Skólavarðan - 01.03.2006, Blaðsíða 6

Skólavarðan - 01.03.2006, Blaðsíða 6
6 sá boðskapur útfærður með því að sýna þybbinn eilífðarstúdent sem slær lán mörg og stór til þess að þylja tóma steypu yfir bjórkrús með sögufrægan háskóla í baksýn. Vitanlega er margt æskilegt og þarft að finna á óskalistunum til skólanna. Hver vill ekki að börn átti sig á tónlist og myndlist eða verði betur “læs” á kvikmyndir? - svo nokkuð sé nefnt. Hitt er verra: að litið er á skólann sem blöðru sem þenst endalaust út þegar síðasta hugmyndatíska blæs í hana. Að auki á allt að gerast fljótt og vel á þeim vettvangi án þess að nokkur annar þurfi að taka sig á - a.m.k. ekki foreldrarnir og varla nemendurnir. Kennarar skulu vera svo miklir sálfræðingar, svo öflugir liðsforingjar og svo miklir skemmtikraftar að allur fróðleikur og öll lífsleikni renni ljúflega og fyrirhafnarlaust niður í ungar sálir eins og ís með dýfu. Tilætlunarsemin endalausa er líka full með kröfur sem reka sig hver á aðra: Við verðum náttúrulega að taka samræmd próf á við krakkana í Singapúr og Finnlandi til að sýna og sanna að Iceland is number one bráðum - og um leið vilja menn leggja niður öll slík stöðlunarpróf sem hefti frelsið og sköpunargáfuna. Menn ætla líka að gera allt í senn: að hleypa öllum í gegnum hvert skólastig og halda uppi háum gæðakröfum til náms. Og spara peninga í leiðinni. Nú kynni einhver að spyrja: er hér verið að sýkna kennara og skóla af hverri sök, fara um þá silkihönskum, þagga niður gagnrýni, hvurslags er þetta eiginlega? Það er rétt: hér er ekki vikið að þeim hlutum. Vegna þess að það er ekki hægt að gera allt í einu í litlum pistli. Vegna þess líka að sá sem tekur til máls um menntakerfið einu sinni á tíu ára fresti, hann vill ekki hóa í lætin að sinni. Og hann er líka viss um að sjálfsgagnrýni eigi kennarar nóg af eins og vera ber - hvað værum við án hennar í hverjum starfshópi, hverju mannlegu félagi? Hitt gæti verið að pistilhöfundur sjálfur reyndist syndaselur eins og margir aðrir. SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006 Þegar ég hefi nú um stund haft á hornum mér kröfugerðina endalausu á hendur kennurum langar mig samt sem áður að bæta við einni frómri ósk til þeirra, barasta einni og svo hætti ég. Mikið yrði margur sæll ef íslenskum skólum tækist að gera nemendur sína svo sterka og vel að sér um marga hluti að þeir kunni að vísa frá sér með góðum vilja og rökum afar útbreiddri og áleitinni kenningu sem læst er í þrjú orð aðeins: græðgi er góð. GESTASKRIF Ragnar Ólafsson ritstjóri Tímarit um menntarannsóknir er komið út öðru sinni. Það er Félag um mennta- rannsóknir, FUM, sem gefur ritið út en markmið þess er að efla rannsóknir og þróunarstarf á sviði menntunar á Íslandi. Ritstjóri tímaritsins er Ragnar Ólafsson, sérfræðingur á Námsmatsstofnun. Ragnar hefur meðal annars stundað rannsóknir á einelti og unnið úr gögn- um PISA rannsóknarinnar. Hann er jafnframt stundakennari í aðferðafræði við Háskóla Íslands. Aðrir í ritstjórn eru Anna Þóra Baldursdóttir, Gretar L. Marinósson, Hafdís Ingvarsdóttir, Jón Torfi Jónasson og Kristín Jónsdóttir. Tímaritið kemur út árlega. Í ritstjóraspjalli segir Ragnar meðal annars að markmið tímaritsins sé að vera fræðilegt framlag til þjóðfélagsumræðu um menntamál og til þess að draga fram hagnýtt gildi tímaritsins séu í samráði við höfunda teknar saman stuttar klausur um hagnýtt gildi greinanna og þær birtar fyrir neðan útdrátt á titilsíðu greinar. Þá kynnir Ragnar efni tímaritsins: „Gretar L. Marinósson setur í pistli sínum fram hugleiðingar um hvaða hlutverki Tímarit um menntarannsóknir eigi að gegna í umræðu um menntarannsóknir á Íslandi. Í greinunum er svo komið víða við - frá leikskóla til háskólastigs - og ólíkri aðferðafræði er beitt. Í grein Sigrúnar Aðalbjarnardóttur og Kristjönu Stellu Blöndal er fjallað um brotthvarf úr framhaldsskóla og sýnt hvernig ákveðnar uppeldisaðferðir tengjast því. Börkur Hansen og félagar fjalla um það hvernig gengið hefur að innleiða lögbundið sjálfsmat í skólum. Þau leita skýringa á því hvers vegna sumum skólum gengur betur en öðrum að temja sér þessar starfsvenjur. Ásta Bjarnadóttir bendir á gildi þess að leggja fyrir stutt próf til þess að spá fyrir um árangur í háskólanámi og til þess að velja nemendur inn í háskóla. Sýn leikskólastjóra á leikskólann sjálfan er viðfangsefni Jóhönnu Einarsdóttur og Kristínar Karlsdóttur, en þær byggja á fjölda viðtala nemenda í Kennaraháskóla Íslands við leikskólastjóra. Sigurgrímur Skúlason tekur fyrir mikilvægt aðferða- fræðilegt efni, þ.e. þýðingu og staðfærslu á erlendum spurningalistum. Erlend mælitæki eru oft fengin að láni við rann- sóknir hér á landi og Sigurgrímur lýsir verkþáttum sem myndu afstýra göllum sem geta hrjáð þýdd mælitæki.“ Þetta er veglegt og efnismikið rit og sérlega kærkomið í ljósi þess hve lítið er fjallað um menntarannsóknir hérlendis. FUM á þakkir skildar fyrir að standa að þessari útgáfu og Skólavarðan óskar þeim allra heilla í framtíðinni. Tímaritið Tímaritið er ritrýnt og gefur 10 punkta. Það kostar 1500 kr. auk sendinga- kostnaðar til félagsmanna og er innifalið í félagsgjaldinu, en er selt á 1990 kr. út úr búð. Frestur til að senda inn greinar til birtingar í næsta blað er til 1. júlí 2006 og greinar skulu sendar Ragnari Ólafssyni ritstjóra á netfangið rfo@namsmat.is Leiðbeiningar til greinarhöfunda eru á heimasíðu félagsins, www.fum.is. Þegar ég hefi nú um stund haft á hornum mér kröfugerðina endalausu á hendur kennurum langar mig samt sem áður að bæta við einni frómri ósk til þeirra, barasta einni og svo hætti ég. Mikið yrði margur sæll ef íslenskum skólum tækist að gera nemendur sína svo sterka og vel að sér um marga hluti að þeir kunni að vísa frá sér með góðum vilja og rökum afar útbreiddri og áleitinni kenningu sem læst er í þrjú orð aðeins: græðgi er góð. Græðgi er góð - þetta er skelfileg kenning. Og varla nokkur önnur til jafn seigdrepandi fyrir hvern sem á hana trúir eða tortímandi fyrir þokkalegt sambýli manna. Árni Bergmann Höfundur er rithöfundur Tímarit um menntarannsóknir er komið út.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.