Tölvumál - 01.11.2015, Qupperneq 24
24
Hjálmar Gíslason er frumkvöðull, eðlisfræðingur, forritari og hefur ástríðu
fyrir tækni. Hann er einnig blaðamaður, bloggari, fjárfestir, eiginmaður
og faðir. Hjálmar hefur stofnað fjögur tækni- og hugbúnaðarfyrirtæki og
má því segja að hann sé raðfrumkvöðull. Hann starfar nú hjá Qlik en var
áður framkvæmdastjóri Datamarket sem Qlik keypti í desember 2014.
Hjálmar stofnaði netfyrirtækið Datamarket árið 2008 en starfaði þar á
undan sem forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Símanum. Hann kom
að þróun símaskrárvefjarins Já.is og hefur í gegnum tíðina stofnað
nokkur hugbúnaðarfyrirtæki: Spurl ehf (sem m.a. smíðaði leitarvélina
Emblu), Maskina (sem er í dag í eigu nokkurra Norðmanna) og Lon&Don
(sem sameinaðist Gagarín). Hjálmar hefur einnig setið í stjórnum Tals og
Trackwell.
Rökstuðningur dómnefndar
„Hjálmar er góð fyrirmynd og hefur víðtæka þekkingu og reynslu
af upplýsingatækni. Hann er framsýnn og hefur sterka tilfinningu
og framtíðarsýn fyrir tækni og þróun.
Með sölu á Datamarket til Qlik sýndi Hjálmar að hann er ekki
aðeins frábær frumkvöðull sem fundið hefur hugmyndum sínum
farveg, heldur er hann einn af allt of fáum sem hafa kunnáttu,
þrautseigu og getu til að fylgja hugmynd eftir alla leið til enda
með góðri sölu til stærra og öflugra fyrirtækis og þannig tryggt
enn betur framgang hennar.
Hjálmar hefur alltaf verið opinn fyrir því hvernig nýta má
upplýsingatækni til að bæta samfélagið. Ekki bara í hefðbundum
skilningi, þ.e. innan fyrirtækja og stofnana heldur líka þegar
kemur að því hvernig við ákveðum saman í hvernig þjóðfélagi við
viljum búa í. Frábært dæmi um slíkt er framtak hans tengslum við
Betri Reykjavík. Hjálmar er bængóður með eindæmum og hefur
m.a. átt stóran þátt í að Tölvuorðasafn Skýrslu tækni félagsins var
sett á vefinn í samstarfi við Spurl og Já.is. Datamarket gegndi
mikilvægu samfélagslegu hlutverki á Íslandi svo sem með því að
miðla upplýsingum á borð við tölfræði úr fjárlögum til almennings
á netinu með myndrænum og auðskiljanlegum hætti. Einnig
hefur Hjálmar stuðlað að opinni og upplýstri umræðu um menn
og málefni, svo eitthvað sé týnt til.
Hjálmar er vel að þessum verðlaunum kominn og óskum við
honum til hamingju með heiðursverðlaunin og megi framtíðin
vera björt.“
Verðlaunagripurinn er glerlistaverk eftir Ingu Elínu listakonu og afhenti
Eggert Claessen verðlaunin að viðstöddum um þúsund gestum
UTmessunnar. Þar sem Hjálmar býr erlendis tók hann að sjálfsögðu á
móti verðlaununum með tölvutækninni en hann talaði til gesta í gegnum
videó sem hann sendi inn.
Á myndinni eru: Arnheiður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Ský, Hjálmar
Gíslason verðlaunahafi og Eggert Claessen hjá Frumtaki.
UM UPPLÝSINGATÆKNIVERÐLAUN SKÝ
Heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á
Íslandi. Skýrslutæknifélag Íslands (Ský) veitir verðlaunin og eru þau að
danskri fyrirmynd. Veiting þeirra er árleg frá árinu 2010.
TILNEFNINGAR
Hægt er að tilnefna einstakling, fyrirtæki eða verkefni sem hefur skarað
framúr á sviði upplýsingatækni, skapað verðmæti og auðgað líf
Íslendinga með hagnýtingu á upplýsingatækni. Áhersla er lögð á að
framlagið hafi þegar sannað sig með afgerandi hætti. Allir geta sent inn
tilnefningar í tölvupósti á sky@sky.is. Hver aðili getur aðeins sent inn
eina tilnefningu og skal hún rökstudd. Eftir að fresti til tilnefninga lýkur
velur valnefnd þann aðila sem þykir skara framúr og skal hún vera
einróma um valið og rökstyðja það vel. Áhersla er lögð á að framlagið
hafi þegar sannað sig með afgerandi hætti.
OPIÐ ER FYRIR TILNEFNINGAR TIL UT
VERÐLAUNA SKÝ ALLT ÁRIÐ
Eftirtaldar upplýsingar þurfa að fylgja tilnefningum og þær sendar í
tölvupósti á sky@sky.is:
1. Tilgreindu einstakling, verkefni eða fyrirtæki sem þú telur að hafi
skarað framúr á sviði upplýsingatækni og uppfyllir skilyrði
tilnefninga:
2. Lýstu af hverju þú tilnefnir viðkomandi (hvert er afrekið) og hvernig
hefur það sannað sig með afgerandi hætti. Mundu eftir að
rökstyðja vel svo valnefndin eigi auðvelt með að taka afstöðu:
3. Nafn og tölvupóstfang þitt:
UT verðlaun Ský árið 2016 verða afhent á UTmessunni í febrúar
í Hörpu.
UT VERÐLAUN SKÝ 2015
Hjálmar Gíslason fékk UT verðlaun Ský 2015
á UTmessunni í Hörpu 6. febrúar 2015