Morgunblaðið - 11.08.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Allar útsölubuxur
3.900 KR.
Bonito ehf. • Friendtex • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is
Opið mánud. - föstud. 11:00-17:00, lokað laugardaga.
ÚTSALA
Skoðið flottu fötin á friendtex.is
Mikill afsláttur
2 fyrir 1
Lokadagur föstudag
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Túnfiskveiðar hófust suður af
landinu í lok síðustu viku og í gær
voru 13 túnfiskar komnir í lest Jó-
hönnu Gísladóttur GK 557. Eftir
var að draga síðustu lögnina á
miðunum um 140 mílur suður af
Dyrhólaey. 10-12 tíma tekur að
draga línuna, sem er hátt í 40 sjó-
mílur, en að auki um og yfir hálf-
tíma að þreyta hvern fisk og koma
um borð. Löndun er ráðgerð í
Grindavík á morgun, en það er
nokkru fyrr en á síðasta ári, þegar
fyrsta löndun var 26. ágúst.
Íslendingum er aðeins heimilt
að veiða brot af leyfilegum afla úr
stofni Austur-Atlantshafs bláugga-
túnfisks, eða um 32 tonn. Vísi hf. í
Grindavík var úthlutaður kvótinn í
ár eins og í fyrra, en þá veiddi Jó-
hanna Gísladóttir 125 fiska. Þá
fengust átta tonn af túnfiski sem
meðafli á makrílveiðum og var
beinum veiðum því hætt þegar 22
tonnum var náð, en kvótinn var þá
um 30 tonn. Á vef Fiskistofu kem-
ur fram að eitt skip hefur tilkynnt
um túnfiskafla til þessa í ár, en
Gnúpur GK hefur landað 631 kílói
af túnfiski.
Japanskur eftirlitsmaður
Að sögn Péturs Pálssonar,
framkvæmdastjóra Vísis, var
ákveðið að hefja veiðarnar fyrr í
ár en áður hefur verið gert og
kanna markaðsaðstæður fyrir tún-
fisk á þessum tíma. Um ákveðna
tilraun er að ræða um leið og
þekkingar er aflað á markaðnum.
Reiknað er með að aflinn fari til
Japan, Evrópu og Bandaríkjanna
og áhersla lögð á að aldrei líði
meira en átta dagar frá því að
fiskur veiðist þar til hann er kom-
inn á fiskmarkað erlendis. J-
Trading annast markaðsmál fyrir
Vísi, en framkvæmdastjóri þess
fyrirtækis er Eyþór Eyjólfsson,
sem gjörþekkir þennan markað,
að sögn Péturs.
J-Trading er með höfuðstöðvar í
Tókýó og á túnfiskeldi í Króatíu.
Lengra er að sækja túnfiskinn á
þessum tíma en þegar kemur fram
í október og fiskurinn er ekki eins
feitur á ætisgöngu sinni norður á
bóginn. Á móti kemur að veður
eru ekki eins erfið á þessum tíma
og þegar kemur fram á haustið.
Vísir reiknar með að auka útflutn-
ing til Japan þegar beint flug
hefst þangað 5. september og
verður japanskur eftirlitsmaður
um borð alla vertíðina.
Góð byrjun túnfiskveiða
Byrja veiðarnar fyrr en í fyrra og kanna markaðsmöguleika Jóhanna Gísladóttir
GK 557 komin með 13 túnfiska í gær Línan hátt í 40 sjómílur djúpt suður af landinu
Ljósmynd/Hjálmtýr Hjálmtýsson
Túnfiskskveiðar Alls veiddust 125 fiskar á vertíðinni í fyrrahaust. Í gær
voru 13 fiskar komnir í lestina og eftir var að draga línuna einu sinni.
Haraldur Einarsson, 1. stýri-
maður á Jóhönnu Gísladóttur
GK 557, lét vel af túnfiskveið-
unum þegar rætt var við hann
um hádegi í gær. Einn fiskur
fékkst í tveimur fyrstu lögn-
unum, síðan sjö og fimm í
fyrrinótt. Eftir var að draga
síðustu lögnina og átti að
byrja á því síðdegis í gær.
