Tölvumál - 01.11.2015, Page 34

Tölvumál - 01.11.2015, Page 34
34 Á síðustu árum hafa fjölmargir nemendur tekið áfanga í forritun við Háskólann í Reykjavík. Inngangsáfangi í C++ forritun er kenndur bæði fyrir fyrsta árs nemendur í tölvunarfræði, og fyrir annars árs nemendur í verkfræði. Undanfarin ár hafa um 400-500 nemendur setið þessa áfanga á hverju ári. Í þessari grein mun ég fjalla stuttlega um þann hugbúnað sem ég hef notað við kennslu í C++ forritun við Háskólann í Reykjavík. VAL Á FORRITUNARMÁLI Ein fyrsta ákvörðunin sem þarf að taka þegar kennsla í forritun er skipulögð er hvaða forritunarmál verður fyrir valinu. Helstu valkostirnir eru C++, Java og Python. Mynd 1: Vinsældir nokkurra forritunarmála samkvæmt PYLP Index (PopularitY of Programming Languages) Python kom fyrst fram um 1991 en hefur náð miklum vinsældum síðustu ár. Helstu kostir Python sem fyrsta forritunarmál er að málið er bæði skýrt og öflugt, þar sem hægt er að gera flókna hluti með tiltölulega fáum línum af kóða. Fyrir kennara sem fara yfir og meta forrit frá byrjendum í forritun þá er mikill kostur hvað Python er strangt varðandi uppsetningu á kóða, þ.e. kóðinn verður að vera rétt inndreginn, en það leiðir af sér betri vinnubrögð og skýrari framsetningu á forritum. Nafnið „Python“ er komið frá sjónvarpsþáttunum Monty Python’s Flying Circle, en höfundur Python, Hollendingurinn Guido van Rossum er mikill aðdáandi þeirra. Java hefur verið algengt val sem fyrsta forritunarmál, sérstaklega þar sem lögð er áhersla á hlutbundna forritun. Java kom fyrst fram árið 1995 og náði fljótlega miklum vinsældum. Samkvæmt PYPL Index þá er Java vinsælasta forritunarmálið, eins og sjá má á Mynd 1. PYPL Index metur vinsældir forritunarmála út frá því hversu oft leitarvélin Google er beðin um að finna leiðbeiningar (e. tutorial) fyrir viðkomandi forritunarmál. Í október 2015 var 24,7% af slíkum leitum fyrir Java. Forritunarmálið Java er ólíkt mörgum öðrum málum að því leyti að forrit skrifuð í Java eru keyrð í gegnum Java sýndarvél (e. virtual machine) sem þarf að vera til staðar á tölvunni. Slík uppsetning verður þá til þess að hægt er að keyra sama Java forritið á tölvum með mismunandi stýrikerfi, þ.e. hugmyndafræðin á bak við Java er „skrifa einu sinni, keyra hvar sem er“ (e. WORA: Write Once, Run Anywhere). C++ á sér mun lengri sögu en Java og Python. C++ kom fram árið 1983, en C++ byggist á forritunarmálinu C sem kom fram árið 1972. C er svo byggt á forritunarmálinu B, sem aftur á móti var byggt á forritunarmálinu BCPL. C náði fljótt miklum vinsældum og hefur haldið þeim í gegnum tíðina. Einn helsti gallinn við C er skortur á stuðningi við hlutbundna forritun, og eitt helsta markmiðið með þróun C++ var að bæta við þeim stuðningi. C++ varð fljótlega mjög vinsælt og hefur haft mikil áhrif á mörg önnur forritunarmál, til að mynda Java, C#, Objective-C og fleiri, en Python er hinsvegar ekki undir miklum áhrifum frá C++. Forritunarmálið C++ er mun nær vélbúnaðinum í tölvunni en bæði Java eða Python, sem þýðir að hægt er að ná miklum hraða í forritum skrifuðum í C++, en á móti verður sjálfur kóðinn þá oft mun lengri en til dæmis sambærilegur kóði í Python. Við Háskólann í Reykjavík er C++ kennt sem fyrsta forritunarmál. C++ er ekki auðvelt forritunarmál og það setur miklar kröfur á að hlutir séu settir fram skýrt og rétt og allt sé vel skilgreint. Það er hinsvegar í raun ein af ástæðunum fyrir því að nemendur sem læra C++ sem fyrsta mál standa oft vel að vígi þegar kemur að áframhaldandi forritun, því C++ þvingar notandann til að vera meðvitaður um hvernig tölvan virkar og að beita aga í forritun. Eftir að hafa lært C++ þá er tiltölulega auðvelt að læra önnur forritunarmál, bæði vegna þess hvað C++ gefur oft góða innsýn inn í hvernig hlutir virka, en einnig vegna þess hvað mörg önnur forritunarmál byggja beint á C++. Val á fyrsta forritunarmáli fyrir nemendur er hinsvegar mjög umdeilt og hægt er að lesa á netinu langar rökræður og rifrildi um það efni. ÞRÓUNARUMHVERFI Forrit eru oftast skrifuð í þróunarumhverfi (e. IDE: Integrated Development Environment) sem sameina textaritil, þýðanda og aflúsunarkerfi. Forritunarkóðinn er skrifaður í textaritli, en góð þróunarumhverfi setja til dæmis mismunandi liti á kóðann til að forritið verði skýrara. Þýðandi tekur kóðann og býr til forrit sem hægt er að keyra á tölvunni, og aflúsunarkerfin hjálpa til við að finna villur í forritum. Bæði Microsoft og Apple bjóða upp á þróunarumhverfi fyrir þær vélar sem keyra Windows og MacOS. Á tölvum með Windows stýrikerfinu er Visual Studio eitt öflugasta þróunarumhverfið á meðan XCode er líklega NOTKUN HUGBÚNAÐAR VIÐ KENNSLU Í FORRITUN Dr. Eyjólfur Ingi Ásgeirsson, lektor Háskólanum í Reykjavík

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.