Frjáls Palestína - 01.11.2015, Qupperneq 7
FRJÁLS PALESTÍNA 7
Raphael Schütz, sendiherra Ís-raels á Íslandi, segir í viðtali
við Fréttablaðið 28. október: „Það
sem ég get ekki sætt mig við er að
farið sé yfir rauðu strikin, þegar not
ast er við lygar eins og þjóðarmorð,
aðskilnaðar stefnu, þjóðernishreinsan-
ir og ný lendu ríki. Öllu þessu ætti að
útrýma úr orðabók umræðunnar ef
við viljum taka af einhverri alvöru þátt
í uppbyggi legum samræðum. Ann ars
teljum við þetta vera hatursherferð
gegn Ísrael.“ Schütz sendiherra er,
eins og nafn hans segir okkur, að ver-
ja framferði Ísraelsstjórnar. Og hann
geng ur galvaskur fram og lýsir því að
ef menn fara yfir „rauðu strikin“ hans
í umræðunni þá séu menn í vond-
um málum, allt handan strikanna er
„haturs-herferð gegn Ísrael“. Hann
nefn ir orðin sem skilgreina „rauðu
strik in“ og eru lygar að sögn Schütz.
Orðin eru „þjóðarmorð“ (e. geno
cide), „aðskilnaðarstefna“ (e. apart
heid), „þjóðernishreinsanir“ (e. eth
nic cleansing) og „nýlenduríki“ (e.
colonial ism).
Schütz vill „útrýma“ þessum orðum
til þess að umræðan verði uppbyggi-
legri. En áður en við föllumst á það
skulum við skoða þessi orð og merk-
ingu þeirra.
Þjóðarmorð
er skilgreint sem “að gerð ir gegn hópi
manna sem miða markvisst að því að
skapa þeim lífs skilyrði sem leiðir til
útrýmingar hópsins að hluta eða að
fullu“. Þessi skilgreining er sett fram í
ályktun Alls herjarþings Sþ árið 1951.
Herkvíin og árásirnar á Gaza
skap a Gazabúum lífsskilyrði sem hef-
ur kostað þúsundir lífið. Sameinuðu
þjóðirnar ræða nú í alvöru að með
áframhaldandi aðgerðum Ísraelshers
verði Gazaströndin nær óbyggileg eftir
rúm fimm ár.
Aðskilnaðarstefna.
Sam ein uðu þjóðirnar skilgreindu
að skiln aðarstefnu árið 1973 sem
„ómann úðlegar aðgerðir sem miða að
því viðhalda yfirráðum eins kynþáttar
yfir öðrum kynþætti með skipulagðri
kúgun“.
Síonistar skilgreina gyðinga sem
kynþátt og í Ísrael gilda ýmis lög og
reglugerðir er veita gyðingum rétt-
indi umfram aðra. Þ.á m. eru lög sem
snúa m.a. að búsetu. Á Vesturbakk-
anum eru svæði sem herinn bannar
Palestínumönnum búsetu á grundvelli
uppruna og þar eru lagðir vegir sem
gyðingar einir fá að aka um.
S-Afrískir afkomendur gyðinga
sem hafa heimsótt Ísrael og her-
numdu svæðin, segja að það ríki
að skilnaðarstefna í Ísrael, meira að
segj a verri en sú sem þeir kynntust
í sínu heimalandi. Og þeir þekkja
ófreskjuna af eigin reynslu og segja
frá því óhikað. Þeir viðurkenna ekki
„rauðu strikin“ hans Schütz.
Þjóðernishreinsanir.
Árið 1993 skilgreindu Sameinuðu
þjóð irn ar þjóðernishreinsanir sem
„skipu lagða og vísvitaða aðgerð til að
fjarlægja kynþátt með valdi eða ógn-
unum með því markmiði að skapa
einsleita búsetu á tilteknu svæði“.
Áður en Ísraelsríki var stofnað í maí
1948 höfðu herir síonista hrakið um
300,000 Palestínumenn af heimilum
sínum með hervaldi og lagt fjölmörg
þorp í rúst. Á þeim rúmu sjö áratugum
sem Ísrael hefur verið við lýði hefur
rúm ein milljón Palestínumanna verið
hrakinn frá heimilum sínum. Og í stað
þeirra hafa gyðingar og afkomendur
þeirra yfirtekið landið.
Nýlenduríki.
Orðabók Oxford skilgreinir nýlendu-
stefnu sem stefnu sem felur í „sér
yfirtöku ríkis á landi annarar þjóðar að
hluta eða að fullu með hernámi, inn-
flutningi landnema og nýtingu lands-
gæða“.
Ólöglegar landtökubyggðir síon-
ist a á Vesturbakkanum þar sem land-
tökumenn stela ræktarlandi og vatns-
birgðum, falla vel að þessari lýsingu.
Sendiherrann vill stjórna umræð-
unni um Ísrael og framferði þeirra
gagn vart Palestínumönnum með
„rauðum strikum“. Hingað og ekki
lengra segir Schütz - að öðrum kosti
verð ur ekki tekið mark á orðum yk-
kar. Slík orð vekja mann auðvitað til
umhugs unar um hvaða „rauðu strik“
gilda í árasarstríði Ísraelshers gegn
fólkinu sem býr innikróað á Gaza?
Kann einhver að segja frá þeim „rauðu
strikum“? Þegar þús undir Gazabúa,
að meirihluta börn, konur og óbreyt-
tir borgarar liggja í valn um eftir fjórar
stórárásir á innan við áratug – þá er
erfitt fyrir okkur að sjá hvar morðing-
jaherinn dregur línuna. Línan er vissu-
lega rauð, roðin blóði fórnarlambanna.
Hjálmtýr Heiðdal
Það sem ekki má segja