Morgunblaðið - 11.08.2015, Page 20

Morgunblaðið - 11.08.2015, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015 ✝ Guðrún Sveins-dóttir, hjúkr- unarfræðingur, fæddist að Reyni í Mýrdal 7. septem- ber 1928. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 2. ágúst 2015. Guðrún var dótt- ir hjónanna Sveins Einarssonar, f. 11. mars 1895, d. 31. júlí 1974, bónda og kennara, og Þórnýjar Jónsdóttur, f. 21. des- ember 1893, d. 13. júní 1976, húsfreyju. Systkini Guðrúnar eru Jón, f. 2. apríl 1927, fv. bóndi á Reyni, Guðbjörg, f. 16. maí 1931, meinatæknir og Sig- ríður Einars Sveinsdóttir, f. 28. nóvember 1932, kennari. Guðrún giftist 25. maí 1960 Hrólfi Ásvaldssyni, viðskipta- fræðingi, f. 14. desember 1926, d. 5. desember 1982. Foreldrar hans voru Ásvaldur Þorbergs- son, bóndi á Ökrum í Reykja- Einar, f. 1987. 2) Hildur Björg, f. 13. júní 1963, verkfræðingur. Maður hennar er Ómar Ims- land, f. 1. desember 1956, verk- fræðingur og MBA. Synir Óm- ars eru Ragnar, f. 1980, Birgir, f. 1984, Gunnar Ölvir, f. 1986, d. 2001, og Arnar, f. 1992. Guðrún stundaði nám við Húsmæðraskólann á Laugar- vatni 1944-1945. Lauk námi frá Hjúkrunarskóla Íslands 1954 og framhaldsnámi í heilsuvernd frá Statens Helsesösterskolen Oslo 1958. Á áttunda áratugn- um lærði Guðrún einnig svæð- anudd. Hún var hjúkrunarfræð- ingur við Landspítalann 1954-- 1955, Stureby Vårdhem, Stokk- hólmi 1955-1956, Lasarettet Vånersborg 1956-1957, Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur frá 1958 og síðar út starfsævina heilsuverndarhjúkrunarfræð- ingur við Breiðagerðis- og Réttarholtsskóla. Á sínum yngri árum tók Guðrún þátt í félags- og kjaramálum fyrir hjúkrunarfræðinga. Hún var fé- lagi í Guðspekisamtökunum frá upphafi og tók virkan þátt í starfi þeirra fram á dánardag. Útför Guðrúnar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 11. ágúst 2015, og hefst athöfnin kl. 13. dal, f. 11. október 1898, d. 18. ágúst 1949, og Sigríður Jónsdóttir, hús- freyja, f. 15. apríl 1903, d. 5. apríl 1992. Dætur Guð- rúnar og Hrólfs eru : 1) Æsa, f. 19. ágúst 1961, heils- unuddari. Maður hennar er Ingi Hafliði Guðjónsson, f. 19. mars 1964, matreiðslu- maður og viðskiptafræðingur. Fyrri maður Æsu er Hjörleifur Sigurðarson, f. 25. október 1957, bóndi á Grænavatni í Mý- vatnssveit. Börn Æsu og Hjör- leifs eru: a) Brynja, f. 1. júlí 1983, sjúkraþjálfari, b) Arna, f. 16. febrúar 1988, landfræð- ingur, c) Hrólfur, f. 18. nóv- ember 1991, tölvunarfræð- ingur. Unnusta hans er Ástríður W. Ríkharðsdóttir, f. 1991. Börn Inga Hafliða eru Dóra Björg, f. 1984, og Ingvi Hvað er ein mannsævi? Örskot í eilífðarhafi? Við systkinin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fæðast og alast upp hjá góðum foreldrum, sem veittu okkur gott veganesti út í lífið við leik og störf og nám. Guðrún Sveinsdóttir hlaut í vöggugjöf dugnað og drifkraft, sem entist henni til æviloka. Hún lauk námi frá Hjúkrunarskóla Ís- lands. Eftir það fór hún til starfa og frekara náms í Svíþjóð og Noregi, þar sem hún lærði heilsu- verndarhjúkrun. Þegar Guðrún var við nám í Noregi var þar einnig önnur ís- lensk kona, Katrín Jónsdóttir að nafni, ættuð frá Hraunkoti í Landbroti. Hún var kennari við Austurbæjarskólann í Reykjavík og var þarna við nám í kennara- orlofi. Áður en haldið skyldi heim til Íslands ákváðu þær að fara í skemmtireisu til Rómar. Þegar þangað kom snerist ferðin upp í andhverfu sína því að þær smituðust af einhverri hræðilegri veiki, sem hefur trú- lega verið heilahimnubólga. Katrín galt fyrir hana með