Skólavarðan - 01.03.2006, Qupperneq 24
24
FRÉTTIR AF FAGFÉLÖGUM
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006
Hlutverk Samtaka móðurmálskennara,
sem stofnuð voru árið 1978, er að vinna
að vernd og viðgangi íslenskrar tungu á
öllum sviðum og efla samstarf íslenskra
móðurmálskennara auk þess að fylgjast
með og beita sér fyrir nýjungum í
móðurmálskennslu. Stærstu verkefni
samtakanna eru útgáfa fagtímaritsins
Skímu, Stóra upplestrarkeppnin sem
grunnskólabörn taka þátt í, sumar-
námskeið fyrir framhaldsskólakennara
og norræn samvinna.
Fundað að vori og hausti
Árlega halda Samtök móðurmálskennara
tvo meginfundi. Annar er vor- og aðal-
fundur. Venjan er að fá fyrirlesara til þess
að ræða það sem efst er á baugi hverju
sinni í kennslubókaútgáfu og öðrum
faglegum málum.
Skammdegisfundurinn er haldinn í
nóvember. Þá lesa rithöfundar úr nýút-
komnum verkum sínum og félagsmönnum
gefst tækifæri til þess að njóta upplesturs
og blanda geði í notalegum stofum Skóla-
bæjar.
Samtökin standa einnig að málþingum
og ráðstefnum ein og sér eða í samstarfi
við aðra þegar tilefni finnst til. Nú í
febrúar stóðu samtökin fyrir málþingi um
styttingu námstíma til stúdentsprófs og
afleiðingar hennar fyrir íslenskukennslu,
í samvinnu við Félag íslenskra fræða og
Íslenska málfræðifélagið.
Blómleg útgáfa
Samtök móðurmálskennara eru eitt fárra
fagfélaga sem gefa út veglegt fagtímarit
en Skíma kemur út tvisvar á ári. Í ritnefnd
Skímu sitja fulltrúar af grunn-, framhalds-
og háskólastigi, Efnið í blaðinu kemur
frá fræðimönnum í þeirra röðum eða
háskólunum og kennaranemar hafa þar
einnig vettvang fyrir ritverk sín. Auk
blaðsins gefa samtökin út fréttabréf tvisvar
á ári. Nú er verið að vinna að tímabærum
endurbótum heimasíðunnar og verður
nýtt netfang SM modurmal.is.
Árið 2000 átti málnefnd Norrænu
ráðherranefndarinnar frumkvæði að því
að undirbúa útgáfu norrænnar málsögu
fyrir framhaldsskólakennara, Norræn mál
með rótum og fótum. Nú hefur bókin litið
dagsins ljós og verður hún uppistaðan á
námskeiði Nordspråk sem ber sama nafn
og verður haldið í Danmörku í haust.
Námskeiðahald um móðurmálskennslu
Endurmenntunarnámskeið SM eru ætluð
framhaldsskólakennurum eftir að rekstur
grunnskólans var fluttur til sveitarfél-
aganna. Menntamálaráðuneytið styrkir
námskeiðin en sveitarfélögin hafa veg
og vanda af námskeiðum fyrir grunn-
skólakennara. Grunnskólakennurum gefst
kostur á að sækja námskeiðin ef þau fyllast
ekki. Næsta námskeið SM verður haldið á
Snæfellsnesi í ágúst.
Samtök móðurmálskennara eiga þrjá
fulltrúa í Nordspråk sem eru samtök
norrænna tungumála- og móðurmáls-
kennara. Fulltrúar landanna hittast á
hverju ári til þess að skipuleggja námskeið
sem haldin eru í löndunum á víxl.
Fjölbreytt samstarf
Samtök móðurmálskennara eru aðilar að
Stóru upplestrarkeppninni og eiga fulltrúa
í héraðsnefndum um allt land. Keppnin er
nú haldin í tíunda sinn og fer fram í yfir 150
skólum víðs vegar um landið. Fjölmargir
aðilar koma að Stóru upplestrarkeppninni
eins og lesendum Skólavörðunnar er
kunnugt um. Þá eiga samtökin fulltrúa í
dómnefnd Smásagnasamkeppni grunn-
skólanna í Hafnarfirði.
Mjólkursamsalan hefur leitast við að
styrkja íslenska tungu og koma ábend-
ingum um það á íslenskar mjólkurfernur.
Nefnist verkefnið Fernuflug. Samtök
móðurmálskennara eru samstarfsaðilar
Mjólkursamsölunnar og koma að undir-
búningi Fernuflugsins.
Félagsmenn
Félagsmenn SM eru nú ríflega 500 talsins.
Stjórn félagsins skipa tveir grunnskóla-
kennarar, tveir framhaldsskólakennarar
og einn háskólakennari. Í lögum félagsins
segir að allir starfandi móðurmálskennarar
geti orðið félagsmenn þótt þeir kenni
aðrar námsgreinar jafnframt.
Stjórn SM vill hvetja íslenskukennara
til þess að gerast félagsmenn séu þeir
það ekki nú þegar. Félagsgjöldin eru 2500
krónur á ári og fyrir þau fæst tækifæri
til þess að sækja fundi og námskeið auk
áskriftar að Skímu. Þeir sem hafa áhuga á
að kynna sér starfsemina betur eða skrá
sig í Samtök móðurmálskennara geta gert
það á netfangið bjorkeinis@aslandsskoli.is
Björk Einisdóttir
Höfundur er formaður Samtaka
móðurmálskennara
Fagfélag kennara sem kenna íslensku sem móðurmál
Samtök móðurmálskennara
Björk Einisdóttir