Skólavarðan - 01.03.2006, Side 14
14
HEIMSÓKN Í GRUNDASKÓLA Í MÁLI OG MYNDUM
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006
Í greinargerð dómnefndar sagði m.a.:
„Grundaskóli hefur ávallt verið framsækinn
skóli og þar hefur verið lögð rækt við fjöl-
breytta náms- og kennsluhætti. Í skólanum
hafa verið unnin mörg áhugaverð þróunar-
verkefni þar sem lögð er áhersla á skapandi
og fjölbreytt viðfangsefni. Þá hafa list- og
verkgreinar frá fyrstu tíð skipað stóran sess
í starfi skólans.“
Í framhaldi af verðlaunaveitingunni
heimsóttu forseti Íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, og eiginkona hans, Dorrit
Moussaieff, Grundaskóla nú í byrjun febrúar.
Mikil eftirvænting ríkti innan skólans
vegna heimsóknarinnar og var forseta-
hjónunum vel fagnað af nemendum og
starfsfólki.
Eftir stutta móttökuathöfn gengu þau
um skólann, hittu nemendur á ýmsum
aldri og urðu vitni að fjölbreyttu starfi
Grundaskóla. Forsetahjónin sýndu verk-
efnum nemenda mikinn áhuga og ræddu
við þá. Forsetahjónunum var einnig boðið
á svokallaðan samsöng, en mánaðarlega
koma nemendur unglingadeildar saman
og syngja.
Að lokum var hátíðardagskrá á sal
skólans. Þar voru fl utt ávörp, nemendur
sýndu skemmtiatriði og þjóðlagasveit
Tónlistarskólans spilaði. Flutt var atriði
úr frumsömdum söngleik, Hunangsfl ugur
og Villikettir, sem er saminn af kennurum
skólans. Nemendur fengu einnig að spyrja
forsetann og margt bar þar á góma.
Dagskránni lauk með heimsókn forseta-
hjónanna í íþróttahúsið en síðan sátu þau
hádegisverð í boði bæjarstjórnar Akraness.
Heimsóknin tókst mjög vel og lýstu
Forsetahjónin sækja handhafa Íslensku menntaverðlaunanna heim
Þann 1. júní sl. veitti forseti Íslands
Íslensku menntaverðlaunin í fyrsta
sinn. Verðlaunin voru veitt í fjórum
fl okkum. Grundaskóli á Akranesi hlaut
verðlaunin að þessu sinni í fl okki skóla
sem sinnt hafa vel nýsköpun eða far-
sælu samhengi í fræðslustarfi .
Fjölþætt nýsköpunarstarf