Skólavarðan - 01.02.2007, Side 29

Skólavarðan - 01.02.2007, Side 29
29 SMIÐSHÖGGIÐ „Menntun er það sem eftir situr þegar þú ert búinn að gleyma því sem þú lærðir,“ mælti spekingur einn. Djarft, en snjallt! Við hljótum öll að vera hjartanlega sammála því. Menntunin getur ekki verið fólgin í því sem við lærðum og getum endurtekið, heldur í áhrifum þeim og þroska sem byggir okkur upp sem manneskjur. En hvenær í lífi okkar skyldi menntunin byrja? Menntun þýðir að verða að manni, mannast, og ætli hún hefjist í framhaldsskóla? Þessari spurningu hef ég mikið velt fyrir mér og er ekki tilbúin að fallast á að svarið sé já. Eftir fjörutíu og fimm ára samvistir við skólabörn frá fimm til níu ára aldri er mín sannfæring sú að menntun byrji strax við fæðingu. Algengt er að ómálga börn séu kölluð óvitar en við ættum ekki að líta þau þeim augum. Það eina sem þau vantar er málið til að tjá sig með. Við fátt er ég jafn feimin og staðfast augnaráð ómálga barns. Mér finnst oft sem það sjái í gegnum mig og ég sé vegin og æði léttvæg fundin. Það er ekkert hægt að fela fyrir því augnaráði! Einhverju sinni las ég, haft eftir sérfróðum gáfumanni, að öll heilbrigð börn fæddust með óteljandi hæfileikarásir sem lokuðust endanlega, hver af annarri, ef ekki kæmi til hvatning eða örvun. Það læðist um mann ónotahrollur við þá tilhugsun að ef til vill séum við, vegna vantrúar á eðli barna, að þrengja heimsmynd þeirra og möguleika á að njóta sín síðar. Við þessu er, að mínu viti, aðeins eitt að gera. Segja frá, sýna og tala við þessi litlu börn á venjulegu, ríku og lýsandi máli um allt sem fyrir augu og eyru ber, jafnvel þótt það virðist fara fyrir ofan garð og neðan hjá þeim. Ég hefði varla trúað því fyrr en ég tók á sjálf, hve opin og tilbúin ung börn eru til að tileinka sér og taka þátt í að velta fyrir sér öllu sem okkur dettur í hug að bera fyrir þau. Árið 1975 byrjaði ég markvisst með þrjátíu og fjórum sjö ára nemendum mínum að vinna í anda þessarar hugsjónar eftir að hafa dottið ofan á kerfi eða ramma sem ég trúði að myndi innihalda allt sem ég vildi gera og að sá rammi sæi sjálfkrafa um að ekkert gleymdist eða færi forgörðum. Það reyndist æði margt sem mér fannst nauðsynlegt að gera en minnug allra hæfileikarása barnanna og með gleði og eftirvæntingu, bæði kennarans og barnanna sem drifkraft, hófst ég handa. Ramminn var líf nútíma fullorðins fólks sem flytur með fjölskyldu og venslamenn á nýtt land. Fólks sem verður að treysta á hyggjuvit sitt og útsjónarsemi við að byggja upp þjóðfélag og bera alla ábyrgð á lífi sínu og heillar þjóðar. Þetta kerfi hefur hlotið heitið Landnámsaðferðin. SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 7. ÁRG. 2007 Hvað er menntun? Markmið hennar eru: - Að opna augu barnanna fyrir lífinu í kringum sig. - Að efla sjálfstæða hugsun. - Að auka orðaforða barnanna með því að ræða fullorðinna manna málefni á fullorðinna manna máli. - Að æfa börnin í að tjá sig munnlega, skriflega, verklega og listrænt. - Að auka þekkingu og hvetja til fróðleiksleitar. - Að undirbúa nám framtíðarinnar í sem flestum greinum. - Að skapa tengsl við heimilin og auka þátttöku þeirra í uppfræðslunni. - Að reyna að finna og efla hæfileika einstakra nemenda, þótt þeir liggi utan námsramma skólans, og gefa þeim tækifæri. - Að skapa virðingu og samstöðu um að efla velferð lands og þjóðar. Með tólf ólíkum sjö ára bekkjum lagði ég af stað í þessa ferð sem stóð í tvo vetur eða þar til börnin fóru í annan skóla (samkvæmt venjum Skóla Ísaks Jónssonar, þar sem þetta fór fram). Nemendurnir fylgdust með hvernig nýtt land reis úr sjó, hvernig það greri upp, hvernig staða landsins á hnettinum skapaði lífsskilyrðin og atvinnuvegina, hverjar voru frumþarfir landnemanna, hvað landið gat gefið af sér, Herdís Egilsdóttir

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.