Skólavarðan - 01.03.2006, Síða 20

Skólavarðan - 01.03.2006, Síða 20
20 SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006 Úr ályktun kennara við Menntaskólann á Akureyri: „Þrátt fyrir að ekki sé um slíka styttingu talað í samkomulagi KÍ og menntamálaráðherra frá 2. feb. sl. virðast báðir aðilar sammála um að hrinda henni í framkvæmd og skuli undirbúningur þessarar styttingar hefjast árið 2007 til að hún geti gengið í gildi árið 2010. Ákvarðanir af þessu tagi geta ekki talist vera heildarendurskoðun á skólakerfinu þar sem niðurstöður eru gefnar fyrirfram í einstökum atriðum.“ Helgi E. Helgason AF ÖÐRUM VETTVANGI Fundurinn í Versló Á annað hundrað framhaldsskóla- kennarar mættu á fund um styttingu námstíma til stúdentsprófs sem haldinn var í sal Verzlunarskóla Íslands 25. febrúar. Framsögumenn voru framhaldsskóla- kennararnir Linda Rós Michaelsdóttir, Guðríður Arnardóttir og Unnar Þór Bachmann. Erindi þeirra verða birt í heild á vef KÍ, www.ki.is Linda Rós sagði meðal annars: „Einhverjum kann að þykja það ótrúlegt en býsna margt ungt fólk er mun uppteknara af því að komast í góða háskóla en það er af því að hefja starfsævina sem fyrst. Þetta unga fólk er svo vel upplýst að það veit vel að menntun þess og undirbúningur ráða úrslitum ef það sækist eftir að komast í góða og virta háskóla, hérlendis sem og erlendis. Þess vegna vill þetta fólk ekki gengisfella menntun sína með því að skerða nám til stúdentsprófs um 25 prósent. Þess utan eru íslensk ungmenni svo lánsöm að þau þurfa ekki að bíða eftir því fram á fullorðinsár að kynnast atvinnulífinu af eigin raun. Sumarvinna unglinga og ungs fólks hér á landi er ekki lítill þáttur í menntun og þroska hvers og eins.“ Og síðar: „Þegar fyrir lá að til stæði að skerða nám til stúdentsprófs umtalsvert með styttingunni óskuðu ýmsir framhaldsskólakennarar eftir fundi með menntamálaráðherra um málið. Þar á meðal sú sem hér stendur. Ekki tókst að finna tíma til þess og í umræðum og blaðaskrifum síðasta misserið hefur ráðuneytið sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki brugðist við slíkum óskum þegar svo mikið var í húfi. En nú hefur glaðnað til og ber að fagna því. Menntamálaráðherra hefur stofnað til formlegs samráðs við forystu Kennarasambandsins sem telur sig með þessu samkomulagi geta haft áhrif á hvernig mál þróast. Með allri virðingu fyrir þeim sem hafa verið kosnir til forystu í félagi okkar -- finnst okkur framhaldsskólakennurum hins vegar vanta þá rödd við þetta samningaborð sem talar máli þeirra sem ekki vilja skerða nám til stúdentsprófs og hafa skilning á hvað hér er í húfi.“ Guðríður sagði meðal annars: „Þetta er ekki stéttarbarátta og þetta snýst ekki um 150 störf framhaldsskólakennara, þótt okkur sé ætlað að svo sé Ath.... Þetta snýst um það hvort íslenskt menntakerfi verður rekið aftur til fortíðar með lagafrumvarpi á komandi vori og það er skylda okkar sérfræðinga í skólamálum að rísa upp og mótmæla! Árið 1946 voru sett lög um skólakerfi og fræðsluskyldu á Íslandi. Frá því að þetta fyrsta eiginlega framfaraskref í menntakerfinu var stigið hefur skyldunám lengst. Skóladagurinn er lengri ásamt skólaárinu í heild. Innihald námsins hefur í gegnum tíðina tekið breyt- ingum og aðlagast íslensku samfélagi í átt til nútímans, gjarnan þá fyrir tilstilli fyrrverandi menntamálaráðherra sem hafa markað spor í sögu menntunar á Íslandi. En rauði þráðurinn á þessum 60 árum hefur ætíð verið að auka innihald menntunar, því mennt er máttur. Það vitum við, það vita nemendur okkar, það vita flestir Íslendingar. En árið 2006 ætlar núverandi menntamálaráðherra að marka sín spor í sögu menntamála á Íslandi líkt og forverar hennar. Hún velur að stíga skrefið til baka – að stytta skólagöngu íslenskra ungmenna um eitt ár. Að stytta skólagöngu íslenskra ungmenna úr fjórtán árum í þrettán getur aldrei orðið neitt nema skerðing. Fjórtán ára skólaganga er ekki aðeins undirbúningur undir frekara nám heldur almenn þekking. Þekking og skilningur á manneskjunni, mannlífinu, samfélaginu, sögunni, samfélagi þjóðanna, vísindum og listum. Því er það deginum ljósara að þetta frumvarp menntamálaráðherra er líklega mesta ógn sem steðjað hefur að íslensku menntakerfi í áratugi.“ Og síðar: „Ég fagna öllum endurbótum á mennta- kerfinu og námskrána þarf að endur- skoða reglulega með tilliti til breytinga í samfélaginu. En þetta frumvarp mennta- málaráðherra má ekki undir nokkrum kringumstæðum verða að lögum í þeirri mynd að nám íslenskrar æsku verði skert. Og ég tel það skyldu mína sem fagmanneskja að hefja upp raust mína og mótmæla. Við eigum öll að mótmæla!“ Unnar Þór sagði meðal annars: „Því miður hafa breytingar á undanförnum árum í menntamálum verið til þess fallnar að rýra nám til stúdentsprófs. Nægir þar að nefna námskrá frá 1999 sem fækkaði námseiningum til stúdentsprófs í TÍU PUNKTA SAMKOMULAGIÐ Ágústa Ásgeirsdóttir trúnaðarmaður og kennari við Verslunarskóla Íslands: „Alvarlegasta athugasemd mín við framgang þessa máls er hvernig það var kynnt. Stjórnin brást í kynningunni og ráðherra klúðraði málunum. Við trúnaðarmenn vorum kallaðir á fund með tæplega dags fyrirvara og fórum svo beint út í skólana til að kynna þetta fyrir okkar fólki. Ég var rétt komin heim þegar sagt var frá þessu í útvarpinu og skömmu síðar tilkynnti ráðherra að kennarar hefðu samþykkt styttingu. Ég hefði viljað sjá stjórn KÍ mótmæla formlega þessari fullyrðingu ráðherra . Þetta voru ekki skilaboðin sem við trúnaðarmenn vorum nýbúnir að færa samstarfsmönnum okkar og fyrir vikið litum við út eins og fífl. En tíu punkta samkomulagið sem slíkt er mjög gott. Ég get að vísu ekki skilið hvernig réttindamál leikskólakennara koma inn í þetta - ég get svo vel unnt þeim að fá löggildingu en sýnist það vera mál sem á heima á öðrum vettvangi. Og það er mín skoðun að hæpið sé að stytta sumarleyfi nemenda því þá missa þeir af ýmsu því sem þroskar þá. En þetta eru allt saman góð málefni og ég hef trú á að forysta FF muni vinna að framgangi þeirra af heilum hug. Það er að sjálfsögðu bæði æskilegt og nauðsynlegt að skólakerfið sé í sífelldri endurskoðun með það að markmiði að bæta það.“

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.