Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015 Ég er nú að vona að ég nái bónda og börnum út í hjólreiðatúr ítilefni dagsins, en öll fjölskyldan er á kafi í hjólreiðunum ogokkur finnst gaman að hjóla saman. Svo verðum við heima í kvöld og von er á gestum,“ segir Áslaug Thelma Einarsdóttir, sem er fertug í dag. Hún er fædd og uppalin í Keflavík, elst þriggja systkina. Hún útskrifaðist frá Arizona State University í Bandaríkjunum árið 2000 með BA-gráðu og frá Háskólanum í Reykjavík sem MBA síðasta vor. Hún er gift Einari Bárðarsyni, fráfarandi forstöðumanni Höfuð- borgarstofu, en hann hefur störf sem rekstrarstjóri Ferðaskrifstofu Kynnisferða í lok sumars. Saman eiga þau tvö börn: Klöru Þorbjörgu níu ára og Einar Birgi sjö ára. Áslaug starfaði sem forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Icelandair um margra ára skeið. Hún var um tíma stjórnandi hjá Canadian Geothermal Energy Association og síðar sviðsstjóri hjá verkfræðistofunni Mannviti. Árið 2013 söðlaði hún um og fór í MBA- nám í Háskólanum í Reykjavík. Þaðan útskrifaðist hún í vor. Hópur- inn sem Áslaug vann lokaverkefnið sitt með fékk hæstu einkunn sem gefin hefur verið fyrir lokaverkefni í MBA-námi HR. Verkefnið var úttekt á nýrri vöru sem er að koma á markað hjá Össuri hf. Í dag er Áslaug eigandi og framkvæmdastjóri Meðbyrs, ráðgjafar og viðburða, sem m.a. á og rekur hjólreiðamótið KIA Gullhringinn, hjólreiðablaðið Pedala og tónlistarviðburði á borð við Óperudraug- ana. Hún er einnig formaður stjórnar Markaðsstofu Kópavogs, situr í stjórn Rio Tinto Alcan á Íslandi og fleira. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Golli Hjónin Áslaug Thelma og Einar maður hennar á góðri stundu. Hjólreiðatúr og svo er von á gestum Áslaug Thelma Einarsdóttir er fertug í dag H elga Jónsdóttir fæddist á kvistherberginu hjá ömmu sinni og afa í Pálsborg sem stóð við Njarðarstíg í Vest- mannaeyjum 11. ágúst 1955. „Bernskuárin voru í minningunni ei- líft sumar og sól þar sem ég bjó fyrstu ár ævi minnar í austurbæ Vestmannaeyja í Húsavík sem stóð við Urðarveg 28 en stór hluti austur- bæjarins fór undir hraunið í gosinu 1973 og þar með talið þessi hús. Sumarið 1967 flutti fjölskyldan í Hjarðarholtið sem stendur við Vest- mannabraut og hefur það hús verið í eigu fjölskyldunnar síðan. Á þessum árum kynnist ég skáta- starfinu, sem átti eftir að hafa mikil áhrif á líf mitt, því að þar var mikil gróska í tónlistarlífinu, leiklistinni, ferðalögum og öllu félagslífi. Á þessu tímabili uppgötva ég tónlistarhæfi- leika mína, keypti mér fyrsta gítarinn og stofnaði stelpnatríó og komum við fram við ýmis tækifæri. Þarna er hippatíminn að renna sitt skeið og náði ég að upplifa timburmenn hippa- byltingarinnar. Aðeins það besta frá henni eins og tónlistina, myndlistina, tískuna og allt það skemmtilega sem þessi tími gaf meðtók ég fagnandi. Á þessum árum hitti ég æskuástina mína, Arnór Hermannsson. Við kynntumst þegar við unnum saman að myndlistarverkefni fyrir Gagn- fræðaskólann í Vestmannaeyjum þar sem við vorum bæði nemendur.“ Virk í tónlistinni „Ég samdi mörg lög fyrir börn og árið 1995 stofnaði ég barnakórinn Litla lærisveina í Landakirkju sem gaf út þessa tónlist mína með kórn- um. Má segja að þar hafi orðið vendi- punktur á lífi mínu því að þarna hitti ég Didda fiðlu sem hvatti mig ein- dregið að fara að læra tónlist, sem ég og gerði. Ég byrjaði í tónfræði hjá Báru Gríms og söngnámi hjá Ingveldi Ýri Jónsdóttur og þarna rættust Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri – 60 ára Hjónin Helga og Arnór sumarið 2012 stödd nálægt þeim stað þar sem bernskuheimili Helgu var. Hippinn í bakaríinu Fjölskyldan Orri, Aron, Helga, Arnór, Örvar, Davíð og Gyða á jólum 2012. Vinkonurnar Aðal- heiður Anna og Arndís Svava héldu tombólu við verslun Samkaupa við Hrísalund. Þær gengu í hús í hverf- inu sínu og söfnuðu dóti sem þær buðu síðan á tombólunni. Þær styrktu Rauða krossinn með ágóð- anum, 8.500 kr. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isHlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Aldrei hefur verið auðveldara að heyra Enn er bætt um betur með nýju ReSound heyrnartækjunum sem gefa eðlilega og áreynslulausa heyrn. Taktu þátt í framþróuninni og prófaðu þessa hágæða tækni. GOLDEN LOBE AWARDS 2014 ASSOCIATION OF INDEPENDENT HEARING HEALTHCARE PROFESSIONALS Most Innovative Concept 2014 presented to: Resound - LiNX made for iPhone

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.