Morgunblaðið - 11.08.2015, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Það er mikill heiður að fá aðvinna með þolendumáfalla. Þarna kemur fólksem horfist í augu við það
versta sem hefur gerst í lífi þess.
Það er ekkert magnaðra en að
kveðja skjólstæðing eftir farsæla úr-
vinnslu. Ég hef fengið að kynnast
þvílíkum hetjum í gegnum tíðina.
Það er þess vegna sem ég er sál-
fræðingur í dag, þetta gefur svo
mikið,“ segir Berglind Guðmunds-
dóttir, dósent í sálfræði við lækna-
deild HÍ og yfirsálfræðingur Land-
spítala Háskólasjúkrahúss og hefur
starfað sem klínískur sálfræðingur
hér á landi í tæp tíu ár. Hún heldur
erindi á ráðstefnunni, Konur, fíkn,
áföll og meðferð sem haldin verður
1. og 2. september 2015, á Grand
hóteli í Reykjavík sem nefnist því
skilmerkilega nafni: Hugræn atferl-
ismeðferð við áfallastreituröskun
fyrir konur sem þjást af fíknivanda.
Vinna sig í gegnum áfallið
„Þó að þú náir að vinna með
vímuefnavandann en ert enn með
áfallastreitu þá ertu í aukinni hættu
á að falla á nýjan leik því neyslan
hjálpaði til við að deyfa áfallaminn-
ingarnar og vanlíðan tengda því. Þú
kemst ekki fram hjá áfallastreitu-
röskun, þú þarft að vinna þig í gegn-
um hana. Margir vita ekki að það er
hægt að vinna úr hræðilegum áföll-
um á farsælan hátt. Það er aldrei of
seint að vinna með áföll,“ segir
Berglind.
Fjöldi rannsókna hefur sýnt að
orsakasamhengi er á milli áfalla,
einkum áfalla í æsku, og fíknivanda.
Að sögn Berglindar þjást u.þ.b. 30-
50% þeirra sem greinast með áfeng-
is- og/eða vímuefnavanda einnig af
áfallastreituröskun. Berglind segir
þetta hlutfall gríðarlega hátt.
Þetta þýðir að þessir einstak-
lingar eru með tvær raskanir sem
tengjast náið. „Til þess að ná árangri
í meðferð sýna rannsóknir að best sé
að vinna með báðar raskanir á sama
tíma. Hugræn atferlismeðferð hefur
hentað mjög vel í þessu samhengi og
er árangursrík þó svo að aðrar að-
ferðir hafi einnig reynst vel,“ segir
Berglind. En konur sem lenda í
áfalli eru tvisvar til þrisvar sinnum
líklegri en karlar til að þjást af
áfallastreituröskun. Þá verða mun
fleiri konur fyrir kynferðisofbeldi en
karlar.
Rannsóknir sýna að algengast
er að áfallið sem einstaklingar verða
fyrir eigi sér stað áður en vímuefna-
vandi þróast. Þegar talað er um
áfallastreituröskun þá er þetta vandi
sem þróast í kjölfar tiltekinnar teg-
undar af atburði. „Það sem er sér-
stakt við áfallastreituröskun er að
sjúkdómurinn þróast þegar eitthvað
kemur í veg fyrir eðlilegt bataferli
eftir áföll. Áföllin geta verið af ólík-
um toga, t.d. líkamlegt, andlegt of-
beldi, slys, ástvinamissir og þar fram
eftir götunum. Þú getur bæði upp-
lifað þennan atburð sjálf/ur eða orð-
ið vitni að honum eða fengið vitn-
eskju um einhvern náinn þér sem
hefur orðið fyrir svona atburði,“ seg-
ir Berglind en bendir á að það sé þó
alltaf umdeilt í fræðunum hvernig
áfall er skilgreint.
„Það sem er svo dásamlegt við
mannskepnuna er að við búum yfir
gríðarlegri hæfni til að vinna úr
Aldrei of seint að
vinna með áföll
Rótin, félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda, heldur ásamt fleirum
ráðstefnu um konur, fíkn, áföll og meðferð, hinn 1. og 2. september á Grand hóteli
í Reykjavík. Að mati Rótarinnar þarf að efla kynjamiðaða fíknimeðferð sem tekur
mið af því háa hlutfalli kvenna sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða annarri mis-
notkun á lífsleiðinni.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Von Það er aldrei of seint að ná bata, segir Berglind sálfræðingur.
