Jökull - 01.12.1960, Síða 27
Vatnajökuisleiðangur vorið 1960
Expedition to Vatnajökull in June 1960
Lagt var upp frá Reykjavík laugardag 4. júní
snemma morguns og haldið beint til Jökul-
heima í fyrsta áfanga. Þrír snjóbílar voru í för-
inni og 26 manns. Farastjórar voru Magnús
Jóhannsson, Sigurjón Rist (ók Jökli II) og GuS-
mundur Jónasson (ók Gusá).
Helztu verkefni. voru þessi:
1. Gera nýtt kort af Grímsvötnum og næsta
umhverfi.
2. Mæla hita í jökulhjarni í allt að 30 m
dýpi.
3. Mæla þyngdarafl á vestanverðum jöklinum,
einkum á Grímsvatnasvæði.
4. Fara í skemmtiferð með þá, sem ekki voru
bundnir við rannsóknastörf, á Oræfajökul
eða í Kverkfjöll.
Auk fararstjóranna, sem ofan greinir, voru
leiðangursmenn þessir:
Gunnar Þorbergsson landmælingamaður
Guðmundur Pálinason eðlisfræðingur
Carl Eiríksson radíóverkfræðingur
Eberg Elefsen aðstoðarmaður
Halldór Olafsson —
Hörður Hafliðason —
Gunnar Guðmundsson — ók Kraka
Jón Brynjólfsson bryti
Grímur Þ. Sveinsson póstmeistari
Hanna Brynjólfsdóttir ljósmyndari
Ingibjörg Sigurðardóttir —
María Sigurðardóttir bankaritari
Erla Jónsdóttir —
Elsa Þórðardóttir —
Edda Ólafsdóttir —
Sigríður Arnadóttir teiknari
Jónas Magnússon forstjóri
Guðbjörg Kolka húsmæðrakennari
Helga Ingólfsdóttir ritari
Sigríður R. Jónsdóttir ritari
Ingibjörg Árnadóttir húsfreyja
Guðrún Waage húsfreyja
Sigurður Waage forstjóri.
Lagt var upp frá jökulsporði 5. júni að
kveldi og ekið alla nóttina í meinlausu veðri.
Leitað var að alúmín-þrífæti, sem settur var
norður af Pálsfjalli vorið áður, — án árangurs.
Komið í Grímsvatnaskála 6. júní kl. 13.30, og
hafði ferðin tekið 15i/2 klst. Bjuggust menn um
í skálanum, hagræddu farangri og hvíldust þann
dag.
Þrcl. 7. júni. Tekið til við mælingar. Ræsir
Jökuls II bilaður. Sent skeyti og beðið að senda
ílugvél með varahluti.
Mvd. 8. júní. Um kl. 11 kom B. Pálsson
flugmaður yfir, en 5 mín. áður lagðist þoka á
Grímsfjall, og varð hann frá að hverfa.
Fmtd. 9. júní. Gott og bjart veður. Unnið
að mælingum og borun af kappi. Borholan er
um 2 km norðar en vant er að kanna snjó-
dýpt í Grímsvatnaskarði.
Við hlaupið í Skeiðará í jan. 1960 liafði yfir-
borð Grímsvatna sigið 68 metra.
Guðm. Jónasson lagði af stað á Gusa til
Öræfajökuls og Gunnar Guðmundsson á Kraka.
Alls voru 16 konur og karlar í hópnum.
Fd. 10. júní. Tilkynnt í talstöð, að Kraki
væri með bilað belti í Hermannaskarði á suður-
leið. Varð Jiað að ráði, að Guðm. skyldi halda
áfram með farþega á Hvannadalshnúk, en jafn-
framt biðja Sigurgeir Geirsson að lána belti á
Kraka og flytja það og varahluti í Jökul II inn
í Jökulheima. Þangað skyldi Jökull II fara til
móts við hann og Gusi fara með þá suður í
Skarð, er hann kæmi sunnan af Öræfajökli.
Um daginn var unnið að þyngdarmælingum,
landmælingum og borun.
Ld. 11. júní. Guðmundur kom með allt fólk-
ið kl. 2 um nóttina, en Sigurjón kom úr Jökul-
heimum um kl. 20. Hélt Gusi þá þegar með
beltið suður í Skarð að sækja Kraka, og
Sd. 12. júní kl. 6 að morgni voru báðir bíl-
arnir komnir heilu og höldnu á Grímsfjall.
Landmælingu haldið áfrarn og unnið að bor-
holu á Háubungu og þyngdarmælingum austan
Grímsvatna.
25