lífi sínu, en Guðrún barðist hér ein við hana í leiguherbergi í Reykja- vík, án þess að við fjölskyldan vissum af fyrr en eftir á. Hún hafði sig upp úr veikindunum og komst á kreik, en hún bar aldrei fyllilega sitt fyrra barr eftir þetta. Svo leið tíminn og hún stofnaði fjölskyldu með Hrólfi Ásvalds- syni frá Ökrum í Reykjadal. Þau eignuðust tvær hjartkærar dæt- ur, Æsu og Hildi Björgu. Aðalstarfsvettvangur Guðrún- ar var við Breiðagerðis- og Rétt- arholtsskóla, þar sem hún var skólahjúkrunarkona. Hún tók líka oft aukavaktir á sjúkrahús- um. Hrólfur lést langt fyrir aldur fram árið 1982. Guðrún var óspör á glaðlegt viðmót, hjálpsemi og rausn, svo það var alltaf eftirsóknarvert að vera í návist hennar. Ég nefndi áður, að dugnaður hennar hafi enst henni til ævi- loka. Hún lét sig ekki muna um það að hreingera og mála hjá sér í vor og sumar og daginn áður en holskeflan skall yfir var hún úti í garði að snyrta tré og runna, manneskjan hátt á 87. aldursári. Faðir og vinur alls sem er! annastu þennan græna reit; blessaðu, faðir! blómin hér, blessaðu þau í hvurri sveit. Vesalings sóley! sérðu mig, sofðu nú vært og byrgðu þig; hægur er dúr á daggarnótt, dreymi þig ljósið, sofðu rótt. (Jónas Hallgrímsson) Elsku Gunna mín. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku systir. Sigríður E. Sveinsdóttir. Elskuleg móðursystir mín er látin. Þegar litið er um farinn veg, er efst í huga þakklæti fyrir náin tengsl. Þegar ég heimsótti Gunnu tók hún mér opnum örmum og alltaf fékk ég einhverjar góðgerð- ir þó ekki væri nema létt spjall þar sem oft var hlegið. Í æsku minni fékk ég stundum að gista hjá Æsu og Hildi, dætr- um hennar og þá var glatt á hjalla. Einnig þegar farið var í lautarferðir og bíltúra um helgar og seinna í sumarbústaðinn í Mýrdalnum. Hún var stoð og stytta fjölskyldunnar og oft hægt að leita til hennar ef eitthvað bjátaði á. Hrólfur eiginmaður Gunnu var einnig einkar hlýlegur í minn garð. Níska var eitur í hans bein- um og þegar gest bar að garði vildi hann að móttökur væru höfðinglegar. Gunna stóð fyllilega undir væntingum hans. Myndarskap hennar var við brugðið. Flestir í fjölskyldunni áttu sparilök útsaumuð með klaustri og harðangri eftir hana. Einnig orkeraði hún og prjónaði auk þess sem hún gerði heimili sitt afar vistlegt. Á efri árum fékk hún áhuga á að skera út gler og setja saman listaverk. Þannig gerði hún fjöl- marga engla enda hneigðist hún til guðspeki. Gunna var víkingur til verka og heilsuhraust fram í andlátið. Hennar er sárt saknað. Gunna mín elskuleg. Ég kveð þig með trega í hjarta og þakka þér fyrir allt. Hvíl í friði. Þórný. Snemma á jólaföstu árið 1962 bættist mér sú þekking að til væru systur þrjár frá Reyni í Mýrdal. Þær hétu Guðrún, Guð- björg og Sigríður. Þetta hefði í raun ekki þurft að teljast nein stórtíðindi, en hér fór þó sem oft- ar að atburðir sem ekki virðast sérlega stórir eiga það til að draga langan slóða. Að ári liðnu vorum við Sigríður frá Reyni orð- in hjón og farin að bolloka í kjall- aranum á Laugateigi 16 í Reykja- vík. Og þá hafði sjálf Lífshamingjan barið að dyrum hjá mér. (Já, Lífshamingjan, með stórum staf). Betri lífsförunaut en hana hefði ég ekki getað fund- ið á öllu Íslandi og þótt víðar hefði verið leitað. Og ekki heldur betra mágafólk. Skemmtilegt, glaðsinna og á allan hátt vel úr garði gert frá náttúrunnar hendi, enda hefur aldrei neinn skugga borið á þau samskipti frá upphafi og til þessa dags. En nú hefur verið höggvið skarð í litla hópinn okkar, að vísu ekki óvænt. Guðrún mágkona