Sumir eru með svo ljósa húð að sólin
þarf ekki að skína lengi á hana til að-
hún roðni og sólbrenni. Við þetta
vandamál býr hin kanadíska
Rachel Pautler. Hún sólbrennur
gjarnan þrátt fyrir að maka
rækilega á sig sólarvörn áður
en hún fer á ströndina. Hún
var orðin leið á þessu og
ákvað að finna út heppilega
aðferð til að koma í veg fyrir
þetta. Eftir mikla yfirlegu í
verkfræðinámi í Háskólanum
í Waterloo var penni heppi-
legasta lausnin. Penninn er
notað undir sólarvörnina og
gefur frá sér blek sem nem-
ur útfjólubláa geisla sólar.
Þegar sólarvörnin hættir að
verja húðina fyrir skaðleg-
um áhrifum geislanna verð-
ur fjólubláa blekið sýnilegt á
ný, sem gefur til kynna að
tímabært sé að smyrja aðra
umferð af sólarvörn.
Penninn er markaðssettur
fyrir foreldra til að nota á
börnin þó svo að allir geti
nýtt sér eiginleika hans.
„Foreldrar geta notað þetta
sem skemmtilegan leik með
börnunum sínum og teiknað
flottar myndir,“ segir Rachel
Pautler og bætir við að það sé oftar
en ekki hrein ágiskun hvenær og
hvort smyrja þurfi meiri sólarvörn á
litlu krílin.
Pautler stofnaði fyrirtækið CEO of
Suncayr ásamt bekkjarfélögunum
sínum úr Háskólanum í Waterloo, en
penninn var hluti af lokaverkefni
nemendanna í verkfræði. Nemend-
urnir fengu það verkefni að búa til
vöru sem myndi leysa raunveruleg
vandamál sem þeir stæðu frami fyrir
í lífinu.
Penninn verður fáanlegur í
september á heimasíðunni, en þar er
einnig hægt að fylgjast með næstu
skrefum sprotafyrirtækisins. Skrifað
er um þennan nýstárlega penna í
Huffington Post.
Vefsíðan www.suncayr.ca
Morgunblaðið/Ómar
Sól Svokallaður sólarpenni gæti komið í veg fyrir sólbruna í framtíðinni.
Listaverk teiknað á húðina með
penna til að forðast sólbruna
Sólarpenni Það er handhægt að
grípa þennan með í töskuna.
Finnska búðin opnar nýja verslun í
Kringlunni þann 14. ágúst. Finnska
búðin mun bjóða upp á enn meira úr-
val af vörum frá hinu vinsæla merki
Marimekko. Finnsku búðirnar verða
því tvær á höfuðborgarsvæðinu.
„Marimekko er best þekkta
finnska fatamerkið og það er mjög
ánægjulegt að geta boðið viðskipta-
vinum okkar upp á enn meira Mari-
mekko úrval en við höfum gert hing-
að til,“ segir Maarit Kaipainen, einn
af eigendum Finnsku búðarinnar, í til-
kynningu. Auk vara frá Marimekko
verða t.d. vörumerkin Iittala, Ivana
Helsinki og Nokian-stígvél sem Ís-
lendingar þekkja og Aarikka sem
framleiðir skartgripi, fallegar eldhús-
vörur og fleira.
Finnska búðin hefur verið rekin á
Laugavegi 27 í tæp þrjú ár og verður
þar áfram. Hún hefur gengið vel og
ljóst að Íslendingar kunna að meta
finnska hönnun og auðvitað eru
Múmínálfarnir alltaf vinsælir, segir
enn fremur í tilkynningu.
Finnska búðin opnar í Kringlunni
Meira af finnskri hönnun,
Marimekko og Múmínálfar
Litríkar stelpur Eigendur Finnsku búðarinnar, þær Satu Ramo, Maarit Kaipai-
nen og Piia Mettala, opna Finnsku búðina í Kringlunni í vikunni.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Veitingaþjónusta í 35 ár
Framúrskarandi
matreiðsla og góð þjónusta
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Hafðu samband og fáðu ráð
Veislur eru okkar sérgrein
ALHLIÐAVEISLUÞJÓNUSTA
FYRIR HVERS KYNSVIÐBURÐI
Árshátíðir
Afmæli
Brúðkaup
Fundir
Erfidrykkjur