það eru hins vegar færri sem
vita að Prince lék í kvikmyndum
snemma á ferlinum. Prince lék aðal-
hlutverkið í þremur kvikmyndum,
Purple Rain frá 1984, Under the
Cherry Moon frá 1986 og Graffiti
Bridge frá 1990.
Purple Rain
Fyrsta kvikmyndin sem Prince lék í
var Purple Rain, en leikstjóri hennar
var Albert Magnoli og aðalmótleik-
arar Prince voru Appollonia Kotero
og Morris Day. Flestir þeirra sem
komu að myndinni, framleiðendur,
leikarar og leikstjóri, voru að stíga
sín fyrstu skref í kvikmyndabrans-
anum, en það kom ekki að sök því að
það var tónlistin sem var aðalatriðið.
Myndin er að hluta sjálfsævisögu-
leg og fjallar um The Kid, leikinn af
Prince. The Kid er ungur tónlistar-
maður sem spilar ásamt hljómsveit
sinni The Revolution á næturklúbbi
og lendir í útistöðum við Morris
Day, sem fer fyrir hljómsveitinni The
Time. Myndin gengur út á átökin á
milli hljómsveitanna.
Prince kom með hugmyndina að
Purple Rain til Warner Brothers á
sínum tíma, en hún byggist að hluta
til á atburðum úr lífi hans. Hann tók
þátt í að fjármagna myndina til þess
að koma henni af stað, en hún var
tekin upp í Minneapolis, heimabæ
Prince. Tónlist leikur stórt hlutverk í
myndinni en það má í rauninni segja
að atburðarásin spinnist út frá tón-
listinni. Platan Purple Rain er ein af
þekktustu plötum Prince og tónlistin
í myndinni var tilnefnd til ýmissa
verðlauna. Prince fékk Óskarsverð-
laun fyrir bestu tónlistina og Brit-
verðlaunin fyrir bestu hljóðrás.
Myndin fékk talsvert góðar við-
tökur á sínum tíma en hún verður
sýnd í Bíó Paradís laugardaginn 30.
apríl. Ása Baldursdóttir, dagskrár-
stjóri hjá Bíói Paradís, segir þau
hafa viljað bregðast við og heiðra
minningu Prince. „Ég sá myndina
á sínum tíma inni í herbergi hjá
bróður mínum og hún skildi mikið
eftir hjá mér. Flestir sem ég tala við
og sáu hana á sínum tíma segja hana
lifa sterkt í minningunni. Tónlistin er
svo sterk í myndinni og hún höfðar
til allra. Ég held það sé af því að hann
var svo stórkostlegur listamaður, og
þetta sameinar tónlistina hans og
kvikmyndalistina í einum pakka,“
segir Ása.
Under the Cherry Moon
og Graffiti Bridge
Under the Cherry Moon er önnur
kvikmynd Prince. Hún kom út árið
1986 en hann leikstýrði henni sjálf-
ur. Myndin fjallar um tvo vini, Tracy
leikinn af Prince og Tricky leikinn
af Jerome Benton, sem njóta lífsins
við Miðjarðarhafið og lifa af því að
tæla ríkar konur og svíkja út úr þeim
peninga. Þegar Tracy verður ástfang-
inn af konunni sem hann ætlar að
féfletta flækjast hlutirnir hins vegar.
Kristin Scott Thomas leikur stúlk-
una, Mary Sharon, sem Tracy verður
ástfanginn af, en þetta var hennar
fyrsta kvikmynd í fullri lengd. Platan
Parade kom út samhliða myndinni
en á henni var að finna tónlistina úr
myndinni, meðal annars lagið Kiss,
sem varð stærsti smellur plötunnar.
Graffiti Bridge er síðan þriðja og
síðasta kvikmynd Prince, en hún
kom út árið 1990 og var skrifuð og
leikstýrt af Prince. Myndin er óform-
legt framhald af Purple Rain en í
henni má sjá sömu persónur og í
Purple Rain, The Kid og Morris Day.
Myndin fjallar um átök milli þeirra
tveggja, og afleiðingar þeirra.
Þórir Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Stúdíós Sýrlands og sérlegur
Prince-aðdáandi, segir seinni tvær
kvikmyndir Prince ekki vera sérstak-
lega góðar. „Það má segja að Under
the Cherry Moon sé eiginlega bara
eins og stórt egóflipp, og gerði ekki
neitt í bíó.“ Þórir segir Graffiti Bridge
síðan í rauninni vera eins og eitt
langt tónlistarmyndband með smá
spjalli inni á milli. „Eins og hann var
góður tónlistarmaður þá held ég að
hann teljist seint vera góður leikari,
svona ef við tölum hreint út. Graffiti
Bridge var með frábærri tónlist en
myndin telst seint vera meistaraverk.
Purple Rain var og er hins vegar ein
besta tónlistarmynd allra tíma, enda
tónlistin í sérflokki.“
– sbv
Heimsklassa
tónlistarmaður
sem fiktaði við
Purple Rain
Leikstjóri: Albert Magnoli
Handrit: Albert Magnoli og
William Blinn
Frumsýnd: 27. júlí 1984
Tekjur innanlands: 68,4 milljónir
dollara
Tekjur á heimsvísu: 80 milljónir
Under The Cherry Moon
Leikstjóri: Prince
Handrit: Becky Johnston
Frumsýnd: 4. júlí 1986
Tekjur: 10,1 milljón dollara
Graffiti Bridge
Leikstjóri: Prince
Handrit: Prince
Frumsýnd: 2. nóvember 1990
Tekjur: 4,6 milljónir dollara
Tónlistarmaðurinn Prince. NoRdiC PHoTos GeTTy
Þórir Jóhannsson fyrir utan tónleika-
staðinn First Avenue, þar sem Purple
Rain var tekin upp.
Kvikmyndir Prince voru ekki endilega jafn
hátt skrifaðar og tónlist hans en þær höfðu
þó áhrif á ýmsa, sérstaklega Purple Rain.
Trendið
Síðkjólar
heitir í sumar
Síðkjólar verða það heitasta í
sumar. Þeir sáust á tískupöll-
unum víðs vegar um heim, hjá
öllum helstu hönnuðum, í fjöl-
mörgum sniðum og litum.
kvikmyndagerð
erdem
Gucci
Victoria
Beckham
Alberta
Ferretti
2 8 . a p r í l 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r42 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
Lífið
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
D
-D
A
1
4
1
9
3
D
-D
8
D
8
1
9
3
D
-D
7
9
C
1
9
3
D
-D
6
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K