Skólavarðan - 01.02.2007, Blaðsíða 22
22
MENNTAVERÐLAUN
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 7. ÁRG. 2007
Íris Róbertsdóttir kennari við Hamarsskóla í Vestmannaeyjum tekur við íslensku
menntaverðlaununum úr hendi forseta Íslands þann 7. júní 2006.
Í vor verða Íslensku menntaverðlaunin
afhent í þriðja sinn. Verðlaun þessi
voru stofnuð af forseta Íslands, Ólafi
Ragnari Grímssyni en þau ásamt
Íslensku bókmenntaverðlaununum og
Útflutningsverðlaununum eru helstu
verðlaun sem forseti Íslands veitir ár
hvert.
Íslensku menntaverðlaunin eru einkum
bundin við starfið í grunnskólunum. Veitt
eru fern verðlaun og þau eru eins og
segir í 2. gr. reglna um Íslensku mennta-
verðlaunin veitt:
1. Skólum sem sinnt hafa vel nýsköpun
eða farsælu samhengi í fræðslustarfi.
2. Kennurum sem skilað hafa merku
ævistarfi eða á annan hátt hafa skarað
framúr.
3. Ungu fólki sem í upphafi kennsluferils
hefur sýnt hæfileika og lagt alúð við
starf sitt.
4. Höfundum námsefnis sem stuðlað
hafa að nýjungum í skólastarfi.
Í 4. gr sömu reglna segir: „Auglýsa skal eftir
tilnefningum og hafa allir rétt til að senda
inn tilnefningar, þ.e. skólar, kennarar,
foreldrafélög, nemendur, einstakir for-
eldrar, sveitarfélög, áhugafólk og allir
aðrir sem áhuga hafa á skólastarfi.“
Mikilvægt er að allir þeir sem unna
farsælu skólastarfi taki þátt í því að
tilnefna þá sem skarað hafa framúr
í íslensku grunnskólunum hvort sem
það eru einstaka skólar, kennarar eða
námsefnishöfundar. Undirritaður telur
mikilvægt að skólafólk kynni verðlaun
þessi fyrir nærumhverfi sínu sem leið fyrir
foreldra og aðra til að vekja athygli á því
sem vel er gert í hverjum skóla. Það er nú
einu sinni þannig að í nánast hverjum skóla
á Íslandi eru kennarar
og starfsfólk skólanna
að gera frábæra hluti
sem vert er að segja
öðrum frá. Þá hefur
einnig verið mikil
gróska í útgáfu á
góðu námsefni fyrir
grunnskólana.
Það hefur verið ánægjulegt að sjá og
finna fyrir þeim mikla áhuga sem þjóðin
hefur sýnt Íslensku menntaverðlaununum.
Það sannar að þjóðinni er annt um
grunnskólana sína og vill halda því á
lofti sem vel er gert innan þeirra. Því það
er nú einu sinni þannig að öll eigum við
minningar úr grunnskólanum frá eigin
skólagöngu eða við tengjumst skólanum
í gegnum grunnskólagöngu barna okkar.
Öll höfum við skoðanir á því hvað sé
góður kennari, frábært námsefni ellegar
góður skóli. Ekki eru endilega allir á sömu
skoðun og eiga ekkert að vera það. En við
eigum öll að taka þátt í því að tilnefna þá
sem skarað hafa fram úr og þannig efla
grunnskólana enn frekar í því markmiði
þeirra að verða enn betri skólar en þeir
eru nú þegar.
Undirritaður vill með þessum línum
hvetja þig lesandi góður til að kynna
verðlaun þessi sem víðast og gefa
þjóðinni þannig tækifæri til að tilnefna
þá sem skarað hafa framúr í íslenskum
grunnskólum. Með því móti eflum við
enn frekar grunnmenntun þjóðarinnar og
erum því betur í stakk búin til að takast
á við hin krefjandi verkefni 21. aldarinnar
sem bíða handan við hornið.
Tilnefningar skal senda hvort sem er
til skrifstofu forseta Íslands, Staðastað,
Sóleyjargötu 1, 150 Reykjavík eða á
menntaverðlaun@forseti.is
Síðasti skiladagur er föstudagurinn 23.
mars 2007. Verðlaunin verða síðan afhent
vinningshöfum á glæsilegri verðlaunahátíð
sem haldin verður í lok maí.
Varðandi tilnefningarnar þá er ekki
nauðsynlegt að skrifa langar greinargerðir
með þeim, einungis að benda á nöfn
þeirra sem skarað hafa framúr að
þínu mati og hvers vegna þú telur að
viðkomandi eigi að fá verðlaunin. Síðan er
það verk dómnefndanna að kynna sér þá
sem tilnefndir eru sem og aðra þá sem til
greina koma.
Ágæti lesandi, hafðu þökk fyrir þinn
þátt í því að vekja athygli á því sem vel
er gert í íslenskum grunnskólum og hafa
þannig jákvæð áhrif á uppbyggingu
grunnskólanna við upphaf 21. aldar.
Guðbrandur Stígur Ágústsson
verkefnisstjóri Íslensku menntaverðlaunanna
stigur@spar.is
- Vekjum athygli á því sem vel er gert -
Íslensku
menntaverðlaunin
Mikilvægt er að allir þeir sem unna farsælu
skólastarfi taki þátt í því að tilnefna þá sem
skarað hafa framúr í íslensku grunnskólunum
hvort sem það eru einstaka skólar, kennarar
eða námsefnishöfundar.
Guðbrandur Stígur Ágústsson
Lj
ós
m
yn
di
r
fr
á
hö
fu
nd
i