Frjáls Palestína - 01.11.2015, Page 8
8 FRJÁLS PALESTÍNA
Skilaboð til stjórnvalda í Ísrael
Sendiherra Ísraels bað borgarstjórn
um að hitta sig á fundi. Sá fundur fór
fram í dag [innsk. ritstj. 27. október]. Á
fundinum vorum við fjögur sem létum
sendiherrann fá hvatningu um m.a. að
virða mannréttindi Palestínumanna og
hætta hernáminu. Það er ekki oft þar
sem borgarfulltrúar fá tækifæri til að
láta sig málefni alþjóðasamfélagsins
varða þó snertifletirnir séu vissulega
fleiri en við nýtum okkur. Reykjavík er
auðvitað ekki ríkið en getur lagt lóð
sitt á vogarskálarnir með því að mót-
mæla mannréttindabrotum á fundum,
hvort sem það eru fulltrúar Kína, Ban-
daríkjanna, Ísraels eða Rússlands og
eftir atvikum fleiri ríkja. Ég held að það
sé full samstaða um það hér á landi
að þeim skilaboðum sé komið til skila
þegar við á.
Hér er bréfið í heild sinni.
Þann 27. október birti Líf Magneu
dóttir, varaborgafulltrúi í Reykjavík,
pistil á bloggsíðu sinni þar sem
hún segir frá fundi borgarstjórnar
Reykavíkur við sendiherra Ísrael
sem fram hafði farið fyrr um daginn.
Nýttu þau tækifærið til þess að
ræða málefni Palestínu ásamt
því að afhenda sendiherra bréf
sem birt er hér að neðan, sem var
undirritað af Líf, Sigurði B. Blöndal,
Skúla Helgasyni og Halldóri Auðar
Svanssyni. Líf gaf FÍP góðfúslegt
leyfi til þess að birta færsluna í heild,
en ekki tókst að þýða bréfið áður
en blaðið fór í prent. Hægt er að
sjá upprunalegt eintak bréfsins á
bloggsíðu hennar.
Your excellency
Raphael Schutz.
This is an entreaty to the government
you represent to cease the occupa
tion in Palestine, honour the human
rights of the Palestine people, recog
nize the State of Palestine and act
in accordance with all resolutions of
the General Assembly of the United
Nations as other councils of UN. It
must be emphasized that the Israeli
government is obliged to honour the
Geneva Conventions which represent
fundamental principles of interna
tional law.
The United Nations and other repu
table international organizations have
long expressed their deep concern
about the human rights violations of
Israel towards the Palestinian popula
tion in the West Bank and Gaza Strip.
The United Nations General Assem
Skilaboð til stjórnvalda í Ísrael
Palestínumenn eru einn stærsti hóp-ur flóttamanna í heiminum. Þessi
hópur fólks var rekinn úr landi sínu
eftir blóðuga bardaga og þjóðernis-
hreinsanir í kjölfar stofnunar Ísraels-
ríkis árið 1948 og í framhaldi þess
hernám Ísrael á Vesturbakkanum og
Jerúsalem árið 1967.
Eftir dvöl mína í flóttamannabúðum
á Vesturbakkanum árin 2013 og 2014,
verð ég að viðurkenna ég vissi lítið um
hvernig ástandið væri í þeim fjölmörgu
flóttamannabúðum Palestínumanna
sem enn standa í Jórdaníu og Líban-
on.
Þegar dvalið er í flóttamannabúðum
innan landamæra Palestínu er búið
undir hernámi og miklu atvinnuleysi en
í raun er ástandið svipað og á öðrum
stöðum á Vesturbakkanum – þrátt
fyrir að sjálfsagt sé það töluvert verra
vegna fátæktar og stöðnunar sem
flótta mannabúðir skapa.
Í sumar lá því leið mín til Líbanon.
Saga Líbanon og Palestínu hefur
verið samtvinnuð síðustu áratugi
og er þar margt áhugavert á að líta,
heyra og sjá. Það er hins vegar ekki
mitt hlutverk að segja frá því sem
utan aðkomandi gestur hjá landi og
þjóð. En eins og staðan er í dag er
um 1,5 milljón flóttamanna í Sýrlandi.
Þetta er að stórum hluta flóttafólk frá
Sýrlandi en þar eru einnig margar
Palestínskar flóttamannabúðir, þar
sem þriðja kyn slóð flóttamanna
vex nú úr grasi. Þar af eru eflaust
frægastar Shatila flóttmannabúðirnar
í Beirut sem eru hvað þekktastar
fyrir hrottaleg fjöldamorð árið 1982,
undir lok borgarastríðs í Líbanon,
þegar ísraelsher hafði ráðist inn í
landið. Í búðunum eru nú á skrá í
kringum 10.000 Palestínumenn ásamt
töluverðu af sýrlensku flóttafólki.
Þegar ég ákvað að fara til Líbanon
var mér ofarlega í huga að heimsækja
palestínskar flóttamannabúðir. Var
það aðallega til þess að sjá aðstæður
fólksins, til þess að ræða við það og
heyra sögur þess, en þó var ég smeyk
um að fólki gæti þótt ég óviðeigandi,
að koma líkt og ég vildi skoða eymd
þess.
Eftir að hafa fyrir óskaplega tilviljun
rekist á gamlan samstarfsfélaga á
kaffi húsi í Beirut, sem ég hafði kynnst
Palestínskar
flóttamannabúðir
víða um heim
Heimsókn í palestínsku flóttamanna-
búðirnar Shatila í Líbanon