mín er dáin, eftir erfið veikindi. Samt er eins og ég geti ekki trúað þessu. Hvaða erindi á dauðinn eiginlega við þessa sterku og táp- miklu konu? Jú, ætli að hann sé ekki að sýna okkur, ennþá einu sinni, að það erum ekki við sem ráðum, þegar á reynir. Ekki held ég að við Guðrún Sveinsdóttir höfum verið neitt sérlega lík, sem ekki var heldur von, enda óskyld með öllu. En eitt áttum við þó sameiginlegt: Okkur þótti báðum gaman að gantast og láta eitt og annað fjúka. Allt var það þó á léttum nótum og aldrei var í því minnsti vottur af áreitni í garð annars fólks, hvað þá ill- kvittni. Þessu kunni ég afar vel, því mér hefur alltaf leiðst þessi broddur, sem of oft setur svip á okkar „íslensku fyndni“. Ekki ætla ég að rekja hér starfsferil mágkonu minnar, það munu aðrir sjálfsagt gera. Vissu- lega var líf hennar oft ekki neinn dans á rósum, en þá sást best hví- lík hetja hún var og víkingur til allra verka. Erindi mitt með þessum línum er aðeins að þakka Guðrúnu Sveinsdóttur langa og góða sam- fylgd og óska henni velfarnaðar á nýjum leiðum. Valgeir Sigurðsson. Við vitum sjaldnast hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Örlögin höguðu því þannig að ég var snögglega lögð inn á Land- spítalann þar sem næst mér lá Guðrún mágkona mín á eins manns stofu, en hún hafði fengið áfall nokkrum dögum fyrr. Veik- indi mín voru væg en hennar al- varlegri. Ég átti þess kost að færa mig öðru hvoru að hennar rúmi og eftir á að hyggja er ég ákaflega þakklát fyrir þær kyrrð- arstundir sem við áttum þar sam- an. Kynni okkar ná yfir meira en hálfa öld, eða frá því að Hrólfur bróðir minn kynnti hana sem konuefni sitt. Eðlilega var bróðir minn mjög upp með sér af glæsi- leik Guðrúnar en líka mátti heyra á honum stolt yfir skaftfellskum ættum hennar úr Mýrdalnum þar sem hún átti stóran frændgarð. Ekki verður Guðrúnu full- þakkað hve vel hún reyndist Hrólfi á erfiðum tímum hans með Bakkusi. Þó persónuleiki hans hafi í raun verið töfrandi hefur örugglega mikið reynt á sambúð- ina á stundum. Öll sumur þeirra Guðrúnar og Hrólfs lá leið þeirra norður í Akra í sumarleyfum. Koma þeirra bar með sér ferskan blæ ánægju og tilbreytingar. Guðrún var heimsmanneskja, renndi fyr- ir silung og lax og börnum þessa tíma er það einna minnisstæðast hve leikin hún var í að vefja sína eigin vindlinga sem ultu óaðfinn- anlegir út úr þar til gerðu appa- rati. Þennan ósið lagði Guðrún þó fljótlega á hilluna. Guðrún var einstaklega heil- steypt, hlý og góð manneskja. Hún trúði á það góða í hverjum manni og hugur hennar sveif á stundum ofar því jarðneska. Hún treysti á mátt hugans og líknandi kraft handa sinna. Þessa alls varð ég vel aðnjótandi og þegar ég greindist með krabbamein fyrir 25 árum var hún tilbúin með hug sinn og hendur að styðja góðan bata minn. Alltaf síðan hef ég notið þessarar líknar þegar leiðir hafa legið saman. Elsku Æsa, Hildur Björg og Badda. Ég færi ykkur og fjöl- skyldum ykkar innilegar samúð- arkveðjur norðan frá Ökrum. Missir ykkar er mikill en minn- ingin um góða móður, systur, tengdamóður og ömmu mun verma hug ykkar um ókomin ár. Guð blessi minningu Guðrúnar Sveinsdóttur. Þuríður Ásvaldsdóttir. Það er með sorg í hjarta að ég kveð Guðrúnu Sveinsdóttur, kæran vin, samstarfsmann og einlægan starfsmann ljóss og kærleika. Guðrún starfaði með Guðspekisamtökunum í Reykja- vík, Nýju Avalon miðstöðinni í rúm 30 ár. Hún var ein af fyrstu nemendum Norræna heilunar- skólans þegar hann hóf starfsemi sína í Reykjavík í janúar 1985. En skólinn var undanfari stofnunar Nýju