Skólavarðan - 01.02.2007, Qupperneq 10

Skólavarðan - 01.02.2007, Qupperneq 10
10 VINNUUMHVERFISMÁL SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 7. ÁRG. 2007 Þriðja þing KÍ 2005 ályktaði um stefnumótun og aðgerðir í vinnuum- hverfismálum félagsmanna til að gera kennslu, ráðgjöf og stjórnun í skólum að aðlaðandi starfi. Í framhaldi af þessu var stofnuð vinnuumhverfisnefnd á vegum KÍ sem tók til starfa í janúar 2006. Nefndin ákvað að fyrstu verkefni hennar yrðu eftirfarandi, skv. sam- þykktum þings KÍ: 1. Að efna til fræðslunámskeiða fyrir trúnaðarmenn Kennarasambandsins um vinnuumhverfismál í samvinnu við Vinnueftirlit ríkisins til að styrkja trúnaðarmenn í vinnuumhverfis- málum, miðla til þeirra upplýsingum og efla samstarf þeirra, öryggis- trúnaðarmanna og öryggisnefnda í skólum. Voru þessi námskeið haldin í október 2006. 2. Að skipuleggja og standa fyrir árlegum þemadegi um vinnuumhverfismál félagsmanna í samvinnu við stjórnir aðildarfélaga KÍ og skólamálaráð. Undirbúningur að þessum þemadegi stendur yfir. Voru kynningarbréf um hann send til skólastjórnenda og trúnaðar- manna KÍ í leik-, grunn-, tónlistar- og framhaldsskólum í desember sl. Tilgangur þemadagsins er að stuðla að umræðum í skólunum um vinnu- umhverfismál, um ábyrgð skóla og starfs- manna á samskiptum á vinnustað og líðan í starfi. Verður vikan 12. – 16. febrúar 2007 helguð þessu mikilvæga málefni. Gengið er út frá því að skólar velji sér hentugan dag/tíma í þessari viku til að taka efnið á dagskrá hjá sér sem samræmist skipulagi skólastarfsins að öðru leyti. Send verða veggspjöld innan skamms til trúnaðarmanna KÍ með nokkrum lykil- spurningum um vinnuumhverfismál sem ætlunin er að skólarnir taki til umræðu. Fer vinnuumhverfisnefndin þess á leit við skólastjórnendur að þeir hafi umsjón með framkvæmd þemadagsins í samstarfi við trúnaðarmenn KÍ, öryggistrúnaðar- menn og öryggisnefndir í skólum, þar sem þær starfa skv. lögum og reglugerðum. Vinnuumhverfisnefndin hvetur félags- menn til góðrar þátttöku í þessu verkefni. Vinnuumhverfisnefnd KÍ Ný reglugerð um skipulag og fram- kvæmd vinnuverndarstarfs á vinnu- stöðum, nr. 920/2006, tók gildi fyrir skömmu. Markmið hennar er að tryggja að fyrir hendi sé kerfisbundið vinnuverndarstarf á vinnustöðum. Í því felst einkum að atvinnurekandi ber ábyrgð á að koma á vinnuverndarstarfi sem tekur til fyrirtækis/stofnunar í heild og allra vinnuaðstæðna sem geta haft áhrif á öryggi og heilsu starfsmanna. Ber atvinnurekanda að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem á að marka stefnu varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum. Áætlunin skal m.a. fela í sér: • Mat á áhættu í starfi með tilliti til öryggis og heilsu starfsmanna, svo kallað áhættumat • Áætlun um heilsuvernd sem byggir á áhættumatinu og felur í sér forvarnir • Samantekt á helstu niðurstöðum áhættumats og áætlunar um heilsu- vernd/forvarnir Frá og með gildistöku reglugerðarinnar er það skylda allra atvinnurekanda að gera slíka áætlun fyrir fyrirtæki sitt/stofnun. Í henni er að finna ítarlegri ákvæði en áður um skyldu atvinnurekenda sem eiga aðild að starfsemi á sama vinnustað að vinna saman að því að tryggja góðan aðbúnað, heilsusamlegar og öruggar vinnuaðstæður á vinnustaðnum. Jafn- framt eru ítarlegri ákvæði um skyldu atvinnurekenda að tryggja að starfsmenn fái nægilega þjálfun í starfi sínu að því er varðar aðbúnað, öryggi og hollustuhætti á vinnustað. Einnig eru ákvæði um tilnefningu, hlutverk og starfshætti öryggisvarða, öryggistrúnaðarmanna og öryggisnefnda í fyrirtækjum/stofnunum. Eldri reglur nr. 77/1982 um heilbrigðis- og öryggisstarfsemi innan fyrirtækja, sem höfðu að geyma ákvæði um öryggisverði, öryggistrúnaðarmenn og öryggisnefndir í fyrirtækjum, hefur verið felld úr gildi. Á vef Vinnueftirlits er fræðslu- og leið- beiningaefni um áhættumat og forvarnir á vinnustað á heimasíðu stofnunarinnar, upplýsingaefni um áhættumat og gagn- leg verkfæri, m.a. 23 vinnuumhverfisvísar fyrir mismunandi starfsgreinar sem gagnast við gerð áhættumatsins. Á þessu ári mun Vinnueftirlitið standa fyrir kynningarráðstefnum um áhættumat og forvarnir í Reykjavík og á landsbyggð. Einnig verða í boði sérstök námskeið um gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins www.vinnueftirlit.is Skólar velji sér dag í vikunni 12. – 16. febrúar Þemadagur í skólum um vinnuumhverfismál • Hvernig vil ég að fólk komi fram hvert við annað á mínum vinnustað? • Hvernig er tekið á móti nýju starfsfólki á mínum vinnustað? • Þarf að bæta upplýsingamiðlun milli starfsfólks á mínum vinnustað? • Eru samskiptavandamál á mínum vinnustað; einelti, áreitni, hótanir? • Hvaða streituvaldar eru í vinnuumhverfinu á mínum vinnustað? • Vinnum við saman að því að bæta vinnuumhverfið á mínum vinnustað? Ný reglugerð um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.