Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1953, Qupperneq 52

Jökull - 01.12.1953, Qupperneq 52
Rannsóknir erlendra manna á íslenzkum jöklum sumarið 1953 Foreign Students of Glaciology in Iceland 1953. Síðastliðið sumar voru hér 24 Bretar og 2 Þjóðverjar við jöklarannsóknir. 6 stúdentar írá Durham háskóla unnu að rannsóknum á Tindfjallajökli. Leiðangurs- stjóri var Mr. W. M. Barnes. Rannsóknirnar voru skipulagðar af Jóni Es- þórssyni og Sigurði Þórarinssyni og miðuðust við að ákveða stærð jökulsins þannig, að fram- vegis yrði hægt að fylgjast með breytingum á honum. Er þetta liður í milliríkjasamvinnu um athuganir á jöklum á norðurhveli jarðar næstu 10 ár. Frumkvöðull að samvinnu þessari er prófessor H. Ahlmann í Stokkhólmi, og er aðal- markmið athugana þessara að afla heimilda um veðurfarsbreytingar. Leiðangurinn vann að mælingum á jöklin- um í hálfan annan mánuð. Aðaláherzlan var lögð á landmælingu, og var gert kort af mest- öllum jöklinum í mælikv. 1:25000, en annað í mælikv. 1:10000 af nokkrum hluta hans.Á nokkr- um stöðum voru gerðar nákvæmar mælingar á sniðum yfir jökulinn á milli merktra staða, og er áformað að endurtaka þær mælingar árlega. Auk þess ar mæld þykkt á snjólagi frá síðasta vetri og fylgzt með bráðnun þess. 8 stúdentar og 2 doktorar frá Nottingham háskóla unnu að rannsóknum við Morsárjökul undir forustu J.D.Ives. Gerðar voru veðurfræði- legar athuganir á jöklinum og í Morsárdal. Grafin var 6 m djúp gryfja í jökulinn og at- huguð lög frá sumrinu 1951 og 1952. Fylgzt var með bráðnun jökulsins norður af Miðfellstindi og mældur hraði Morsárjökuls. Kort var gert af Morsárjökli í skala 1:12500. Tveir af leið- angursmönnum týndust á Oræfajökli og fund- ust ekki, þrátt fyrir nákvæma leit úr lofti og á jörðu. Var álitið að þeir hefðu hrapað í jökul- sprungu. 8 stúdentar frá Cambridge voru við jökla- fræðilegar og jarðfræðilegar rannsóknir við Ok undir forustu J. C. Barringer. Skýrsla um störf þessa leiðangurs hefur ekki borizt enn þá, en fyrirhugað var að athuga, hvort jökullinn sé á lireyfingu og gera kort af takmörkum jökuls- ins. Enn fremur að athuga regn og rennsli vatns og fastra efna niður hlíðar fjallsins. Þýzkur stúdent, að nafni Hans-Dieter Helm, frá Flamborg hóf rannsóknir á jökulruðningum við suðurenda Síðujökuls, en drukknaði í Ei- ríksfellsá, er hann var á leið til byggða. Stór- felldar rigningar höfðu gengið, og var áin í vexti. Dr. Emmy M. Todtmann frá Hamborg hélt áfram rannsóknum sínum við Vatnajökul og athugaði nú jökulruðninga við Eyjabakkajökul. Sumarið 1953 var mikið óhappasumar, þar sem 3 erlendir stúdentar fórust við rannsóknir sínar hér á landi. Slíkt heyrir sem betur fer til undantekninga, þar sem ekki hafa orðið hér önnur slys á erlendum vísindamönnum, síðan Þjóðverjarnir Rudloff og Knebel drukknuðu í Öskju árið 1907. Síðustu árin hefur aukizt mjög aðsókn af erlendum stúdentum, sem koma hingað til rannsókna á sumrin. Ymsir þessara manna eru lítt vanir öræfaferðum og gera sér ekki alltaf grein fyrir hættum, sem þeim fylgja. Til þess að reyna að koma í veg fyrir slysfarir í fram- tíðinni, sendir rannsóknarráð því leiðbeining- ar til þeirra, sem undirbúa vísindaleiðangra til íslands, þar sem þeir eru sérstaklega varaðir við þeim hættum, sem öræfa- og jöklaferðir hafa í för með sér, og hvattir til þess að ráðfæra sig við staðkunnuga menn og kynna sér rækilega staðhætti, áður en þeir leggja af stað. Enginn útlendingur fær nú leyfi til þess að dveljast einn síns liðs við rannsóknir langt frá byggðum. Þ. Sigurgeirsson. SUMMARY: Last summer a total of 26 foreign students of glaciology carried out glacio- logical studies in Iceland. 6 English students from Durham Univer- sity under the direction of Mr. W. M. Barnes made a survey of Tindfjallajökull, measured profiles and studied ablation. 8 English students and 2 geologists from 50

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.