Frjáls Palestína - 01.11.2015, Síða 17

Frjáls Palestína - 01.11.2015, Síða 17
FRJÁLS PALESTÍNA 17 það er erfitt að ganga í gegnum svona þegar maður er barn, það hlýtur að hafa talsverð sálræn áhrif. Kvennaathvarf Að þessu loknu heimsóttum við kvenna athvarf sem við styðjum í gegnum UN Women, í Beit Hanina. Það heitir Mehwar Center. Þetta athvarf er bæði fyrir konur og börn. Konur geta komið þangað og fengið húsaskjól og félagsráðgjöf, lögfræðilega aðstoð og aðra hjálp. Einnig aðstoð við að komast aftur út í samfélagið eftir dvöl í athvarfinu. Við ræddum við konurnar og heyrðum lífsreynslu þeirra. Þær þökkuðu athvarfinu mikinn stuðning, sem gerði mörgum þeirra kleift að fara aftur og takast á við vandann innan fjölskyldunnar. Gjarnan fjölskyldu eig- in mannsins, því það er mikið mál í þessu samfélagi að yfirgefa heimilið og taka börnin með sér. Þetta er ann- ars eðlis í palestínsku samfélagi en hér hjá okkur og getur verið átak í því karlaveldi sem þarna ríkir. Í sumum tilfellum virtist hafa náðst einhvers konar sátt við fjölskylduna, en stundum hafa konurnar orðið einstæðar og þá þurfa þær auðvitað að vinna fyrir sér og börnunum. Það er reynt að undirbúa þær fyrir það í athvarfinu. Þannig að þarna er mjög mikilvægt starf unnið. Meginhluti kvennanna sem þarna eru koma frá Vesturbakkanum. Sumar ungar, jafnvel undir 25 ára. Ísland styður UN Women í Pal est- ínu með fjárframlögum og með því að kosta stöður sérfræðinga á vettvangi. Félagasamtök og Jafnréttisskóli Háskóla Sþ Við störfum einnig með félagsamtökum í Palestínu m.a. Palestinian Medical Relief Society (PMRS). Við Einar fund uðum með fulltrúum þeirra og fórum yfir samstarfið. Verkefnið sem við styðjum er í Qualqilya sem er mjög afskekkt íbúðasvæði. Þarna ligg ur hraðbraut með varðstöðvum sem eru mjög sjaldan opnar, þannig að fólk kemst sjaldan í gegn. Einnig er bannað að byggja á svæðinu. Fram lög Íslands hafa farið m.a. í fær an lega sjúkrastöð og rekstur á barna skóla. Það var enginn skóli þarna og börnin þurftu alltaf að fara í gegnum varðstöð til að sækja skóla og það bara gekk ekki; þau urðu fyr­ ir eilífu áreiti og voru hætt að vilja fara í skólann. Starfmenn færanlegu sjúkrastöðvarinnar fá aðstöðu heima hjá fólki, sem lánar þeim húsnæði sitt þegar þeir koma. Þarna hafa m.a. íslenskir hjúkrunarfræðingar starfað sem sjálfboðaliðar. Við störfum einnig með samtökum sem heita Women´s Centre for Legal Aid and Councelling. Þar er lögð áhersla á lagalegan stuðning og ráð- gjöf fyrir konur. Ísland hefur einnig stutt verkefni ís lenskra félagasamtaka á sviði mann úð ar aðstoðar í Palestínu m.a. sam starfsverkefni félagsins Ísland – Pal estína og PMRS, verkefni Rauða kross Íslands o.fl. Við leggjum mikla áherslu á jafn rétt- ismál í samstarfinu eins og við gerum reyndar í öllu okkar þróunarsamstarfi. Hingað koma nemendur frá Palestínu á ári hverju í Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á Íslandi, bæði karlar og konur. Nemendur skólans eru hér við nám í sex mánuði og fara svo heim og nýta sér það sem þau hafa lært til að vinna að jafnréttismálum í Palestínu. Hingað hafa jafnvel komið nemendur frá Gaza og farið aftur heim til sín til starfa.