Jökull - 01.12.1979, Síða 3
• •
JOKULL
29. Ár 1979 No. 29
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS JARÐFRÆÐAFÉLAG ÍSLANDS
Þessi árgangur Jökuls er að nokkru frábrugðinn
öðrum árgöngum tímaritsins. Til þess liggja. eftir-
greindar ástæður.
Sumarið 1980 verður 26. alþjóðaþing jarðfræð-
inga haldið í París, en þessi þing eru haldin 4. hvert
ár. Fyrir um tveimur árum barst formanni ís-
landsnefndar Alþjóðasambands jarðfræðinga, Jóni
Jónssyni, bréf þess efnis, að í sambandi við þetta
alþjóðaþing hyggðust Frakkar efna til fræðsluferða
til allra landa Vesturevrópu. Var farið fram á, að
íslenskir jarðvísindamenn tækju að sér stjórn
tveggja slíkra ferða, og semdu að auki yfirlitsrit um
jarðfræði Islands, sem ásamt hliðstæðum ritum frá
öðrum löndum Vesturevrópu yrði steypt saman í
eitt ritverk, Geology of Europe. Mun þess vænst að
í sambandi við næsta alþjóðaþing, sem verða á í
Moskvu 1984, verði jarðfræði Austurevrópulanda
gerð svipuð skil.
Ekki þótti stætt á því, að Island skæri sig eitt úr,
og var því ákveðið að skipuleggja tvær fræðsluferðir
í sambandi við þingið í París og semja yfirlitsrit um
jarðfræði Islands. I ljós kom, að brot Jökuls og
tvídálka uppsetning hentaði Frökkum, sem sjá um
útgáfu heildarverksins. Samþykkti ritstjórn Jökuls
því, að yfirlitsritið yrði birt þar og sá sér þar með
þann leik á borði, að koma út hefti með vönduðu
efni á ódýrari máta en ella með þvi að selja Frökk-
unum filmu af yfirlitsritinu í offset.
Hér kom og til, að tveir áratugir eru liðnir síðan
hliðstætt yfirlit um jarðfræði íslands kom út og af
hliðstæðu tilefni, alþjóðaþingi jarðfræðinga í
Kaupmannahöfn 1960, með fræðsluferð til íslands.
En siðustu tvo áratugi hefur þekking á jarðfræði
íslands aukist og breyst miklu meir en á nokkrum
tveim áratugum síðan Þorvaldur Thoroddsen lauk
sínum rannsóknarferðum um landið.
Sýnt þótti af reynslu, að nauðsynlegt væri að
ritstjórn þessa heftis yrði á einni hendi. Hrósaði
ritstjórn Jökuls happi, er Kristján Sæmundsson
fékkst til að taka þetta verk að sér. Vann hann það
og valdi meðhöfunda í samráði við nefnd á vegum
Jarðfræðafélagsins: Jón Jónsson, Sigurð Þórarins-
son og Svein P. Jakobsson, en þeir skipa einnig
Islandsnefnd Alþjóðasambands jarðfræðinga.
Við uppsetningu yfirlitsritsins var farið að óskum
þeirra, er sjá um samræmingu ritverksins Geology
of Europe. Eru þvi myndatextar aðeins á ensku og
íslenskir útdrættir greinanna birtir saman aftar í
heftinu. Ekki eru neinar tilvitnanir til höfunda í
texta nema með myndum, en listi birtur yfir helstu
heimildarrit varðandi hvern kafla, svo sem títt er í
kennslubókum.
Ritstjórn Jökuls.
This volume of Jökull differs somewhat from
other volumes of the periodical for the following
reason:
In connexion with the XXVI International
Geological Congress to be held in Paris in 1980 it
was decided by the French organizers of the
Congress to arrange excursions to all countries in
Western Europe. It was also decided to publish a
review of the geology of each country. All these
reviews are then to be published together as Geo-
logy of Europe.
According to an agreement with the French edi-
tors of the Geology of Europe a review of the geo-
logy of Iceland is published in this issue of Jökull
and the French editors received a film of it in offset
to use when printing the Geology of Europe. Hence
this volume of Jökull follows the wishes of the
French editors on things such as selected biblio-
graphy after each chapter and no references in text,
legends and text to illustrations only in English, etc.
Editor of Geology of Iceland in this issue of
Jökull is Kristján Sæmundsson, The National
Energy Authority, Reykjavík.
JÖKULL 29. ÁR 1