Skólavarðan - 01.03.2006, Síða 26

Skólavarðan - 01.03.2006, Síða 26
26 ÞÆTTIR ÚR SKÓLASÖGU SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006 Óttar Einarsson dönskukennari er einn fárra sem veit hvers vegna Barnaskóli Akureyrar var kallaður Barnaskóli Íslands. Lesið áfram ... Hvers vegna hefur Barnaskóli Akureyrar – sem núna heitir víst Brekkuskóli – verið kallaður „Barnaskóli Íslands“ manna á meðal um árabil og flestir vita við hvaða skóla er átt? Það er verðug spurning! Þannig vill til að ég veit hvernig þetta er tilkomið. Faðir minn, Einar Kristjánsson, var húsvörður við skólann frá 1947 til 1981 og fjölskylda mín bjó í húsvarðaríbúð á neðstu hæð skólans fram undir 1970. Einhverju sinni vill svo til að faðir minn á eitthvert erindi við Karl Hjaltason, smíðakennara, og hringir heim til hans. Dóttir Karls kemur í símann. Faðir minn spyr hvort Karl sé heima. „Nei,“ segir hún, „hann er niðri í barnaskóla!“ og bætir svo við eftir smáhik, „Barnaskóla Íslands!“ Rétt er að hér komi fram að Barna- skólinn á Akureyri hafði verið eini skólinn í fræðsluumdæminu um áratugi en þegar hér var komið var Oddeyrar-skólinn tekinn til starfa og Glerárskólinn sennilega líka þannig að henni hefur sennilega fundist hún þurfa að þrengja hringinn. Föður mínum fannst þetta tilsvar skemmtilegt og kom því á flot. Þess vegna er Barnaskóli Akureyrar – Brekkuskóli – enn þann dag í dag kallaður „Barnaskóli Íslands“, bæði í gamni og alvöru af þeim sem til þekkja og reyndar einnig þeim sem þekkja ekki til hvað sem síðar kann að verða. Til fróðleiks má geta þess að gamla skólahúsið mun hafa verið byggt um 1930, stílhrein, traustleg og vönduð bygging .Viðbyggingin kom svo til á árunum 1950-1951 þegar erfitt var um öll aðföng eftir stríðið og allt skorið við nögl. Hún er stílbrot og nánast eins og æxli út frá gamla húsinu. Nú mun skólahald aflagt í hinum gamla Barnaskóla Akureyrar og hann hefur víst fengið nýtt hlutverk. Þegar faðir minn lét af störfum við skólann og fjölskylda okkar hafði flutt þaðan, reyndar nokkrum árum áður, orti hann þessa vísu: Við blessun mikla bjó ég hér, með börnin mín og frúna. Barnaskóli Íslands er orðinn stekkur núna. Ekki veit ég til þess að nafngiftin „Barna- skóli Íslands“ komi fram í kveðskap nema í þessari stöku og því er hún látin fljóta hér með þessum línum. Óttar Einarsson Sögumaður er kennari við Menntaskólann að Laugarvatni HVAÐA STARFSEMI ER NÚNA Í BARNASKÓLA ÍSLANDS? Menntasmiðjan á Akureyri, Alþjóða- stofan - Akureyri Intercultural Center, Húsið - menningarmiðstöð Norður- lands og loks Punkturinn sem er almenn handverks- og tómstundamiðstöð. Nýtt nafn hefur verið valið á bygginguna sem hýsti Barnaskóla Akureyrar (Barnaskóla Íslands) frá árinu 1930 og þar til hann sameinaðist Gagnfræðaskóla Akur- eyrar árið 1997. Úr þeirri sameiningu varð Brekkuskóli, sem nú hefur flutt í nýtt húsnæði en hið nýja nafn hússins er Rósenborg - möguleikamiðstöð. HÚSVÖRÐURINN OG SNJÓTITTLINGURINN Veturinn 1961-1962 skiptust þeir Einar Kristjánsson, faðir Óttars, og Kristján frá Djúpalæk á vísum sem oftar en þeir voru miklir vinir. Tilefnið var það að skólabörn höfðu rekist á lasburða snjótittling úti á lóðinni og komu með hann til Einars húsvarðar. Einar tók við fuglinum og fór með hann inn til sín og fjölskyldan sameinaðist um að hjúkra honum og koma honum “til fugls” á nýjan leik. Snjótittlingurinn hresstist furðufljótt og var þá látinn spóka sig úti í stofuglugga hjá húsverðinu. Skapaðist þá oft mikil ös skólabarna utan við gluggann að fylgjast með fuglinum. Einar fullyrti í bréfi sem hann sendi sonum sínum suður til Reykjavíkur að snjótittlingur þessi hefði a.m.k. um tíma verið „einn vinsælasti tittlingur bæjarins og þótt víðar væri leitað“. Þetta frétti Kristján frá Djúpalæk og sagði: Einar greyið ótal sorgir hrjá ekkert má skáldið hugga. Inni í stofu tyllir sér á tá með tittlinginn úti í glugga Einar svaraði: Aumkva ég og allvel skil öfundina þína. Þú átt engan tittling til sem tekur því að sýna. Barnaskóli Íslands Kennarar: Sendið okkur sögur úr skólalífinu.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.