Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2012, Blaðsíða 17
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 88. árg. 2012 13
Náttúrulækningafélag Íslands gaf út á
sínum tíma – en það lýsir því sem hún
er að gera með Kraftgöngunni og stenst
greinin alveg tímans tönn.
„Kraftgangan var í byrjun hugsuð sem
forvörn fyrst og síðast, til dæmis með því
að nýta íslenska náttúru til heilsueflingar.
Ég hafði kennt leikfimi inni í sal um tíma
og langaði til að bjóða fólki upp á nýjung.
Ég sá þarna vöntun og tækifæri til að
uppfylla þörf um útiveru og hreyfingu í
náttúrunni og gat um leið tengt þetta við
nám mitt og starf. Ég var orðin þreytt á
háværri rokktónlist og er bara nýlega farin
að geta hlustað á hana aftur án þess að fá
innilokunarkennd,“ segir hún og hlær. „Ég
er með þessum orðum ekki að kasta rýrð
á það sem fram fer í líkamsræktarstöðvum
en það hentar bara ekki öllum. Hreyfingin
er stóra málið hvar sem hún er stunduð.
Fólki líður bara betur andlega, líkamlega
og félagslega ef það finnur sig í hópnum
og sumum líður betur úti.“
Árný er fædd 1957 og átti æsku í
íslenskri sveit. Móðir hennar, Jóhanna
Þorvarðardóttir, var ekki vel hraust og það
hefur líklega haft áhrif á heilsuáhugann sem
blundað hefur í henni frá barnæsku. Hún
segist stundum hafa hugsað hvort móður
hennar hefði liðið betur ef hún hefði hreyft
sig meira, en tíðarandinn þá var allt annar.
Amma hennar, Guðrún Stefánsdóttir, var
aftur á móti mikið fyrir hreyfingu, gekk
meira að segja á fjöll þegar hún var hartnær
sjötug en það þótti ekki par kvenlegt á
þeim tíma. Kannski kemur kraftur Árnýjar
í gegnum þau litningatengsl, að minnsta
kosti hafði hún miklu meira gaman af því
að fara á fjöll og eltast við rollur en að vinna
inniverkin í sveitinni.
Árný minnist þess að hafa falið
gönguskóna sína lengst inni í skáp á
fyrsta árinu í Hjúkrunarskólanum en þá
var það alls ekki í tísku að eiga gönguskó.
Nú horfir þetta öðruvísi við, gönguskór
eru tákn um heilbrigðan lífsstíl og eru á
heiðursstað fremstir í forstofunni hjá fólki.
Upphafið
Upphafið má rekja til Kanada en Árný bjó
þar um tíma stuttu eftir fæðingu dóttur
sinnar. Henni fannst hún vera eitthvað
svo tuskuleg eftir meðgönguna að hún
skráði sig í líkamsrækt. Þar lærði hún
grunninn að þeim æfingum sem hún kennir
enn eða allt frá því að hún sagði þessa
örlagaríku setningu: „Stelpur, förum út í
dag.“ Þetta féll vel í kramið og leikfimihópar,
sem hún kenndi síðar á Íslandi, hrifust af
hugmyndinni og þannig byrjaði Kraftganga.
Í Kanada tileinkaði hún sér ákveðna þætti
en hún hefur líka bætt við og fínpússað
æfingarnar í bland með fólkinu sem
hefur verið með henni lengi, sumir allt
frá upphafi eða í rúmlega tuttugu ár.
En þó að margir hafa verið lengi þá er
alltaf rennsli á fólki, sumir taka sér frí um
stundarsakir og nýir bætast í hópinn.
„Þegar ég var að byrja í þessu þá undraði
sumt fólk sig á uppátækinu. Þetta er
fámennt samfélag sem við búum í og
ætli fólk hafi ekki haldið að ég væri orðin
eitthvað klikkuð, að minnsta kosti man
ég eftir heiðarlegu samtali þar sem ég var
spurð af hverju ég væri að eyða púðrinu í
Kraftgönguna en ekki í hjúkrunarstarfið.“
Fyrirtækið Kraftganga
Kraftganga var stofnuð fyrir rúmlega
20 árum og fyrirtækið var formlega
skráð árið 1996 en Árný hefur lengst af
verið í hefðbundnu hjúkrunarstarfi með
þjálfuninni. En það er fleira sem hefur
þurft til en hjúkrunarmenntun til að reka
fyrirtækið Kraftgöngu. Til að uppfylla
skilyrði hefur þurft leiðsögupróf og jafnvel
meirapróf og fleira. Nú þegar öll réttindi
verða komin í höfn getur hún farið með
hópa á eigin vegum hvert sem er en
áður var hún í samstarfi við aðra, eins
og Ferðaskrifstofuna Nonna. Þjálfunin fer
fram í Öskjuhlíðinni og svo fer hún með
hópana sína í gönguferðir og fjallgöngur
um allt land. Í sumar liggur leiðin meðal
annars á Herðubreið, til Grænlands og
til Noregs. Val á leiðum fer líka eftir því
hvað þátttakendum líkar en hún fær oft
uppástungur um ferðir hjá þeim. Ferðirnar
eru aðallega hugsaðar fyrir hópana en
samt er algengt að makar eða börn komi
með og stundum bætast aðrir í hópinn.
Kraftganga rekur nú alhliða þjálfun sem
felst í upphitun, þrek- og úthaldsþjálfun og
svo teygjum. Kraftganga sameinar í raun
göngu og leikfimi og byggist á ákveðinni
líkamsbeitingu sem eykur brennslu og
byggir upp vöðva. Alltaf er byrjað á upphitun
og síðan er unnið með þolið en það felur í
sér æfingar. Loks eru framkvæmdar teygjur