Jökull


Jökull - 01.12.1982, Side 131

Jökull - 01.12.1982, Side 131
Jöklarannsóknafélag íslands Úr skýrslu formanns um starfsárið 26. febr. 1981 — 23. febr. 1982 Góðir félagar. 1 skýrslu minni fyrir starfsárið 80/81 lét ég í ljós nokkra bjartsýni um framtíð félags okkar. Ég hefi ekki ástæðu til að breyta þeirri skoðun nú, en hún var aðallega byggð á vaxandi skilningi á þýðingu jöklarannsókna fyrir virkjun vatnsorku á íslandi og einnig á því, að tímarit okkar og Jarðfræðafé- lagsins, Jökull, hafi mikilsverðu hlutverki að gegna. Á fjárlögum fyrir 1982 voru veittar 50.000 kr. til útgáfu Jökuls, en 13.000 til Jöklarannsókna- félagsins vegna jöklamælinga. Árgangur 1980 afjökli kom út vorið 1981. Var í því hefti meira af efni á íslensku með útdrætti á ensku en verið hafði um alllangt skeið. Verður svipað um það hefti Jökuls, árganginn 1981, sem nú er í prentun og kemur út innan tíðar. Það er svo um ýmislegt efni, sem í sjálfu sér er áhugavert og hefur nokkurt vísindalegt gildi, að það hefur sér- stakt erindi til íslenskra lesenda, en erlendum les- endum er nægilegt að lesa enska útdrætti og myndatexta. En meirihluti efnisins verður þó afram af því tagi, að aðaltexti á ensku með útdrætti a íslensku er mest við hæfi og raunar er þetta skilyrði fyrir því, að ritið nái æskilegri dreifingu erlendis. í því skyni að fjölga erlendum áskrifend- um Jökuls samdi Leó Kristjánsson kynningarblöð- ung á ensku, sem sendur hefur verið til ýmissa háskóla og bókasafna erlendis. Er og að byrja að sjást árangur af þessu kynningarstarfi, sem verður haldið áfram. Leó er nú aðalritstjóri, en Helgi Björnsson ber áfram höfuðábyrgð á því efni, er varðar hans fræðasvið. Magnús Hallgrímsson sér um íslenskt efni á íslensku með nokkurri aðstoð formanns. Stjórnin hefur samþykkt, að árgjald verði nú 150 kr., en þess skal jafnframt getið, að stjórnin hefur ákveðið, að stjörnuberar félagsins fái Jökul framvegis ókeypis. Er það lítill þakklætis- vottur fyrir starf þeirra í þágu félagsins. Stjarna jafngildir þarmeð nokkurnveginn heiðursfélaga- skírteini. SKÁLAMÁL Ekki er um skálabyggingar eða skálaviðgerðir að ræða á þessu ári, enda allir skálarnir í sæmilegu ástandi og vart þörf á fleirum í bili. Af nýtingu að dæma virðast skálarnir sem reistir hafa verið á síðustu árum hafa komið í góðar þarfir, því aðsókn er talsverð í þrjá þeirra, Kverkfjalla- og Esjufjalla- skálana, og ekki síst í skálann að Kirkjubóli á Langjökli, sem á vaxandi vinsældum að fagna. Grendilsskálinn á og vonandi eftir að koma að verulegu gagni, þegar menn átta sig á því hve mikið austurhluti Vatnajökuls og nærlæg svæði hafa upp á að bjóða. BÍLAMÁL Larartækjaskortur er enn sem fyrr áhyggjuefni, þar eð aðeins bombardierinn getur nú talist ferðafær. LRÆÐSLUFERÐIR Fræðsluferðir urðu ei aðrar á árinu en hin venju- lega haustferð í Jökulheima og virðist sýnt, að ef ekkert sérstakt kemur upp verði erfitt að keppa við ferðafélögin og aðra aðila um sumarferðir og e.t.v. ráð að einbeita sér í bili heldur að því að fá sem flesta í haustferðina í Jökulheima. FUNDARHÖLD Stjórnarfundir voru að vanda nokkrir á árinu, en félagsfundir fjórir. Á aðalfundi félagsins að Hótel Heklu þ. 26. febrúar fjallaði Helgi Björnsson um íssjármælingar á Tungnárjökli og á jöklum í Tarfala í sænska Lapplandi, en um mælingar á sænsku jöklunum hefur hann nú birt merka ritgerð í sænsku tímariti. Magnús Hallgrímsson sýndi myndir úr ferð til Indonesíu. Tveir fræðslufundir voru haldnir á Hótel Heklu og sóttu báða um 90 manns. Á fundinum 14. maí flutti formaður erindi með myndum um ýmis frostfyrirbæri og brugðið var upp myndum af JÖKULL 32. ÁR 127
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.