Allir fiskarnir hafa verið yfir
tveir metrar að lengd, sá
lengsti 2,40 m og sá stysti
2,09 m. „Þetta er eins og í
öðrum veiðiskap, ef það er
fiskirí þá er gaman,“ sagði
Haraldur.
Gaman ef
það fiskast
YFIR TVEGGJA METRA FISKAR
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson
var væntanlegt til Reykjavíkur úr
makrílleiðangri í gærkvöldi, en
jafnframt var leiðangurinn notaður
til hvalatalningar, sem einnig er að
ljúka. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins var talsvert af makríl fyrir
sunnan land og austan og meira af
makríl suður af landinu en síðustu
ár. Vegna gengdar makríls var
rannsóknatími lengdur á suður-
svæðinu í upphafi leiðangurs Árna
Friðrikssonar.
Bæði þessi verkefni, makrílrann-
sóknir og hvalatalning, eru unnin í
samvinnu við aðrar þjóðir. Fyrstu
niðurstöður ættu að liggja fyrir
fljótlega.
Skip leigt í haustrall
Frá 10. júní til mánaðamóta var
Árni Friðriksson við rannsóknir á
úthafskarfa samhliða hvalatalningu.
Á heimasíðu Hafrannsóknastofn-
unar kemur fram að skipið fari síð-
ar í mánuðinum í verkefni sem
tengist kortlagningu hafsbotnsins,
en síðan taki loðnurannsóknir við
frá miðjum september og fram í
október.
Haustrall tekur síðan stærsta
hluta októbermánaðar. Fyrir
nokkru var auglýst eftir tilboðum í
leigu á togara til þess verkefnis og
verður hann notaður til mælinga á
grunnslóð, en Árni Friðriksson á
djúpslóðinni.
Rannsóknaskipið Bjarni Sæ-
mundsson var að mestu við hvala-
talningar frá 9. júní fram undir lok
júlímánaðar. Þá tók við könnun á
ástandi úthafsrækjustofnsins og
síðan á ástandi sjávar. aij@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Hafrannsóknastofnun Árni Frið-
riksson og Bjarni Sæmundsson.
Meira af
makríl
á suður-
svæði
Um tugur nýrra uppsjávarskipa hef-
ur bæst í flota Norðmanna á síðustu
18 mánuðum. Nýjasta skipið í þess-
um flota er „Smaragd“, en það er 74
metra langt, 15,8 metrar á breidd og
ber um 2.100 rúmmetra. Skipinu var
gefið nafnið „Smaragd“ við komuna
til heimahafnar í Leinevika á Herøy
fyrir helgi.
Nýi „gimsteinninn“ kemur í stað-
inn fyrir Hoffell SU 80, sem selt var
Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði í
fyrra og kom til heimahafnar 6. júlí
fyrir rúmu ári. Það skip var smíðað
1999 og hefur reynst Loðnuvinnsl-
unni mjög vel.
Skrokkur nýja skipsins var smíð-
aður í Tyrklandi, en allri annarri
smíði var síðan lokið í Havyard--
skipasmíðastöðinni í Leirvík, yst í
Sognsfirðinum. Algengt hefur verið
að ný norsk skip hafi síðustu misseri
verið smíðuð í Tyrklandi og Dan-
mörku, auk þess sem norskar
skipasmíðastöðvar hafa á ný orðið
samkeppnishæfari. Áætla má að
kaupverð nýja skipsins hafi numið
hátt í fjórum milljörðum íslenskra
króna. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins er ekki óalgengt að stærri
norskar útgerðir endurnýi skip sín á
um 15 ára fresti
Afhendingu skipsins seinkaði um
nokkra mánuði, en upphaflega stóð
til að það yrði afhent í aprílmánuði
síðastliðnum. Útgerð nýja skipsins
er fjölskyldufuyrirtæki, sem á hlut í
öðru skipi, sem veiddi kvóta fyrir-
tækisins meðan nýja skipsins var
beðið. aij@mbl.is
Ljósmynd/Havyard/Tor Erik Kvalsvik
Til heimahafnar Nýtt skip í uppsjávarflota Norðmanna siglir inn til heima-
hafnar. Nýjum skipum hefur fjölgað verulega í norska flotanum undanfarið.
Nýr „gimsteinn“
kemur í stað Hoffells