Tölvumál - 01.11.2015, Qupperneq 13
13
Fyrir rúmlega sjö mánuðum stóð ég á krossgötum á ferli mínum, þar
sem lítil viðskiptahugmynd sem ég hafði hlúð að undanfarin ár gekk ekki
upp. Ég fann að þessi tímamót voru sérstök fyrir þær sakir að ég hafði
áður skilgreint mig í iðnaði, sem mér fannst áhugaverður fyrir margar
sakir. En eftir að hafa greint íslenskt hagkerfi út frá hinu alþjóðlega eins
og stelpur stundum gera þegar þeim leiðist, sá ég að það var úr ýmsu
að moða.
Ég gat valið mér að vinna í ferðaiðnaðnum sem var nú orðinn stærsti
iðnaður landsins, þar var nóg af nýsköpun og tækifærum. Sjávarútvegi,
sem voru að sýna mikla tilburði í átt að nýsköpun og tækni. Báðar
þessar greinar eru útflutningsgreinar, sem paraðist ágætlega við löngun
mína að fá tækifæri til að starfa að hluta á erlendum mörkuðum.
STAÐUR FYRIR FÓLK EINS OG MIG?
Svo var þarna iðnaður sem sumir vilja kalla UT/IT iðnaður. Illa skilgreindur
en umfangsmikill og ekki auðvelt að ná saman gögnum um hann hjá
Hagstofunni. Sýndist mér þar vera mikil gróska í gangi, með vöxt í veltu
langt umfram meðalvöxt í landinu. Ég skildi þennan iðnað ekki svo vel,
og mundi bara eftir nokkrum strákum sem ég þekkti úr UT, frábærir
strákar, sem unnu í myrkum herbergjum að kóda með pizza kassa í
horninu. Þeir voru varla að leita að manneskju eins og mér!
Með budduna hálftóma og óljósa hugmynd um að þeir fiska sem róa,
ákvað ég að vera opin fyrir öllum nýjum tækifærum sem á leið minni
lágu. Slík aðferð felur í sér að maður hittir marga en á sama tíma hefur
maður ekki tíma til að kafa djúpt ofan í hvert verkefni fyrir sig. Ég ákvað
að einhversstaðar væri staður fyrir manneskju eins og mig.
Eftir að hafa sótt um hin og þessi störfin, fann ég mér stöðu hjá stofnun
á hugverkasviði. Spennandi stöðu sem ég vissi að þarfnaðist þekkingu
minnar, en ég var fljót að átta mig á að kannski ætti vinnan eftir að hafa
meiri áhrif á mig en ég á hana.
Þegar sálfræðimenntaður einstaklingur með MBA hefur störf hjá
Samtökum iðnaðarins, reynir hann stundum að setja miða á fyrirbæri og
flokka í kassa. Það gekk ágætlega fyrst um sinn en mikið var erfitt að ná
utan um viðfangsefnið á einfaldan og fljótlegan hátt.
HIN ÝMSU ANDLIT UT
Eftir nokkrar vikur fór ég að skilja að það er ekki eitthvað eitt andlit sem
hægt er að setja á UT, ég bað strákana með pizza kassana að koma inn
í IGI og lærði seinna að þeir væru ein bjartasta von landsins í leikjaiðnaði.
Enda eitt öflugasta teymi sérfræðinga sem ég hef á ævinni kynnst. En
ég lærði líka að það voru stelpur í leikjaiðnaði og jafnvel konur á besta
aldri að bjóða upp á einstakar lausnir til að upplifa umhverfið í gegnum
leik. Það voru félagslegir frumkvöðlar í UT sem stýra stórum alþjóðlegum
fyrirtækjum frá Íslandi sem bera hag heils iðnaðar fyrir brjósti sér. Sem
hringja oft í mánuði og spyrja: Eru fleiri komnir inn í hópinn? Markmiðið
er að við höfum alla með. Við stefnum á að verða þéttasti iðnaður
landsins.
Það eru konur og menn í SUT sem vilja fá fleiri konur að borðinu, ungir
menn og konur sem vilja koma þeim skilaboðum að í samfélaginu að
fjölbreytileiki í stjórnunarteymi fyrirtækja er vænlegast til vinnings. Það
eru grænmetisætur, kjötætur, vegans og yoga sérfræðingar í hópunum
mínum, sálfræðingar, fjölmiðlafræðingar, hönnuðir og auðvitað forritarar
svo fátt eitt sé nefnt.
Ef ég þyrfti í dag að setja eitt andlit á UT væri það andlit úrræðis og
nýsköpunar. Andlit sem gefst aldrei upp og sér tækifæri inn í framtíðinni.
Andlit sem spilar tónlist, hannar, býr til áður óþekkta heima og lausnir
sem auðvelt er að tileinka sér og erfitt að vera án. Andlit sem segir að
störf barna okkar séu óþekkt í dag. Andlit sem vill að þú eignist hlutdeild
í iðnaðinum og skiljir að með framþróun opnast á tækifæri fyrir
almenning þvert á greinar.
GREIN UNGA FÓLKSINS
Líkt og álverin hafa verið iðnaður landsbyggðarinnar trúi ég því að UT sé
iðnaður unga fólksins. Því í UT í dag lifir fólk í tækniveröld þvert á
landamæri. Fólk sem hefur þörf fyrir að ferðast og mennta sig og vinna
störf sem byggja m.a. á nýsköpun. Það vill hafa gaman í vinnunni og
takast á við hið óvænta. Það vill vel launuð störf sem ganga ekki á
auðlindir landsins. Heldur virkja hugarafl fólksins sem greinina byggja.
Þeir fiska sem róa, ég var með allar stangir úti og afar heppin með
aflann, í staðinn mun ég gera það sem í mínu valdi stendur til að styðja
við iðnað í örum vexti. Að reglur í kringum greinina séu skýrar og
umhverfið samkeppnishæft. Því hagsmunir greinarinnar eru hagsmunir
okkar allra.
AÐ AFLA OG FISKA Í UT
Elínrós Líndal Ragnarsdóttir
Viðskiptastjóri Upplýsingatæknifyrirtækja hjá Samtökum iðnaðarins. Elínrós
sér um samtökin SUT, Samtök upplýsingatæknifyrirtækja, IGI, Samtök
leikjaframleiðenda, DCI, Samtök gagnavera á Íslandi og SÍL, Samtök
íslenskra líftæknifyrirtækja