Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015 Hvern ætlar þú að gleðja í dag? SVIÐSLJÓS Brynja B. Halldórsdóttir brynja@mbl.is Eitt sveitarfélag hefur lýst yfir áhuga á að taka við flóttafólki á næstu mánuðum en ótímabært er að gefa upp hvert það er. Þetta segir Stefán Þór Björnsson, formaður Flóttamannanefndar, sem annast undirbúning móttöku flóttamanna. Svo sem kunnugt er hafa íslensk stjórnvöld lýst yfir vilja sínum til að taka við 50 flóttamönnum á þessu ári og því næsta. Samkvæmt upplýsingum frá vel- ferðarráðuneytinu er stefnt að því að fyrsti hópurinn komi núna í október. Fram hefur komið í fréttum að flóttamennirnir 50 muni koma frá Ítalíu, Sýrlandi, Erítreu, Írak og Sómalíu. Að sögn Stefáns mun 2-4 manna sendinefnd halda utan í þess- um eða næsta mánuði til að kanna aðstæður í einu þeirra landa þaðan sem flóttafólkið mun koma. Þar verður fyrsti hópurinn valinn, í sam- vinnu við Flóttamannastofnun SÞ, og Ísland kynnt fólkinu. Spurður út í framhaldið segir hann Flóttamannanefnd munu funda í næsta mánuði og taka frek- ari ákvarðanir. Fleiri sveitarfélög kunni að lýsa yfir áhuga á samstarfi á næstu vikum og viðræður muni halda áfram við það sveitarfélag sem hefur lýst yfir áhuga nú þegar. Fá sérstaka aðstoð í eitt ár Þau sveitarfélög sem taka við flóttamönnum gera samninga við velferðarráðuneytið sem kveða á um hvers konar þjónustu flóttamenn- irnir eigi rétt á frá sveitarfélaginu. Svo sem kemur fram í viðmiðunar- reglum velferðarráðuneytis um mót- töku flóttafólks á fólkið rétt á sér- stakri aðstoð að lágmarki í eitt ár frá komu til landsins. Aðstoðin felur m.a. í sér fjárhagsaðstoð, húsnæði ásamt innbúi og síma, menntun, leik- skólakennslu, heilbrigðis- og tannlæknaþjónustu, túlkaþjónustu, aðstoð í atvinnuleit og tómstunda- starf. Samkvæmt upplýsingum frá vel- ferðarráðuneytinu er óvíst hversu margir flóttamenn koma til landsins í október og hvar þeir munu búa. Ekki hefur verið ákveðið að auglýsa sérstaklega eftir móttökusveitar- félögum. „Samstarf við sveitarfélög í þessum efnum hefur ávallt verið far- sælt og þeim er öllum kunnugt um þessa ákvörðun stjórnvalda varð- andi móttöku flóttafólks. Það ætti því ekki að vera þörf á að auglýsa þetta sérstaklega,“ segir Margrét Erlendsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, og bætir við að ís- lenska ríkið standi straum af helsta kostnaði sem falli til fyrsta ár flótta- fólks hér á landi samkvæmt samn- ingi við viðkomandi móttökusveit- arfélag. Á öðru ári frá komu flóttafólks endurgreiði ríkið hins vegar fjárhagsaðstoð ef á reyni, á grundvelli laga um félagsþjónustu. Rauði krossinn tekur á móti Rauði kross Íslands (RKÍ) hefur líka veigamiklu hlutverki að gegna, en sjálfboðaliðar hans taka til að mynda á móti flóttafólki þegar það kemur fyrst til landsins. „Við útveg- um ekki húsnæði en það er algengt að sjálfboðaliðar okkar mæti jafnvel á tilvonandi heimili, hreinsi til, geri fallegt og bjóði fólk velkomið. Þann- ig reyna þeir að gefa fólki ákveðna öryggistilfinningu þar sem það kem- ur oft úr erfiðum aðstæðum. Svo reynum við að fylgja þessu starfi eft- ir, til dæmis með því að bjóða upp á vinafjölskyldur sem aðstoða við að- lögun á fyrstu stigum.