Skólavarðan - 01.03.2006, Síða 22
22
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006
MÁLÞING, NÁMSKEIÐ, ORLOFSHÚS
Viltu fara á námskeið í Þrándheimi?
Viltu kynna þér leiklist sem öfluga
kennsluaðferð?
Viltu taka þátt í vinnusmiðju?
Viltu vera með skemmtilegu fólki í
fimm daga?
Drama Boreale eru norræn regn-
hlífarsamtök um notkun leiklistar í upp-
eldi og kennslu barna og unglinga.
Félagsmenn eru kennarar, listamenn
og uppeldisfræðingar. Samtökin halda
reglulega þing þar sem boðið er upp á
námskeið, vinnusmiðjur og fyrirlestra, að
auki eru áhugaverðar leiksýningar.
Í ár verður þing Drama Boreale haldið
í Þrándheimi í Noregi dagana 31. júlí til
4. ágúst. Á sama tíma stendur þar yfir
Málþing um náttúrufræðimenntun
á öllum skólastigum verður haldið
dagana 31. mars og 1. apríl í húsa-
kynnum Kennaraháskóla Íslands.
Þingið er helgað minningu Ólafs Guð-
mundssonar kennara sem lést 9. september
sl. Ólafur var mikill áhugamaður um
náttúrufræðimenntun og þá sérstaklega
þátt tilrauna í kennslu efna- og eðlisfræði,
en þessar greinar kenndi hann m.a. við
Háteigsskóla og KHÍ. Síðustu ár sín hafði
hann umsjón með Rafheimum, fræðslusetri
Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdal.
Megintilgangur málþingsins er að varpa
ljósi á náttúrufræðimenntun á Íslandi með
það fyrir augum að efla náttúrufræði-
kennslu í skólum.
Málþingið byrjar klukkan 13.00
föstudaginn 31. mars með þremur
fyrirlestrum: Hafþór Guðjónsson fjallar
um náttúrufræðimenntun á 21. öld,
Gunnhildur Óskarsdóttir greinir frá
doktorsrannsókn sinni á þróun hugmynda
barna um mannslíkamann, Ari Ólafsson
segir frá undirbúningi að væntanlegu
vísindasetri (science center) og í fram-
haldi af því verður hugarflugsfundur
um stofnun þess. Seinni dagurinn hefst
með málstofum þar sem fræðimenn og
kennarar af öllum skólastigum flytja erindi
og ræða um þróun í námi og kennslu. Þá
verður Guðmundur Eggertsson, emeritus
prófessor, með opinn fyrirlestur sem hann
kallar „Erfðafræði á 21. öld“. Eftir hádegi
verða svo margvíslegar vinnustofur þar
sem kennarar, stofnanir og fyrirtæki
koma við sögu með alls kyns tilraunir,
kynningar og önnur uppátæki. Meðal
annars fáum við gest frá Danmörku,
Erlend Anderson, sem verður með smiðju
um rafmagn, loft og orku. Málþinginu
lýkur með pallborði þar sem þátttakendur
frá ýmsum sviðum atvinnulífs ræða um
tilgang náttúrufræðikennslu í skólum.
Málþingið er samstarfsverkefni Félags
raungreinakennara, Félags náttúru-
fræðikennara á grunnskólastigi, Kenn-
ORLOFSHÚS SUMARIÐ 2006
Síðasti umsóknardagur fyrir
sumarleigu er 24. apríl.
Bókanir á Flakkaraleigu
hefjast 1. maí
ki.skyrr.is/orlof/sumar2006/
Stjórn Orlofssjóðs KÍ
menningarhátíðin „Ólafsdagar“ með
fjölbreyttum listaviðburðum; þar verður
margt til skemmtunar.
Meðal efnis á þinginu er: Leikir barna,
skapandi starf barna, unglingamenning,
leiklist í námi og framtíðarsýn á listir og
listgreinar innan skóla. Ítarlegri lýsingu á
þinginu er að finna á heimasíðu „Drama
Boreale“: www.hf.ntnu.no/dramaboreale.
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar hjá
Ásu Helgu Ragnarsdóttur leiklistarkennara.
Netfang: asaragg@simnet.is
araháskóla Íslands, Háskóla Íslands og
Samlífs, samtaka líffræðikennara.
Málþingið er ókeypis og öllum opið.
Kennarar í náttúrufræði á öllum skóla-
stigum og áhugafólk um náttúrufræði og
náttúrufræðikennslu er sér-staklega hvatt
til að koma á þingið.
Frestur til að skrá sig á málþingið er til
27. mars. Skráning fer fram á vef þingsins:
natturufraedi.khi.is/natting/dagskr.htm.
En þar er líka að finna frekari upplýsingar
um dagskrá og annað sem lýtur að
þinginu.
Málþing um náttúrufræðimenntun
Takið frá dagana 31. mars og 1. apríl!
IN MEMORIAM
Ólafur Guðmundsson
Við sem stöndum að þessu mál-
þingi trúum því að náttúruvísindin
eigi brýnt erindi til allra og við
trúum því líka að náttúrufræði í
skóla, séu þau réttilega kennd,
geti vakið gleði og áhuga hjá öllum
nemendum og stuðlað að því að
efla skilning þeirra á sjálfum sér
og umhverfi sínu.
Skemmtun - leikur - fræðsla