Avalon miðstöðvarinnar sem áður hét Ljósheimar. Guð- rún var um 30 ára skeið ein af máttarstólpum þess starfs sem miðstöðin stendur fyrir sem er að færa kærleika og ljós út í heiminn í formi heilunar, kennslu í guð- speki o.fl. Einlæg tryggð Guð- rúnar og óeigingjarnt starf henn- ar í þágu miðstöðvarinnar er okkur ákaflega kær minning nú þegar við kveðjum þig, elsku Guðrún. Margar góðar minning- ar koma upp í hugann, m.a. þau skipti sem Guðrún kenndi í heil- unarskólanum um blómadropa. Blíð og umvefjandi nærvera hennar umvafði okkur öll og allt- af var stutt í bjart brosið og dill- andi hlátur hennar. Um leið minnist ég einnig hversu sterk Guðrún var. Þrátt fyrir veikindi af og til á síðari árum stóð hún alltaf sína vakt og lét á engu bera þó ljóst væri að líðan hennar væri ekki alltaf góð. Við eigum Guðrúnu mikið að þakka. Megi góður Guð umvefja þig elsku Guðrún og blessa þig og fjölskyldu þína. Fyrir hönd Nýju Avalon mið- stöðvarinnar, Eldey Huld Jónsdóttir. Guðrún Sveinsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÓLFUR KONRÁÐSSON, Suðurlandsbraut 58, áður Njörvasundi 31, Reykjavík, lést á Landspítalanum Hringbraut fimmtudaginn 6. ágúst. . Ragnheiður Halldórsdóttir, Helga M. Arnarsdóttir, Þorsteinn Helgason, Andrés R. Ingólfsson, Guðlaug H. Konráðsdóttir, Halldór Ingólfsson, Elísabet Þ.Á.M. Pétursdóttir, Ásberg K. Ingólfsson, Þórhildur Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginkona mín og móðir, MAGNEA KRISTÍN JAKOBSDÓTTIR, Fjólukletti 3, Borgarnesi, andaðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands föstudaginn 7. ágúst. Jarðsett verður frá Borgarneskirkju mánudaginn 17. ágúst. . Ragnar Ingimar Andrésson, Gréta Bogadóttir. Dóttir mín og systir mín, SÓLVEIG ANSPACH kvikmyndagerðarkona, lést í La Drome í Frakklandi 7. ágúst. Jarðarförin fer fram þann 11. ágúst í Frakklandi. . Högna Sigurðardóttir Anspach, Þórunn Edda Anspach, Clara Lemaire Anspach (dóttir Sólveigar). Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR, Baldursgötu 12, Reykjanesbæ, lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja síðastliðinn sunnudag. Útför hennar fer fram frá Bústaðarkirkju mánudaginn 17. ágúst kl. 15. . Haraldur Birgir Ingólfsson, Kristín Pálína Ingólfsdóttir, Sigurður Guðnason, Inga Björk Ingólfsdóttir, Jón Þór Helgason, Jón Arnar Ingólfsson, Elín Þóra Ingólfsdóttir, Bjarni Bjarnason, Steinunn Guðlaug Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir og amma, ELÍN KOLBEINSDÓTTIR, Fróðengi 1, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 2. ágúst 2015, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 13. ágúst kl. 13. . Grétar Zóphaníasson, Hjálmar Árnason, Kolbeinn Árnason, Harpa Barkar Barkardóttir, systkini og ömmubörn. Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, AUÐUR ANGANTÝSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, sem lést sunnudaginn 2. ágúst, verður jarðsungin frá Guðríðarkirkju fimmtudaginn 13. ágúst kl. 15. . Ibsen Angantýsson, Hulda Guðmundsdóttir, Bára Angantýsdóttir, Einar Sigurgeirsson, Guðrún Angantýsdóttir, Viðar Már Matthíasson, systkinabörn og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SELMA SAMÚELSDÓTTIR, lést föstudaginn 31. júlí. Jarðarförin fer fram föstudaginn 14. ágúst kl. 13 frá Neskirkju. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á MS-félag Íslands. . Kolbeinn J. Ketilsson, Unnur A. Wilhelmsen, Ólafur B. Ketilsson, Brynhildur Á. Harðardóttir, Katla Mist Ólafsdóttir, Ottó Loki Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.