“ Hann bendir einnig á að Reykjavíkurdeild RKÍ sjái einnig um íslenskukennslu fyrir börn eftir skóla. „Við höfum ekkert um það að segja hvenær fólkið kemur en við veitum því þann stuðning sem það þarf. Lykillinn að því er náið og gott samstarf við ríki, viðkomandi sveitarfélag sem veitir fólkinu við- töku og, síðast en ekki síst, flótta- fólkið sjálft,“ segir Björn. Gott að fá nýtt blóð og strauma Þó svo að enn sé óljóst hvar flótta- fólkið muni búa er umræðan hafin í einhverjum sveitarfélögum. Ásta Svavarsdóttir, kennari í Framhalds- skólanum á Húsavík og fyrrverandi sveitarstjórnarmaður í Þingeyjar- sveit, leggur til að sveitarfélagið bjóðist til að verða móttöku- sveitarfélag. „Það er siðferðisleg skylda allra þjóða að hjálpa þeim sem eiga um sárt að binda. Af þeim sökum taka ýmsar þjóðir við flóttamönnum og reyna að búa þeim nýtt heimili. Mér þykir kjörið að okkar sveitarfélag sinni þessu göfuga hlutverki,“ segir Ásta og bætir við að Laugar og Þingeyjarsveit sé fyrst og fremst friðsælt samfélag. ,,Það væri gef- andi fyrir samfélagið að fá hingað nýtt blóð, stefnur og strauma, sem og aukinn fjölbreytileika. Við hefð- um líka gott af fleiri börnum, þar sem íbúum hér fer því miður fækk- andi.“ Þá bendir Ásta á að á Laugum standi ónotað skólahús eftir að ákveðið hafi verið að flytja alla starf- semi Þingeyjarskóla í húsnæði gamla Hafralækjarskóla, en þar með hafi allri starfsemi í húsnæði Litlu- laugaskóla verið hætt. Umrætt hús hafi upphaflega verið byggt sem íbúðarhús. Að sama skapi séu fjöl- margir menntaðir kennarar búsettir í sveitarfélaginu. Nokkrir þeirra hafi misst atvinnuna við sameiningu grunnskólanna og útlit sé fyrir að fleiri kennarar muni standa í sömu sporum ef Framhaldsskólinn á Laugum verði sameinaður Mennta- skólanum á Akureyri, eins og vilji menntamálaráðuneytisins virðist standa til. Anita Karin Guttesen, verkefna- stjóri mótvægisaðgerða í Þingeyjar- sveit, segir málið ekki hafa komið formlega inn á hennar borð; sveitar- stjórnin verði fyrst að taka ákvörðun um að sækjast eftir að taka við flóttamönnunum. Hins vegar sé ef- laust áhugi meðal íbúa á að taka þátt í verkefninu. „Hér í Þingeyjarsveit er örugglega fjöldinn allur af fólki sem hefur velvilja og álítur jákvætt og spennandi að taka á móti flótta- fólki. Ég tel raunar að það eigi við víðar. Íslendingar eru velviljað fólk, landið ríkt og hefur upp á margt að bjóða. Við getum eflaust veitt flótta- fólki góð lífsskilyrði.“ Aníta vekur þó athygli á því að málið verði að hugsa með heildræn- um hætti og út frá hagsmunum flóttamannanna en ekki sveitar- félagsins sem eigi í hlut. Ónefnt sveitarfélag áhugasamt  Fyrsti flóttamannahópurinn kemur í október  Sendinefnd fer út á næstu vikum að meta fólkið AFP Flóttafólk Von er á fyrsta hópnum til landsins í október næstkomandi. Óvíst er frá hvaða landi þeir munu koma. Stefán Þ. Björnsson Björn Teitsson Ásta Svavarsdóttir Anna K. Guttesen Aðalmeðferð hófst í gær í Hæstarétti í máli Bandalags háskólamanna (BHM) gegn ríkinu. Þar var fjallað um niðurstöðu Héraðsdóms Reykja- víkur frá því í júlí sem hafnaði kröfu BHM um að félagsmönnum þess væri heimilt að efna til verkfalls og að ákvörðun gerðardóms réði ekki kjörum þeirra. BHM stefndi ríkinu vegna laga sem Alþingi samþykkti um miðjan júnímánuð til að stöðva verkföll sem höfðu þá staðið yfir í 68 daga. Lög á verkföll BHM gengu í meginatriðum út á það að átján aðildarfélögum BHM væri óheimilt að efna til verkfalls og að kjör félags- manna þessara félaga yrðu afráðin með ákvörðun gerðardóms sam- kvæmt lögum. Héraðsdómur kvað upp dóm þann 15. júlí síðastliðinn um að ríkinu hefði verið heimilt að setja lög á verkföll BHM. Þá þegar áfrýjaði BHM til Hæstaréttar og var málið þingfest þann 17. júlí og fékk sömu flýtimeð- ferð þar og fyrir héraðsdómi. BHM telur að lögin brjóti í bága við stjórnarskrána og Mannréttinda- sáttmála Evrópu. Morgunblaðið/Styrmir Kári Hagsmunamál Málið fékk flýtimeðferð í bæði héraðsdómi og hæstarétti. Héraðsdómur taldi að ríkinu væri heimilt að setja lög á verkfall BHM. BHM flutti mál sitt fyrir Hæstarétti  Segja lögin vera mannréttindabrot

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.