Skólavarðan - 01.03.2006, Page 13

Skólavarðan - 01.03.2006, Page 13
13 TÓNLIST OG MENNTUN SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006 fjármagnaður með skólagjöldum. Nú eru 245 tónlistarskólar í Danmörku og 10% af þeim eru tónlistar- og listaskólar; aðeins tíu sveitarfélög hafi ekki tónlistarskóla. Búið er að ganga frá því að í nýju lögunum verði fé eyrnamerkt tónlistarskólunum en í þau vantar samt skilgreiningu á því hvað sé tónlistarskóli. Að leggja fé í tónlist og menningu er besta leiðin til að minnka þörf á félagslegri aðstoð. Timo Klemettinen frá Finnlandi Í finnsku samtökunum eru 99 tónlistar- skólar sem eru styrktir af ríkinu. Fjár- framlög til skólanna eru eyrnamerkt og skiptast þannig að 50% eru frá ríki, 33% frá sveitarfélögum og afgangurinn skólagjöld. Í Finnlandi eru 413 sveitar- félög, mörg mjög fámenn og alltaf að minnka sem þýðir færri skattgreiðendur og meiri kostnað. Í haust mun svo koma í ljós hvaða áhrif þetta hefur fyrir menningar- lífið og tónlistarmenntunina. Menn sjá fyrir sér að eftir tæknisamfélagið komi sköpunarsamfélag og Finnland vill verða þannig svæði. Besta leiðin að því marki er menning og menningartengd menntun. Per Sjöberg frá Svíþjóð Hvert sveitarfélag fer með málefni sinna skóla. Í Svíþjóð eru 290 ólík sveitarfélög sem hafa mismunandi áherslur og leiðir. Engar reglur eða lög eru til um tónlistarskóla frá hinu opinbera. Svíar telja lög hindrandi og vilja því fara aðra leið. 282 af 290 sveitarfélögum hafa tón- listarskóla sem er sterk staða að mati Pers. Svíar eru miklir útflytjendur tónlistar. Upp úr 1980 byrjaði þróun sem enn á sér stað í þá átt að tónlistarskólar verði listaskólar og nú eru 113 listaskólar með a.m.k. þrjár mismunandi listgreinar en 169 skólar eru einungis tónlistarskólar. Í tónlistarskólunum er framboð fyrir alla á öll hljóðfæri/söng á sanngjörnu verði. 4% þjóðarinnar eru í lista- og tónlistarskólum, sem er næst hæsta hlutfallið í Evrópu. Kennslustundir eru frekar stuttar, 15-20 mínútur á viku, fyrir utan samspil, kóra o.þ.h. Tónlistarskólarnir hafa frá byrjun boðið upp á fjölbreytt nám sem hefur leitt til fjölbreytts menningarlífs, bæði á atvinnu- og áhugamannastigi. Harry Rishaug frá Noregi Norska skipulagið er um margt líkt og í Svíþjóð. 50 tónlistarskólar voru í Noregi í kringum 1950 en nú eru tónlistarskólar í hverju hinna 410 sveitarfélaga. Ástæðan er lög um að öll sveitarfélög skuli hafa tónlistarskóla. Hins vegar vantar í lögin nánari útlistanir, aðeins sagt að þau eigi að hafa tónlistarskóla. Nú er verið að ræða reglur um kostnaðarskiptingu og stjórnun. 110 þús. nemendur stunda nám í 410 sveitarfélögum og sumir í fleiri en einu fagi. Margir tónlistarkennarar kenna líka í grunnskóla og margir eru í lágu starfshlutfalli, sérstaklega í minni sveitarfélögum. 17% grunnskólanemenda eru nemendur í tónlistar- og listaskólum, stefna þingsins er 30%! Þó að klassísk tón- list sé ráðandi í námsframboði skólanna þá eru myndlist, leiklist, dans, skapandi skrif og nútíma sirkusnám líka í boði í tónlistar- og listaskólum. Árið 1973 voru stofnuð sam- tök tónlistarskólastjóra og árið 2000 varð samruni við minna félag myndlistar. Nú eru þessi samtök í eigu sveitarfélaganna. Stjórn samtakanna er í Þrándheimi og hefur 15 starfsmenn auk fólks í sveitar- félögunum hjá Norsk kulturskoleråd sem m.a. þjálfar kennara. Eftir 2003 var eyrnamerkt fé til tónlistarskólanna en 2004 var þetta fé sett í almennan styrk til sveitarfélaga. 