“ Flóttamannabúðir í Jórdaníu María Erla fór einnig til Jórdaníu og heimsótti þar flóttamannabúðir í Zaatari, þar sem búa um 150.000 manns. Meirihluti flóttamanna í búð- unum er frá Da’ara svæðinu í Sýrlandi. „Ég hef aldrei áður komið í svona stórar í flóttamannabúðir, þannig að þetta var talsverð lífsreynsla. Við höf um stutt við búðirnar í gegnum UNI CEF. Þarna eru skólar og félags- miðstöðvar fyrir börn og þörfin er nátt­ úrlega gífurleg. UNICEF sér um alla vatnsöflun fyrir búðirnar. Það hefur reyndar verið borað eftir vatni þarna, ansi djúpt og það hefur borið nokkurn árangur. Ég varð reyndar hissa á hvað þarna tókst að gera mikið fyrir lítið. Fólk býr í tjöldum og aðstæðurnar eru hræðilegar, ekki síst þegar kólnar í veðri. Reynt er að vera með atvinnu- sköpun í búðunum. Fólk er að reyna að búa sér til eitthvað að gera og þarna fer fram mikið frumkvöðlastarf. Foreldrar eru mjög öflugir og þegar ég kom þarna var nýbúið að koma upp bókasafni. Menn höfðu látið boð út ganga í Jórdaníu um að þeir sem ættu gamlar bækur mættu gjarnan gefa þær í búðirnar í stað þess að henda þeim. Það var ein móðirin sem fékk þessa hugmynd. Okkur finnst svona bóka kassar ekki ýkja merkilegir, en fyrir fólk sem býr í svona búðum eru þeir stórmerkilegir. Fólk var tregt til að opna sig í samræðum, en þarna voru fjölskyldur sem höfðu þurft að reyna sitt af hverju og börn sem höfðu þurft að þola ýmislegt. Hlutir sem börn eiga ekki að þurfa að ganga í gegnum. Þarna voru t.d. fjölskyldur sem höfðu lent í liðsmönnum Íslamska ríkisins. Mér fannst þetta mjög áhugaverð heimsókn og það var augljóst að okkar stuðningur nýttist vel. Þótt upphæðin sé ekki há, þá er stuðningurinn að skila sér til barnanna. Við megum vera ánægð með það.“ Heimamenn leggja ekki síður að mörkum María Erla er ekki í vafa um að þró- unaraðstoð Íslands skilar sér vel. „Það er ánægjulegt að sjá þann ár- angur sem framlag okkar Íslendinga tekur þátt í að skapa. En hitt verður ekki nógu oft ítrekað, mikilvægi eign- arhalds heimamanna í verkefnum og að þeir leggi ekki síður af mörkum til þeirra. Til dæmis í Palestínu. Þar leggja íbúarnir svo sannarlega sitt til málanna; fúsir til samstarfs og vinna vel. Allir gera sér grein fyrir að við erum lítil þjóð sem leggur til eftir megni. Það sem við leggjum m.a. áherslu á er velferð barna og jafnréttismál, mennta- og heilbrigðismál. Viðlagastjórnunin er svo nýtt mál, ekki síður nauðsynlegt. Einnig er mikilvægt að við störfum með félagasamtökum, bæði hér heima og í Palestínu. Styrkur þeirra felst oft í nálægð við grasrótina og þau geta verið mikilvægir málsvarar þjóðfélagshópa sem standa höllum fæti og minna mega sín. Ég hef verið afskaplega þakklát fyrir að kynnast öllu þessu góða fólki í Palestínu; mér finnst ég ná að skilja þjóðfélagið betur, bæði á sviði stjórnmála en ekki síður daglegt líf, það er það sem heillar mig alltaf mest. Þegar fólk er að gera sitt besta úr því sem það hefur.“ Haukur Már Haraldsson

x

Frjáls Palestína

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls Palestína
https://timarit.is/publication/1150

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.