Frjáls Palestína - 01.11.2015, Síða 1

Frjáls Palestína - 01.11.2015, Síða 1
FRJÁLS PALESTÍNA 1 Málgagn Félagsins Ísland-Palestína – 1. tbl. 24. árg. – Nóvember 2015 PALESTÍNA Frjáls Í september sl. ákváðu Sameinuðu þjóð irn ar að fáni Palestínu fengi að flagga við höfuðstöðvar sín ar. Palestína er ekki fullgildur meðlimur SÞ en hefur stöðu áheyrnaraðila. Ákvörðunin var tekin eftir at kvæða greiðslu þar sem 119 þjóðir af 193 greiddu at kvæði með tillögunni. FÍP fagnar að sjálfsögðu ákvörðuninni. Fáni Palestínu blaktir við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna Hernám Ísraels yfir allri Palestínu hefur staðið í 48 ár, en 67 ár eru síðan það hófst með hernámi Ísraels á fjórum fimmtu hlutum landsins, en Sþ höfðu ætlað gyðingum helming þess. Hernám Palestínu verður æ grimmi- legra um leið og stöðugt verður ljósar að ráðandi öfl í Ísrael ætla sér ekki að eftirláta Palestínumönnum neitt af land i sínu til að reisa sjálfstætt, lífvæn- legt og fullvalda ríki. Umheimurinn horfir upp á þjóðar- morð í Palestínu með bæði augu lokuð og heldur fyrir eyru. Stríðsglæpir Ísraels í árásarstríði gegn íbúum Gaza í fyrrasumar virðist gleymdir, þótt yfir 2200 hafi verið drepnir, þar af 551 barn. Drápin sem nú eiga sér stað, einkum í Austur-Jerúsalem og á Vest- urbakkanum, eru grimmilegri en um langt skeið. Vestrænir fjölmiðlar, þar á meðal RÚV og BBC tala einkum um hnífastunguárásir, en níu Ísraelsmenn hafa fallið síðan 1. október. Á sama tíma hafa yfir sjötíu Palestínumenn verið drepnir, flest ungt fólk og börn; margir teknir af lífi með köldu blóði af her og lögreglu, þótt auðvelt væri að afvopna og handtaka viðkomandi og færa fyrir dómtól. En nei, stefna Net- anyahus er að drepa fólk á staðnum, án dóms og laga. Þessu verður Ísland að mótmæla. Mótmæli ein og sér hafa þó litla þýð- ingu. Fylgja þarf þeim eftir með að- gerðum sem eftir er tekið. Áhrifarík og friðsöm aðgerð til að hafa áhrif á stefn u Ísraels til góðs er að snið- ganga Ísrael á öllum sviðum þar til hernáminu linnir og Palestína verður frjáls. Kjósendur hljóta að gera þá krö- fu til borgarfulltrúa að þeir geri grein fyrir því af hverju meirihlutinn tók þátt Sniðganga er nærtæk og friðsamleg aðgerð Framhald á bls. 3

x

Frjáls Palestína

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls Palestína
https://timarit.is/publication/1150

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.