12 milljónir evra var framlag ríkisins til reksturs tónlistarskóla. Skólagöld hækkuðu verulega í sumum sveitarfélögum eftir að þak á skólagjöld var afnumið 2003. Ný vinstri sinnuð stjórn hafði lofað að öll börn skyldu eiga kost á námi í tónlistar- og listaskóla. Skólagjöld yrðu lág. Þessu hefur ekki verið komið á en verið að vinna í því. Samtökin eru tengiliður á milli sveitarfélaga og ríkisins og í góðum samskiptum við stjórnvöld og stjórnmálaflokka. Sigursveinn Magnússon, Samtökum tónlistarskóla í Reykjavík Árið 1963 stóð Gylfi Þ. Gíslason þá- verandi menntamálaráðherra fyrir því að fyrstu lögin voru sett um tónlistarskóla. Vilhjálmur Hjálmarsson beitti sér sem menntamálaráðherra fyrir breytingu á lögunum 1975 þannig að kennslu- kostnaður skiptist jafnt á milli ríkis og sveitarfélaga, en skólagjöld áttu að standa undir öðrum kostnaði. Árið 1989 færðist rekstur tónlistarskólanna alfarið yfir á sveitarfélögin. 1960 voru í landinu 12 tónlistarskólar með 1000 nemendur en nú eru þeir um 80 með um 12 þúsund nemendur. Í Reykjavík eru skólarnir einkareknir en með fjárstuðningi frá Reykjavíkurborg. Árið 1995 voru 12 tón- listarskólar í Reykjavík, hver með sína sérstöðu, en eru nú 20. Það er forvitni- legt að nýju skólarnir voru fjármagnaðir á kostnað eldri skólanna. Stærri skólar minnka en menn óttast að fleiri og minni skólar verði máttlausari. Nú ríkir mikið óöryggi vegna þess að nemendur utan Reykjavíkur eru í vandræðum. Nemendur yfir 25 ára eru líka í vandræðum. Skólastjórnendur eru óöruggir vegna niðurskurðar og foreldrar eru óöruggir m.a. vegna rafræns umsóknakerfis. Við verðum að finna leið saman til að virða rétt nemenda til að læra tónlist án tillits til aldurs og búsetu. Stefán Jón Hafstein formaður menntasviðs Reykjavíkurborgar Stefna Reykjavíkurborgar byggist á tveimur megin meginmarkmiðum: 1. Veita sem flestum ungum nemendum aðgang að tónlistarnámi í grunnskóla og jafnvel yngri. Tónlistarmenntun á að vera samofin öðrum þáttum í skóla- kerfinu. 2. Þeir sem hafa getu og áhuga geta orðið fagmenn. Þessi markmið eru ekki andstæð en ólík og þarfnast ólíkra vinnuaðferða. Taka þarf tillit til þarfa nemenda, óska foreldra, ólíkra þarfa tónlistarskólanna og kennaranna sem eru mannauðurinn. Erfitt er að samræma öll þessi atriði. Of margir skólar keppa um sama fjármagnið (800 milljónir). Á sama tíma þarf að hafa fjölbreytileika. Í stuttu máli má segja að þessi fundur hafi haft mikla þýðingu í tveim aðal atriðum: • Þarna var í fyrsta sinn kominn saman hópur fagaðila og sveitarstjórnarmanna í Reykjavík til að ræða á opinskáan hátt um málefni tónlistarskólanna á breiðum grundvelli. • Nærvera og þátttaka hinna norrænu gesta gaf fundinum einstaka breidd og sýn á að önnur lönd eru líka að fást við sum viðfangsefni okkar hér í Reykjavík. Okkar kæru norrænu vina beið kvöld- matur í boði FT og gafst þá enn tækifæri til skoðanaskipta og styrkingar þeirra vin- áttubanda sem myndast höfðu í þessari Íslands reisu, sem nokkrir úr hópnum litu á sem hápunkt á ráðstefnuferli sínum. En Veðurstofa Íslands á þakkir skildar fyrir fallegt vorveður á meðan á heimsókninni stóð. Vilberg Viggósson Höfundur er skólastjóri Tónskólans DoReMi

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.