Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015
Þegar íslenskir alþingismenn vitaekki hvernig þeir eiga að nota
sinn tíma bregðast sumir þeirra við
með því að reyna að breyta honum.
En seinustu fréttir frá Kóreu sýna
að þeir þingmenn eru ekki einir í
heiminum.
Í frétt mbl.is segir:„Park Geun-Hye,
forseti Suður-Kóreu,
hefur gagnrýnt
ákvörðun nágranna
þeirra í norðri um
að breyta klukkunni hjá sér. Hann
segir ákvörðunina „sorglega“. Hún
muni dýpka gjána á milli ríkjanna
tveggja.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu til-
kynntu í seinustu viku að þau hygð-
ust breyta klukkunni hjá sér. Héðan
í frá yrði ríkið í sínu eigin tímabelti,
hálftíma á eftir Suður-Kóreu, en
hingað til hafa ríkin tvö verið í sama
tímabelti.
Norður-Kóreumenn rökstudduákvörðunina þannig að þeir
hefðu verið í sínu eigin tímabelti áð-
ur en Japanir ákváðu á fyrri hluta
seinustu aldar að svipta landið stað-
artíma þess.
Breytingin mun taka gildi 15.
ágúst næstkomandi en þá verða sjö-
tíu ár frá því að Norður-Kóreu fékk
sjálfstæði undan Japönum.“
Þessi viðbrögð grannans eruharðari en búast mátti við.
Allur gangur er á tryggð viðtímabelti á jörðu niðri, þótt
samræmið sé meira á lofti og legi en
á láði. Þannig er sami tími í öllu
Kína sem nær þó yfir 5 tímabelti en
ein 11 tímabelti í Rússalandi. Tíma-
beltin eru 24 og ná yfir 15 lengdar-
gráður og er klukkutími á milli
þeirra.
Því er mjög frumlegt hjá KimJong-Un að breyta sinni klukku
um ½ tíma!
Kim Jong-Un
Klukkan slær
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.8., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 7 þoka
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 17 léttskýjað
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 22 heiðskírt
Brussel 23 heiðskírt
Dublin 13 skúrir
Glasgow 15 léttskýjað
London 22 léttskýjað
París 27 heiðskírt
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 25 heiðskírt
Berlín 32 heiðskírt
Vín 34 léttskýjað
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 25 léttskýjað
Madríd 37 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 32 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 23 skýjað
New York 27 léttskýjað
Chicago 28 skýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:07 22:00
ÍSAFJÖRÐUR 4:55 22:21
SIGLUFJÖRÐUR 4:38 22:05
DJÚPIVOGUR 4:32 21:34
Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur
LEGUR
Í BÍLA OG TÆKI
Það borgar sig að nota það besta!
TRAUSTAR VÖRUR
...sem þola álagið
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is
Kúlu- og
rúllulegur
Maðurinn sem
var handtekinn af
sérsveit lögregl-
unnar í Valla-
hverfinu í Hafn-
arfirði aðfaranótt
mánudags hefur
hafið afplánun á
tíu mánaða fang-
elsisdómi sem
hann hlaut fyrr á
þessu ári.
Lögreglan var með mikinn við-
búnað í hverfinu og var götum lokað
á meðan aðgerðir stóðu yfir, í um
þrjár klukkustundir. Í fyrstu var tal-
ið að maðurinn bæri skotvopn en svo
var ekki.
Sérsveitarmenn ríkislögreglu-
stjóra réðust inn í íbúð mannsins
laust eftir miðnætti í gær og yfir-
buguðu manninn án mótspyrnu, en
hann var með golfkylfu og eggvopn
er hann var handtekinn.
Maðurinn var yfirheyrður í gær
og er málið nú skoðað af ákærusviði
lögreglunnar, sem ákveður hvort
ákæra verði gefin út á hendur hon-
um. Nágrönnum stafaði ekki hætta
af manninum samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu.
Yfirbug-
aður og fer
í afplánun
Handtekinn eftir
umsátur í Hafnarfirði
Frá vettvangi í
Vallahverfinu.
Ísak Rúnarsson
isak@mbl.is
Fyrsta haustlægðin ætlar sér að
koma snemma í ár en að sögn Helgu
Ívarsdóttur, veðurfræðings á Veður-
stofu Íslands, mun hún ganga yfir á
morgun og fimmtudaginn.
„Það verður hvassast við suðvest-
urströndina en það verður mun
hægari vindur um landið norðaust-
anvert. Það verður þurrt lengst af
en einhver væta verður á Norðaust-
urlandi um kvöldið,“ segir Helga en
á heimasíðu veðurstofunnar segir að
vindur verði 13-20 metrar á sekúndu
á miðvikudaginn en hitinn verður á
bilinu 9 til 16 gráður.
Helga segir að talsvert muni rigna
og að jafnvel verði rigningin nær því
að vera lárétt en lóðrétt. Að sama
skapi biður hún fólk um að huga að
lausamunum í kringum sig. „Tals-
verð rigning mun fylgja lægðinni á
Suðvesturlandi. Það verður ekki
mikið ferðaveður sunnan- og vestan-
lands fyrir bíla sem taka mikinn vind
á sig. Þetta er einnig það mikill vind-
ur að fólk ætti að líta í kringum sig
og athuga með lausa muni, það gætu
einhver trampólín farið á vinda-
sömum stöðum.“
Ólíkt því sem áður hefur verið í
sumar gæti besta veðrið á landinu í
þessari viku verið á Norðausturlandi
þar sem kalt hefur verið í sumar.
Fyrsta haustlægðin kemur á morgun
Fólk hvatt til þess að huga að lausamunum í görðum og trampólínum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lægð Það verður rok og rigning.